Ógnvekjandi herflug Rússa á Eystrarsalti

Það var allt annað en gaman að horfa á fréttir sænska sjónvarpsins seinni part dagsins í dag. Tvær sænskar herþotur voru ræstar út í hádeginu til að stugga tveimur rússneskum sprengjuflugvélum frá flughelgi Svíþjóðar.

Skärmavbild 2015-05-21 kl. 23.25.25Sprengjuflugvélar Rússanna eru af gerðinni Tu- 22 og geta borið kjarnorkuvopn segir sænska sjónvarpið. Þær snéru við í alþjóðlegri lögsögu við suðurenda Ölands eftir ögrandi flug að lofthelgi Svíþjóðar og farþegaflugvélum á svæðinu. Yfirhershöfðingi Svíþjóðar, Sverker Göransson sagði í viðtali við sjónvarpið, "að þetta eru meðvituð spor af hálfu Rússlands og þau sjáum við núna afar reglubundið. Í þeim mæli, sem Rússar endurbyggja sig æfa þeir einnig á fjölþættari máta og sína þvílíka hörku, sem við höfum ekki séð áður." Yfirhershöfðinginn taldi það þýðingarmikið, að Svíar bregðist skjótt við.

Sænska Dagblaðið segir á heimasíðu sinni eftir varnamálaskilgreinandanum Stefan Ring, að það sé engin tilviljun að Rússarnir minntu á sig á þennan hátt fyrir leiðtogafund ESB með sex fyrrverandi ríkjum Sovétríkjanna, sem hófst í Ríga í dag. Þar verður Úkraínustríðið efsta mál á dagskrá en enn er barist, þótt vopnahlé sé sagt ríkja. Sænska sjónvarpið sýndi frétt frá Dónetsk, þar sem fallbyssur glumdu og sprengjur féllu ekki skammt frá. Í viðtali við íbúa kom það fram að byssurnar hefðu aldrei þagnað og sýnt var frá nýlega sundursprengdum húsum. Claes JB Löfgren fréttaritari sænska sjónvarpsins sagði, að stríðinu væri engan veginn lokið og Pútín vildi sýna umheiminum, að hann réði í þessum heimshluta. Reiknaði Claes með enn frekari stríðsaðgerðum Rússa.

Nýlega handtóku úkraínsk yfirvöld tvo rússneska hermenn, sem dregnir verða fyrir dóm í Kíev. Öryggisstofnunin ÖSSE hefur yfirheyrt mennina og í skýrslu ÖSSE segir, að "báðir hafi gefið upp, að þeir væru hermenn rússneskrar herdeildar." Mennirnir voru vopnaðir en sögðust ekki hafa fengið skipanir um að hefja árás.

Hin dugmikla fréttakona sænska sjónvarpsins, Elin Jönsson, sagði að mikil spenna væri milli Brussel og Moskvu vegna fundahaldanna í Riga. Sér í lagi finnst Pútín sér vera ógnað, þar sem hann vill halda athyglinni að Moskvu.

Svíar munu leyfa bandarískum B52 sprengjuflugvélum Bandaríkjamanna að æfa í sænskri flughelgi í komandi heræfingu NATO á Eystrasalti í næsta mánuði. Ríkin við Eystrasalt munu taka þátt í þeim heræfingum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbeinn Pálsson

Þetta eru bara smámunir og varla frétta verðir. Googlaðu þegar Tyrkir ruddust inn í Gríska lofthelgi í eitt skipti af mörgum og 2 F16 lenti saman.Þær höfnuðu báðar í eyjahafinu. Grikkinn (Kostas Iliakis frá Krít)hélt landhelgislínunni til hinnstu stundar þegar og eftir að vélunum lenti saman og fannst aldrei. Tyrkinn treysti ekki meira á Allah en svo að hann ýtti snarlega á útköstunarhnappinn og komst af.

Nato félagarnir Grikkir og Tyrkir gerðu síðan tímabundið vopnahlé, þar sem hætt var við að túristum á td Rhodos og Marmaris myndi snarfækka ef þeir ættu von á að fá reglulega í hausinn eina eða tvær F16 á meðan þeir væru flatmagandi á fallegri sólarströnd.

Kolbeinn Pálsson, 21.5.2015 kl. 23:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband