Til hamingju Bretar með sjálfstæðisdaginn!
23.6.2016 | 03:55
Dagur lýðræðisins, þar sem Bretar taka til baka stjórnina á eigin málum úr höndum búrókratanna í Brussel.
Hafi Íslandi verið hótað með Norður Kóreu eins og forsetaframbjóðandinn Guðni Th. Jóhannesson gerði gegn Íslandi í Icesave, þá hefur mest öll framkvæmdastjórn ESB breyst í þúsundfalt stærri Guðna og hrín í einum kór:
Norður-Kórea, efnahagshrun, þjóðfélagshrun og heimsstyrjöld ef þið farið úr ESB.
Eigingirni ESB og hroka eru engin takmörk sett. Þeir vilja umskrifa söguna og setja nýtt tímatal með árið 0 við stofnun ESB.
Það sem óhróðurinn þýðir í raun er:
Ekki taka frá okkur peningana sem við höfum sogið úr ykkur
Berskjaldaðir verða ESB sinnar, þegar lýðræðisöflin taka yfir í dag og rasskella sjálfselska, hrokafulla elítu sem lífnærir sig á striti vinnandi fólks.
Til hamingju Bretar, til hamingju lýðræðið, til hamingju frelsið.
Fleiri vilja úr Evrópusambandinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Utanríkismál/alþjóðamál | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.