Rússland segir hćttuástand skapast ef Svíţjóđ og Finnland ganga međ í NATO

sauliniinisto

 

 

 

 

 

 

Ţađ mundi skapa “hćttulega, neikvćđa ţróun” ef Svíţjóđ og Finnland ganga međ í Nató segir utanríkisráđuneyti Rússlands í yfirlýsingu laugardaginn 31. maí. Yfirlýsingin kom bara nokkrum tímum eftir ađ Sauli Niinistö Finnlandsforseti sagđi í finnska sjónvarpinu ađ “ef spurningin kemur upp verđur ţjóđaratkvćđagreiđsla á borđinu” og bćtti ţví viđ, ađ “núna er kominn tími fyrir Finna ađ hefja víđar umrćđur um máliđ án takmarkana.”

“Viđ verđum ađ íhuga, hvernig finnsk Nató-ţáttaka kemur út frá rússnesku sjónarhorni og hvađa ađgerđir Rússar mundu grípa til ef viđ göngum međ,” sagđi Niinistö í sjónvarpinu.

Síđastliđinn föstudag hittust ađstođarutanríkisráđherra Rússlands, Vladimir Titov og sendiherrar Svíţjóđar, Finnlands, Noregs, Danmerkur, Íslands, Eistlands, Lettlands og Litháen í Helsinki. Rússneska utanríkisráđuneytiđ segir, ađ “venjulega einkennist ástandiđ á Norđurlöndum og Eystrarsaltsríkjunum af lítilli hernađarlegri eđa stjórnmálalegri spennu” en “Rússland ábyrgist ađ vernda landsmenn sína og menningu” sérstaklega í Eystrarsaltslöndunum”. Sćnsk eđa finnsk ađild ađ Nato mundi skapa “hćttulega, neikvćđa ţróun” á svćđinu.

Forsćtisráđherra Rússa, Dimitríj Medvedev sagđi fyrir ári síđan ađ “nýir Natómeđlimir viđ landamćri Rússlands myndu breyta valdahlutföllum og neyđa okkur ađ bregđast viđ og svara ţví.”

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Rússar muna enn vel síđasta stóra ţjóđarharmleik Rússlands, sem varđ 1941 eftir ađ búiđ var ađ safna öllum nágrannaţjóđum ţeirra frá Svartahafi til Íshafsins í eina raunverulega hernađarblokk.

Ţessa sálfrćđilegu og eđlilegu stađreynd verđa vestrćnar ţjóđir ađ hafa í huga áđur en fariđ er út í eitthvađ sem líkist ţví sem gerđist í ađdraganda innrásarinnar í Sovétríkin 1941.  

Ómar Ragnarsson, 1.6.2014 kl. 00:22

2 Smámynd: Gústaf Adolf Skúlason

Aukin hernađarspenna og stjórnmálaspenna á Norđurlöndum og Eystrasaltsríkjum er vegna hernađaruppbyggingar Rússa, sem eru ađ byggja upp einn stćrsta her veraldar útbúinn kjarnorkuvopnum sem geta tortímt Evrópu á skömmum tíma. Ţeir eru nýbúnir ađ stofna Euroasíusambandiđ og hernađarútţenslustefna ţeirra ađ ráđast inn og hrifsa Krím og koma af stađ styrjöld í Úkraínu hefur gjörbreytt stöđu varnarmála fyrir Vesturlönd. T.d. í fyrra ćfđu rússneskar herflugvélar útbúnar kjarnaoddum árásir á Stokkhólm og Gotlandseyjar.

Tal Rússa um ađ "vernda eigin ríkisborgara" í öđrum löndum túlka margir sem ađ Rússar áskilji sér réttinn ađ ráđast á önnur ríki međ sömu ađferđum og gegn Úkraínu. Engin afsökun fyrir hegđun Rússa núna, ađ Hitler réđst á Rússland 1941. Sem betur fer hefur enn enginn nýr Hitler komiđ fram í Evrópu, hvađ sem seinna kann ađ verđa, svo samanburđur viđ nazismann og útţenslustefnu Hitlers 1941 vćri frekar ađ bera saman viđ hernađar- og útţenslustefnu Rússlands og Pútíns 2014.

Gústaf Adolf Skúlason, 1.6.2014 kl. 06:42

3 Smámynd: Ármann Birgisson

Má ekki alveg eins snúa ţessu viđ Gústaf og segja ađ Rússar ţurfi ađ byggja upp sinn her vegna hernađaruppbyggingu vesturveldanna? Af hverju ćttu Evrasíuríkin ekki ađ vera í fullum rétti međ hernađaruppbyggingu eins og vesturveldin og taktu eftir afskiftasemi  Ameríkana  í Úkraínu, ţeir hafa ekki enn gefiđ ţađ út sjálfir hvađ ţeir hyggjast fyrir ţar. Rússar tóku Krím til ađ tapa ekki herstöđinni í Sevastopol og um leiđ voru íbúar Krím ađ langstćrstum hluta ánćgđir međ innlimunina. Obama veit upp á sig mistökin ađ rétta Rússum Krím á silfurfati međ afskiftum sínum í Úkraínu. Ţetta er misskilningur ađ Rússar hafi komiđ af stađ styrjöld í Úkraínu. Ađskilnađarsinnar eru langmest heimamenn Rússnesk ćttađir sem vilja ađ austursýslurnar ţrjár Kharkov, Lúgansk og Donétsk verđi verđi sjálfstjórnarhérađ innan Úkraínu en margir vilja líka ađ svćđiđ sameinist Rússlandi. Í öll ţau skifti sem ég hef veriđ í austur Úkraínu ţá hefur ţetta veriđ umtalađ ađ skifta landinu í tvo hluta. Margir vildu fjarlćgja norđur og austurlandamćrin og innlima enn stćrri hluta Úkraínu inn í Rússland. Stjórnin í Kíev vill ekki ađ austursýslurnar sameinist Rússlandi ţví ađ ţar er mesti iđnađur Úkraínu.

Ármann Birgisson, 1.6.2014 kl. 10:42

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband