Færsluflokkur: Utanríkismál/alþjóðamál
Sænska ríkisstjórnin lækkar hagvaxtarspá um meira en helming fyrir 2013
21.12.2012 | 14:36
Anders Borg fjármálaráðherra Svíþjóðar hefur lækkað áætlun um hagvöxt og þjóðarframleiðslu Svía um meira en helming eða frá 2,7% til 1,1% fyrir næsta ár. Dagens Nyheter greinir frá þessu 21. desember. Þá hefur áætlun hagvaxtar fyrir árið 2014 verið lækkuð úr 3,7% niður í 3%, sem ýmsir telja of bjartsýna spá.
Ríkisstjórn Svíþjóðar reiknar með að atvinnuleysi hækki úr 7,7% upp í 8,2% næsta ár og haldi áfram að vaxa árið 2014.
"Það er nokkur mögur ár framundan," sagði Anders Borg á blaðamannafundi. "Endurreisnin verður hæg og rýr. Vinnumarkaðurinn verður magur og veikur þessi ár," sagði Borg.
Samkvæmt fjármálaráðherranum er erfitt að dæma, hversu djúp þessi efnahagslægð verður. Þess vegna kemur til greina að koma með aðgerðir til að hvetja vöxtinn bæði fyrir næsta ár sem og árin 2014 og 2015.
Ríkisstjórnin hefur verið gagnrýnd fyrir að vera of bjartsýn um sænskan efnahag og vanmeta afleiðingar fjármálakreppunnar. Í þessum nýju áætlunum er Anders Borg nálægt öðrum stofnunum eins og Seðlabanka Svíþjóðar sem spáir 1,2% hagvexti næsta ár og 8,1% atvinnuleysi á meðan Efnahagsstofnunin fyrr í vikunni spáði 0,8% hagvöxt og 8,3% atvinnuleysi næsta ár.
Fjármálaráðherrann reiknar með halla á fjárlögum næstu þrjú árin með - 1,3% árið 2013. Ekki er ástæða í augnablikinu að grípa til hvetjandi aðgerða en ríkisstjórnin sænska mun ræða það við fjárlagagerð næsta vor.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 20:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ljósglæta?
19.12.2012 | 10:08

Loksins, loksins, smáljós vonar frá nýja sjálfsaftökustað Íslendinga Alþingi.
Zombístjórn krata og fjárglæframanna hefur breytt Alþingi í forað ólaga samkvæmt reglunni: með ólögum skal landi eyða. Stjórnarandstaðan reynir af veikum mætti að halda uppi lágmarks heiðri elsta lýðræðisstofnunar okkar heimshluta en hefur verið breytt í mínútuþræla samkvæmt nýjum "umræðu"reglum Alþingis.
Ríkisstjórn "jafnaðar"manna (hvar eru konurnar hér frú mín góð?) og Vinstri-Grænna er í sautjánda sinn sprungin á pakkanum. Þetta var þá bara púðurkerling eftir allt saman. Eftir alþjóðlegt fjármálahrun, glæpastörf féflétta, galla peningakerfis og meingalla ESB bankalaga kom fimmta og stærsta plága landsmanna: ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur.
Einkenni þessarar stjórnar hefur verið að ljúga og flækjast fyrir í 80% af verkum sínum. Hanga með í 20%. Þar af leiðandi hefur 80% af skattfé landsmanna farið í súginn á tímabilinu. Og allir uppteknir af að reyna að milda skaðann, sem hefur tekist misjafnlega vel.
Íslenskir "jafnaðar"menn trúa svo illa á sjálfan sig að þeir kunna ekki að segja sannleikann. Þess í stað setja þeir ígang "pakka" og skipa stjórnlagaráð í stað þess að segja hreint út að þeir séu að aðlaga Ísland að aðildarkröfum ESB og breyta þurfi stjórnarskránni til að afsala fullveldi lýðveldisins til búrókratanna í Brussel.
Enn eina ferðina fær Ögmundur Jónasson og hirðfélagar hans í stjórninni "tækifæri" til að láta á reyna lygaorð sín um að "láta kjósa um aðildarferlið". Ögmundur og félagar hans eru fyrir löngu búnir að selja sál sína fyrir ráðherratitilinn. Samfylkingin er fyrir löngu búin að selja þjóðina fyrir eigin draum um að festast á ljósmyndum með elítunni í Brussel.
Þjóðin þarf að rasskella þetta lið í næstu kosningum. Gefa Samfylkingunni aldarlangt frí frá Alþingi, svo fólkið og nýkjörnir foringjar geti endurreist virðingu Alþingis og sess í hjarta þjóðarinnar.
Og haldið áfram uppbyggingu lýðveldisins á grundvelli núverandi stjórnarskrár, sem í fullu hefur sannað gildi sitt á erfiðleikatímum.
Einungis einu atriði þyrfti að breyta:
Bæta við málsgrein um, að ef þjóðin fellir lög sitjandi ríkisstjórnar eins og gerðist í Icesave, þá verður ríkisstjórnin að segja af sér og Alþingiskosningar boðaðar. Samþykki þjóðin lögin, þá verður forseti að segja af sér og nýjar forsetakosningar boðaðar.
Slík regla hefði sparað þjóðinni þrjú makalaus ár af lygum og stanslausum árásum á lýðveldið og grundvallaratvinnuvegi þess.
![]() |
Viðræðurnar verði settar á ís |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 10:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sænskir sósíaldemókratar á móti sambandsríki ESB. Segja hugmynd um fastaher ESB brjóta gegn hlutleysistefnunni.
10.12.2012 | 17:53
Peter Hultqvist fulltrúi sænskra sósíaldemókrata sagði í fréttatíma sænska sjónvarpsins að kvöldi 10. desember, að sænskir sósíaldemókratar væru mótfallnir þróun ESB í sambandsríki. Hann var spurður um afstöðu sósíaldemókrata til uppbyggingu fastahers Evrópusambandsins, þar sem her aðildarríkjanna yrði slegið saman í einn her eins og nú er rætt um. Sænski hershöfðinginn Håkan Syrén hefur lagt þessa hugmynd fram í Svíþjóð. Peter Hultqvist sagði: "Ég sé enga framtíð í því fyrir Evrópu, að her landanna yrði sameinaður í eina skipulagða heild, slíkt gengi beint gegn hlutleysisstefnunni. Þetta er hluti af byggingu sambandsríkis, þar sem allt ESB er á leiðinni að verða að einu sameiginlegu ríki. Flokkur okkar er á móti sambandsríki."
Varnamálaráðherra Svía, Karin Enström, sagði að það væri alls ekki á borðinu að láta fjárframlög Svía til hernaðarmála ganga til ESB og uppbyggingu herafla ESB. "Hins vegar er það mikilvægt að eiga gott samstarf að öðru leyti."
Hugmyndir EU um eigin fastaher er sett fram í kjölfarið á útnefningu ESB til friðarverðlauna Alfred Nóbels. Friðarnefnd Alfreð Nóbels, sem norska Stórþingið skipar, afhenti friðarverðlaunin til ESB fyrr í dag. Í langri lofrullu fór Thorbjörn Jagland hástemmdum rómi um samstarf Frakka og Þjóðverja og þýðingu þess fyrir frið á meginlandi Evrópu vegna starfa innan ESB. (Ekki heyrði ég hann minnast á NATO eða aðkomu þess í friðarsköpun álfunnar).
Það var kaldhæðnislegt, að Jagland minntist á, að friðarverðlaunum Nóbels hefðu á árunum 1926 og 1927 verið skipt á milli Þjóðverja og Frakka. Heimurinn stóð þá eins og nú á barmi efnahagslegs hengiflugs, sem skömmu síðar breyttist í Kreppuna Miklu. 85 árum síðar er heimurinn á ný í sömu stöðu en í enn þá hrikalegri mynd m.a. vegna stjórnmálalegrar tilraunar með sameiginlegan gjaldmiðil, evruna.
Friðarverðlaunin komu hvorki í veg fyrir heimsstyrjöld þá né munu þau gera það núna. Skiptir þá engu hversu mikið Jagland daðrar við ESB eða mörg krókódílstár José Manuel Barroso, framkvæmdastjóri ESB, fellir yfir hungruðum börnum, sem hvorki eru spænsk, portúgölsk, ítölsk, írsk og engan veginn grísk.
![]() |
Sýrland blettur á samvisku heimsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 12.12.2012 kl. 11:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Matsfyrirtækin fara nýjan hring og lækka mat á löndum og bönkum. ESB og USA keyra með núverandi peningastefnu út í skurð. Í ESB er ástæðan evran, heimsvaldadraumurinn og skuldsetning ríkja til að borga óreiðumönnum fyrir afglöp sín og tryggja áframhaldandi afglapastörf. USA er er komið á heljarskuldaþröm og seðlabankar USA og UK dæla trilljörðum dollara og punda út í fjármálafyrirtækin til að halda uppi loftbólu á verðbréfamörkuðum. Seðlabanki ESB gerir sama hlut með því að kaupa ónýt ríkisskuldabréf gjaldþrota evruríkja.
ESB borgaði út um 1.100 miljarða SEK til ýmissa verkefna á síðasta ári. Endurskoðendur sambandsins sjá, að tæp 4% glötuðust í röngum útborgunum. Þá er ekki verið að tala um mat á vafasömum verkefnum eins og styrki til "bænda," sem eru stóreignamenn án búskapar eins og t.d. Göran Persson fv. forsætisráðherra Svíþjóðar né heldur kaup ESB á fisk til að henda á haugana svo fiskverðið "hækki" á mörkuðum. Hér er einungis verið að tala um þær greiðslur, sem við fyrstu einföldu athugun sýna, að rangar upplýsingar hafa vísvitandi verið gefnar upp í styrkjaumsóknum, t.d. að rannsóknarstyrkir hafa verið notaðir til að greiða forstjóranum laun en engar rannsóknir átt sér stað o.s.frv. Á síðustu fimm árum hefur þessi sjáanlegi spillingartoppur verið á milli 3 til 7% árlega. Á árunum 2008 til 2011 glataði ESB 234 miljörðum sænskra króna á þennan hátt og mótsvarar sú upphæð 1,4 ársframleiðslu aðildarríkisins Kýpur eða 2,6 ársframleiðslum Íslands. Og þetta er bara sýnilegi toppurinn á spillingarísjaka ESB.
Endurskoðendur gagnrýna að ESB kannar ekki, hvort peningarnir lendi í réttum höndum. Vitor Caldeira, formaður endurskoðendaréttarins segir, að endurskoðendur hafi í fjöldamörg ár krafist betri vinnubragða.
"Við höfum yfirgnæfandi sannanir fyrir því, að framkvæmdastjórnin og aðildarríkin geti nýtt fjárlög ESB á betri og afkastameiri hátt og skapað meira virði fyrir meðborgara sambandsins."
Í 18 ár hafa endurskoðendur því neitað að setja nöfn sín undir efnahagsreikninga ESB. Engar ríkisstjórnir, fyrirtæki né einstaklingar kæmust upp með slíkt í aðildarríkjum sambandsins.
Búrokratarnir halda samt ótrauðir áfram iðju sinni að afnema fjárhagslegt sjálfstæði aðildrarríkjanna og telja enga aðra en framkvæmdastjórnina geta farið með fjármál sambandsríkisins.
![]() |
Grikkir niður fyrir ruslflokk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
"Kreppan hefur þegar orsakað skaða á við eina heimsstyrjöld"
5.12.2012 | 10:08

"Fjármálakreppan hefur þegar orsakað efnahagsskaða á við eina heimsstyrjöld og verðið þurfa barnabörnin okkar líka að borga" segir Andy Haldane, einn av æðstu yfirmönnum breska seðlabankans, Bank of England, í nýlegu viðtali við BBC.
"Ef horft er á tekjur og framleiðslu er staðan jafnalvarleg og eftir eina heimsstyrjöld. Það væri furðulegt, ef fólk spyrði ekki um, hvað hefði mistekist í fjármálageiranum," segir Haldane.
Fjórum árum eftir að fjármálakreppan braust út er breskur efnahagur enn 3% minni en þegar hann var á toppnum.
"Ef við erum lánsöm greiða börnin okkar verðið fyrir kreppuna en það er líklegt að barnabörnin okkar þurfi að borga líka. Það er öll ástæða fyrir almenning að æsa sig mjög yfir því, sem hefur gerst - og reiðast," sagði Haldane skv. The Telegraph.
Seinna í dag mun fjármálaráðherra Bretlands, George Osborne, gefa skýrslu um ástandið, sem er mjög dökkt. Haldane telur að bankarnir séu hindrun í vegi snöggs bata í efnahagskerfinu. Efasemdir eru mjög útbreiddar um að bankarnir hafi verið fullkomlega heiðarlegir í útskýringum sínum um umfang slæmra útlána og á meðan efinn gegn bönkunum er til staðar getur fjármagnskerfið ekki virkað sem skyldi.
Fjárfestar eru ekki eins viljugir að hafa peningana í bankanum. Annað hvort krefjast þeir hærri vaxta til að lána út til bankans eða þeir taka einfaldlega út peningana sína.
Haldane meinar, að mikilvægasta spurningin fyrir breskan efnahag er að auka traustið á bönkunum.
"Meira þarf að gera til að koma útlánastarfsemi í gang og rétta við efnahaginn," segir Haldane, sem enn finnst laun bankastjóra of hátt.
"Mér finnst að launin megi falla enn frekar."
Byggt á DI og Telegraph.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 11:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Blairbakterían á undanhaldi. Bretar þurfa ekki lengur að samþykkja nein ESB-"örlög"
28.11.2012 | 20:41
Tony Blair hefur fengið að heyra mörg nöfn allt frá manninum með colgate brosið til Blöööör. Núna þegar hann skortir öll rök gegn þeim, sem er á móti evrunni, kallar hann þá fyrir "vírus" og segir, að Bretland verði að samþykkja ESB-"örlög" sín.
Fyrri forsætisráðherrann sagði, að aukin andstaða og umræður gegn evrunn á breska þinginu væri "eins konar vírus" og að þingmenn tækju afstöðu í ESB-málum "til að festa hann i sessi."
Í ræðu hjá erlendri viðskiptahugveitu í London sagði Blair:
"Evrópa eru örlög sem aldrei verður auðvelt að faðma. Það yrðu hrapaleg mistök ríkisstarfsmanna að snúa baki við þeim og hverfa frá afgerandi valda- og áhrifastöðu á 21. öld."
Þá vitum við það. Þegar rökin duga ekki lengur gegn andstæðingum evrunnar, þá er bara að kalla þá fyrir "vírus" og að menn eigi að sætta sig við "ESB-örlögin."
Greinilega er Blairbakterían á undanhaldi.
Byggt á Daily Express
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 20:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
ESB platar fátæk strandríki að selja fiskimið sín.
24.11.2012 | 22:43
Isabella Lövin, Evrópuþingmaður Græna Umhverfisflokksins í Svíþjóð og meðlimur í fiskveiðinefnd Evrópusambandsins skrifar grein í DN 22. nóvember um fiskveiðistefnu ESB. Hún skrifaði bókina Þögult Haf 2007 um veiði síðasta matarfisksins, þar sem hún lýsir því, hvernig styrkjakerfi ESB, lobbýhópar útgerða og ríkisstyrkt ofveiði er að útrýma matarfiski hafsins.
"Meira en annar hver fiskur, sem er borðaður í ESB í dag er innfluttur. Það er sorgleg niðurstaða skipbrota sjávarútvegsstefnu, sem um áratugi hefur tæmt eigin fiskimið Evrópu á fiski. En eiginafkomustaðan í Evrópu í dag er í raun og veru miklu minni. Fjórðungur þess fisks, sem er skilgreindur sem ESB fiskur, er veiddur af skipum ESB á öðrum fiskimiðum en eru í lögsögu ESB. Fiskurinn getur komið frá Vestur-Afríku, Indlandshafi eða Kyrrahafi.
Þessi veiði er núna niðurgreidd af skattgreiðendum ESB með fiskisamningum, sem ESB gerir við lönd þriðja heimsins. Um tuttugu slíkir samningar eru í gildi í dag. Fyrir utan þessa opinberu samninga eru í gangi fjöldinn allur af einkasamningum milli fyrirtækja ESB og strandríkja þróunarlanda. ESB er í dag stærsti fiskineytendamarkaður heims á undan Japan og USA."
Isabella skrifar í grein sinni, að sérstakur skýrslumaður Sameinuðu Þjóðanna um matvælaöryggi og rétt til matar, Olivier De Schutter, hafi í nýlegri skýrslu bent á, að stöðugt aukin eftirspurn á fiski og stóriðjutogarar ríku landanna séu "alvarleg ógnun við matvælaöryggi fátækra landa."
"Þegar ESB gerði samning við Senegal 2005 þá gerðu samtímis mörg einkafyrirtæki samning við þáverandi ríkisstjórn Senegal. Þetta jók mjög álögur á fiskistofna fyrir senegalíska samfélagið. Þar að auki voru samningarnir ekki opinberir og þar með engar upplýsingar um þær fjárhæðir, sem greiddar voru." Þessu hefur Græni hópurinn á Evrópuþinginu reynt að breyta að sögn Isabellu. "Vegna krafna Evrópuþingsins er nýr fiskveiðisamningur við Mauretaníu meira haldbær. Fiskiskip ESB mega aðeins veiða utanvið 20 sjómílur og ekki veiða kolkrabba, sem heimasjómenn nytja ásamt stórhækkuðum fiskveiðigjöldum.
Fiskiðnaðurinn mótmælir þessu harðlega og neitar að fylgja samningnum þar sem veiðarnar eru ekki taldir arðbærar. Sem beinir kastljósi á málið: ef flotinn getur ekki grætt á haldbærum veiðum, þá verða þeir að leggja starfsemina niður. Ef ESB hefði aftur á móti ekki verið með samning, þá hefðu þeir getað haldið áfram veiðum með mismunandi einkasamningum."
Isabella Lövin segir frá umræðu og komandi atkvæðagreiðslu Evrópuþingsins um málið, sem hún telur að muni minnka ránveiðar ESB og annarra á fjarlægum miðum og gera ESB ábyrgðarmeira (lesist valdameira/GS):
1. Floti ESB á einungis að fá að stunda fiskveiðar á framandi miðum, þar sem vísindalegar niðurstöður liggja fyrir um stærð fiskistofna, sem duga umfram þarfir heimamanna strandríkja.
2. Styrkir verði aðskildir frá fiskveiðisamningum. Ekki má plata fátæk lönd að selja burt fiskimið sín til að fá hærri styrki. Ekki má skilyrða styrki frá ESB til að fá aðgang að fiskimiðum heimamanna.
3. Útgerðin skal sjálf borga fyrir veiðileyfi í stað skattgreiðenda.
4. ESB á bara að gera samninga við lýðræðisleg ríki.
5. Engar útgerðir mega gera einkasamning við ríki, sem ESB er með samning við. Ekki má breyta fánum skipa t.d. frá ESB fána yfir í annan, þegar það hentar.
6. Harðara eftirlit með einkasamningum. Fyrirtæki í ESB eru með 321 fiskveiðiskip undir fánum 24 ríkja og veiða framhjá samningum ESB.
Hér kemur skýrt fram hjá Isabellu, að ESB eitt má gera samninga við erlend ríki og vill uppræta einkasamninga fiskveiðifyrirtækja sambandsríkjanna með samningum, sem gerir ómögulegt að halda úti útgerðarstarfsemi einkafyrirtækja. Búrókratarnir vilja því kenna einkafyrirtækjum um afleiðingar vonlausrar sjávarútvegsstefnu sambandsins, sem leitt hefur til tæmingar matarfisks úr höfum ESB og núna á miðum fjarlægra landa. Greinilega er ætlun ESB, að einungis viðurkennd útgerðafélög fái að sitja í náðinni og veiða skv. samningum sem búrókratarnir gera. Með þessu skipulagi er allur frjáls rekstur útgerðafyrirtækja sambandsríkjanna settur úr leik og einungis risafyrirtækjum gert kleift að lifa í samvinnu við ESB og styrkjakerfi sambandsins.
Þetta er sama stefnan og ESB sýnir í makríldeilunni, að enginn má semja nema ESB sjálft. Skilyrði útgerða ESB er: gerðu það sem búrókratarnir segja eða hættu starfsemi í greininni. Það sama gildir fyrir Ísland og íslensk sjávarútvegsfyrirtæki. Eyðileggja á farsælan atvinnuveg, svo ESB geti þótzt vera umhverfisvænt.
Hversu mikið sem græningjar og aðrir tala réttilega um útrýmingarhættu fiskistofna, þá er framkvæmdin núll við varðveislu þeirra í raunveruleikanum. T.d. hefur sjávarútvegsstefnan leitt til ómannúðlegra hákarlaveiða, sem sænska sjónvarpið sagði frá nýlega. Þar veiða aðallega spánskir og portúgalskir sjómenn hákarl vegna verðmæta í uggum og sporði, sem selt er á Asíumarkaði sem fjörlyf fyrir góðan pening. Vesalings hákarlinn er verkaður lifandi, skornir af uggar og sporður og lifandi kroppnum hent aftur í sjóinn, því ekkert fæst fyrir hann. Eru margar hákarlategundir í útrýmingarhættu af þessum sökum.
![]() |
Kvartaði yfir seinagangi ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 25.11.2012 kl. 00:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
EUSA: Barack Obama sundrar Bandaríkjunum.....og heiminum
21.11.2012 | 08:02

Það má hafa verið góður sigur fyrir alla þá, sem styðja fjölþætt samfélög með fólk af hinum ýmsum uppruna, að fá fyrsta litaða forsetann í Hvíta Húsið. Það er bæði söguleg stund og mikill árangur og því til mikils að vinna, að sú persóna, sem gegnir þessu þýðingarmikla leiðtogahlutverki, geti skapað virðingu fyrir baráttu stórra þjóðfélagshópa fyrir sömu lífsmöguleikum burtséð frá uppruna eða litarhætti.
En Barack Obama mun ekki ganga til sögunnar, sem leiðtoginn, sem hélt uppi heiðri Bandaríkjanna og sameinaði sundurleita hópa undir fána Bandaríkjanna. Í staðinn bendir allt til, að hann skilji eftir sviðna jörð sundurlyndis, spillingar og efnahagshruns, sem grefur undan áliti Bandaríkjanna heima fyrir og erlendis. Breytt afstaða Bandaríkjanna í utanríkismálum hefur komið út sem merki til öfgaafla í heiminum að núna sé frítt fram að herja, því Bandaríkin munu ekki aðhafast neitt. Þannig leið ekki langur tími, þar til Hamas prófaði, hvort ekki væri í lagi að skjóta sprengjum á Ísrael. Niðurskurður á her Bandaríkjanna er slíkur, að fjöldi hershöfðingja hafa sagt upp störfum í mótmælaskyni. Obama hefur aukið svo á sundrungu landsmanna, að hafnar eru undirskriftir á heimasíðu Hvíta Hússins um að einstök fylki Bandaríkjanna segi sig úr Bandaríkjunum og verði eigin sjálfstæð ríki. Er undirskriftarsöfnun hafin fyrir um 40 fylki og tæplega 10 fylki komin með þau 25 þúsund nöfn, sem þarf til þess að málið verði sett á dagskrá Hvíta Hússins.
Á ferðalögum sínum og samtölum við þjóðarleiðtoga heimsins hefur Bandaríkjaforseti talað niður Bandaríkin. Obama fer ekki nákvæmt með efnahagslegar staðreyndir, heldur kennir pólitískum andstæðingum um allt, sem miður fer. Skuldaaukning Bandaríkjamanna tók mikið stökk undir fyrstu fjórum árum forsetans og nú er svo komið, að Bandaríkin verða gjaldþrota í janúar 2013 ef ekki næst samkomulag milli repúblikana og demókrata um niðurskurðaráætlun á útgjöldum ríkisins og hækkun skatta á Bandaríkjamönnum. Líkur eru á, að matsfyrirtækin lækki stöðu landsins enn frekar.
Margar sögur eru í gangi um lífsstíl forsetans og sagt, að enginn forseti hafi áður eytt jafnmiklum tíma í sumarfrí, golfleiki og skemmtanir og Barack Obama. Hann hefur notið stuðnings fjölmiðlafólks og Hollywoodstjarna og virðist vera meira í mun að sjást í skemmtiþáttum sjónvarpsstöðva en vinna við forsetastörf. Þannig liggur forsetinn undir gagnrýni um aðgerðarleysi við árásina og morðin á sendiherra og starfsmönnum Bandaríkjanna í Benghazhi. Fullyrt er, að forsetinn hafi sýnt meiri áhuga á að mæta í sjónvarpsviðtal í Las Vegas en verja þegna sína og er þetta mál þungur myllusteinn um háls forsetans.
Faðir eins hinna myrtu í Benghazhi, Woods, lýsti stuttum kynnum sínum við Barack Obama:
"Að taka í höndina á honum var í sannleika sagt eins og að taka í hendina á dauðum fisk. Andlit hans snéri að mér en hann vildi ekki horfa í augun á mér heldur horfði yfir öxlina á mér."
Mikið er rætt um, að forsetinn lét innsigla gögn um skólagöngu sína og vegabréfaumsóknir og hefur almenningur enga aðkomu að þeim. Kostaði það fé, svo getgátur eru uppi um, hvað forsetinn sé að reyna að dylja með þessu. Það bætir ekki úr skák, að forsetinn hunsaði tilboð frumkvöðulsins Donald Trumps, sem bauðst til að gefa 5 miljónir dollara til líknarmála, ef forsetinn opinberaði gögnin.
Því miður aukast líkurnar á ófriði í heiminum og hruni fjármálamarkaða með Barack Obama í Hvíta Húsinu. Í Evrópu gengur þríeykið hart að evrulöndum í Suður-Evrópu, sem núna ramba á barmi gjaldþrots. Má kalla ástandið Nýkreppuna Miklu. Margir Bandaríkjamenn eru reiðir forsetanum fyrir að líta upp til ESB og vilja innleiða "velferðararkerfi" þaðan, þegar mörg ríki þar horfa ofan í hyldýpið. Litið til Mið-Austurlanda, verður Ísrael núna meira og minna að treysta á eigin kraft í gjörbreyttu landslagi eftir arabíska vorið. Ekki er víst, að nýir ráðamenn í Egyptalandi og fleiri löndum sitji aðgerðarlausir heldur gangi í lið með hryðjuverkasamtökum Hamas. Styrjöldin í Sýrlandi gæti breiðst út og breytt öllu svæðinu í blóðugan bardagavöll með mikilli áhættu á frekari útbreiðslu, þar sem Kína, Íran og Sovétríkin styðja öll ríkisstjórn Sýrlands.
Með Obama í Hvíta Húsinu þora öfgaöflin að ganga lengra. Það sýndi sig í Líbíu í fyrsta skipti í manna minni, að hermönnum var bannað að aðstoða eigin diplómata í lífshættu. Einungis klukkutímaflug var fyrir herflugvélar að komast til Benghazhi og enginn fær nokkru sinni að vita, hvort slíkt hefði getað bjargað lífum Bandaríkjamannanna þar.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 23.11.2012 kl. 09:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gott að sjá kraftinn í Heimssýn - fullveldið tryggir framtíð Íslands
15.11.2012 | 22:14
Það er ánægjulegt að sjá hið málefnalega blað Heimssýnar, sem dreift var með Mbl. fyrir stuttu. Það, sem vekur sérstaklega góða tilfinningu er krafturinn í samstöðu þjóðarannar á bak við afturköllun aðildarumsóknar Íslands að ESB.
Fundarherferð Heimssýnar um landið er án efa mjög þörf og þar sýnir sig, að afstaða þjóðarinnar er þverpólitísk á alla flokka. Einungis Samfylkingin er hreinræktaður ESB flokkur.
Hinir hafa allir lagt eyrað að jörðinni og heyrt hjartslátt þjóðarinnar í þessu stóra máli.
Það er ekki bara framtíðarskipulag ESB, sem er í húfi, heldur í raun allt peningakerfi hins vestræna heims. Ég hef ekki náð að lesa allt blaðið en grein Frosta Sigurjónssonar er ég búinn að lesa og mæli með að aðrir geri það líka.
Frosti Sigurjónsson er landsmönnum að góðu kunnur í baráttunni gegn Icesave og núna, sem sá frumkvöðull hann er, í baráttunni fyrir umbótum á peningakerfinu m.a. í samtökum Betra Peningakerfi. Hann hefur haldið fjölmarga fyrirlestra á stjórnmálafundum, fundum ýmissa samtaka og stofnana og verið tíður gestur í útvarps- og sjónvarpsþáttum við að útskýra þá stefnu peningamála, sem byggist á s.k. heildarforðakerfi í stað núverandi brotaforðakerfi.
Í stuttu máli má segja að heildarbrotakerfi þýðir að til sé innistæða fyrir útlánum banka í stað núverandi kerfis með aðeins broti af innistæðum á móti útlánum banka. Vegna núverandi kerfis, þegar bankarnir hafa spennt útlánabogann út um allar jarðir yfir þolmörk, þá eru ekki lengur til peningar til að borga vexti og afborganir af öllum lánunum einfaldlega vegna þess, að brotaforði útgefinna seðla og myntar dugir ekki til. Þá hefur verið gripið til þess ráðs bæði í USA, Bretlandi og núna í ESB að dæla inn nýju fjármagni til bankakerfisins, sem skuldfært er í ríkisskuldabréfum viðkomandi ríkja. En því miður hafa bankarnir í ríkari mæli notað peningana til að viðhalda verðbréfamarkaðsbólu í stað eðlilegrar inngjafar í viðskipta- og efnahagslífið á sama tíma og stjórnmálamenn keppast við að hækka skatta og skera niður þjónustu.
Sú stefna leiðir einungis til þeirra sjálfheldu, sem við sjáum mörg ríki ESB - aðallega evruríkin í Suður Evrópou - vera komin í og hefur skapað óhaldbæra þjóðfélagslega spennu með vaxandi líkum á þjóðfélagsátökum. Virðist sem sagan sé að endurtaka sig frá kreppunni miklu fyrir stríð, þegar sömu mistökin að blanda saman peningaframleiðslu og skuldum eru endurtekin.
Frosti Sigurjónsson er rekstrarhagfræðingur og frumkvöðull. Ég hef sjálfur notað leitarvélina hans dohop.com sem er einhver sú besta ferðaleitunarvél, sem finnst á Internet. Hann hefur mjög málefnalega og grundaða framsetningu á kostum þess að innleiða betra peningakerfi á Íslandi og stjórnmálaöflin eru að vakna til vitundar að eitthvað nýtt verður að koma til svo sagan endurtaki sig ekki með útrásarvíkingana, sem notuðu bankana til að byggja upp 10 sinnum stærri skuldabólu en mótsvarar efnahagsstærð þjóðarinnar. Til dæmis hefur Lilja Mósesdóttir, Samstöðu, lagt fram frumvarp á Alþingi um heildarforðakerfi.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 22:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
"Skuldum heimilanna aflétt. Kreppunni lokið á Íslandi."
15.11.2012 | 07:35

Sænska Metró er dreift ókeypis á lestarstöðvar í helstu borgum Svíþjóðar í yfir hálfri miljónum eintaka á dag. Blaðið hefur mikla útbreiðslu, þar sem farþegar t.d. neðanjarðalestakerfis Stokkhólms lesa það á ferðum sínum. Þriðjudaginn 13. nóv. skrifar Arne Bengtsson hjá Utanríkispólitísku stofnuninni grein um, að Ísland hafi reist sig úr öskunni. Boðskapurinn er:
"Atvinnuleysið minnkar, kaupmátturinn eykst og skuldum heimila hefur verið aflétt á Íslandi."
Vitnað er í hagfræðiprófessor Gylfa Zoega, sem staðfestir að "kreppunni sé opinberlega lokið á Íslandi", þrátt fyrir að lífskjörin séu enn ekki alveg eins góð og þau voru árið 2007.
Sagt er frá, hvernig neyðarlán AGS og Norðurlöndum, fengust með skilyrðum um niðurskurð, en að ríkisstjórnin hafi gengið gegn því og aukið félagslegar tryggingarbætur og aðstoð árin 2009 og 2010. Að stórar fjárhæðir hafi gengið til að aðstoða skuldara, sem ekki gátu borgað lánin sín. Þess vegna hafi skattahækkanir verið nauðsynlegar, mest sé lagt á efnameiri meðan efnaminni sleppi með minnstu byrðina.
Rætt er um útbreidd skattsvik hjá fyrirtækjarekendum og þeirra, sem leigja ferðamönnum herbergi, þannig að ríkisstjórnin hafi meira að sækja í skattatekjur. Að ríkisstjórnin hafi nú komið efnahagsmálunum í þvílíkt gott ásigkomulag, að Ísland borgar af AGS-lánum sínum fyrirfram.
Hagsmunir heimilinna hvað?
![]() |
Vandi okkar er mikill |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 08:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)