Return of the Jedi - Velkominn aftur Sigmundur Davíð Gunnlaugsson!
17.9.2016 | 18:02
Bestu fréttir dagsins voru stórglæsilegar kosningar Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar í fyrsta sæti Framsóknarmanna í Norðausturkjördæmi með 72% atkvæða. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson fyrrverandi forsætisráðherra Íslands á allan stuðning skilinn vegna fyrri framgöngu í baráttu þjóðarinnar gegn Icesave og spilltum fjármálaöflum.
Það er sérstaklega ánægjulegt og um leið nauðsynlegt, að okkar fyrrverandi rétt kjörni forsætisráðherra sem hrakinn var úr starfi með lygum ríkisfjölmiðla um undankomu fjár í skattaskjólum, fái verðskuldaða endurreisn í leiðtogahlutverki fyrir íslenska lýðveldið. Best væri að hann kæmi til baka í stöðu forsætisráðherra. Það væri blaut tuska í andlit George Sóros og fylgismanna hans á Íslandi: glóbalista pírata og Samfylkingar, Viðreisnar, BF og Vinstri grænna sem öll vilja breyta Íslandi í nýlendu ESB.
Það er mikill styrkur fyrir Framsóknarflokkinn að hafa slíkan leiðtoga sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er. Það er ekki minni styrkur fyrir íslensku þjóðina að hafa stjórnmálaflokk eins og Framsóknarflokkinn sem með dugnaði og hugrekki þorir að bjóða sterkum spillingaröflum birginn.
Ég óska Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni alls hins besta í starfi og hlakka til að sjá hann aftur í stafni skútunnar okkar.
![]() |
Sigmundur með afgerandi forystu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:21 | Facebook
Athugasemdir
Sannarlega ástæða til að gleðjast og réttast að hann settist í stól forsætisráðherra,þaðan sem hann var hrakinn.Hvað er að þessum Sóros;? Til hvers safna menn auði til að fremja slík illvirki?
Helga Kristjánsdóttir, 18.9.2016 kl. 01:44
Já segðu, hann fjármagnar m.a. samtökin Open Society með milarð dollara í ársveltu og 44 skrifstofur í 40 löndum. Þessi samtök fjármagna s.k. "rannsóknarblaðamennsku" sem ríkismiðlar í Svíþjóð og á Íslandi hafa hleypt inn á gafl til sín til árása gegn réttkjörnum fulltrúum Íslands. Sóros vill afnema þjóðríkið og koma á einu allsherjar ríki í öllum heimnum. Hann vill leggja niður þjóðir Evrópu og borgar flóttamönnum svo þeir komist umborð í smygglarabáta til Evrópu. 1 milljón flóttamenn árlega er hans uppskrift til að leggja niður þjóðríki allra Evrópulanda.....
Gústaf Adolf Skúlason, 18.9.2016 kl. 08:09
Gott að Íslandsvinir átti sig á hverslags Golíat er við að eiga.
Helga Kristjánsdóttir, 18.9.2016 kl. 14:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.