Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Einfaldara að ganga úr Schengen en handtaka 72% landsmanna
3.6.2025 | 04:51
Morgunblaðið greinir frá niðurstöðum skoðanakönnunar Maskínu um afstöðu landsmanna til flóttamanna. Mikill meirihluti landsmanna, eða 61%, telur að fjöldi flóttafólks sem fær hæli á Íslandi sé of mikill. Enn fleiri eru á því að kostnaður við komu flóttafólks sé of mikill, en flestir, eða 72%, segja að mörg vandamál fylgi komu flóttafólks sem fær hæli á Íslandi.
Um helgina safnaðist saman hópur Þvert á alla flokka á Austurvelli til að andmæla innflytjendastefnu stjórnvalda og kröfðust að stjórnvöld gripu í taumana áður en allt fer úr böndunum, nú er komið nóg. Höfðu fundarmenn með sér íslenska fánann sem setti fallegan blæ á Austurvöll og minnti alla viðkomandi á hvað þeir eru: Íslendingar.
Ása Berglind Hjálmarsdóttir. þingmaður Samfylkingarinnar, skrifar í grein í Vísi að íslenski fáninn sé ekki fáni fundarmanna, vegna þess að þeir séu rasistar" og að ekki sé hægt að taka mark á hræddu fólki sem fær útrás fyrir ótta sinn með mannfjandsamlegum málflutningi." Segir hún fólk sem mótmælir stefnu stjórnvalda í innflytjendamálum óvirða þjóðfánann" og vitnar í lög um þjóðfánann máli sínu til stuðnings. Þessa útskýringu byggir hún á því að ræðumenn á fundinum ali á kynþáttamisrétti."
Slagorðið Áfram Ísland! fer greinilega í taugarnar á Ásu Berglind enda er það þveröfugt slagorði Samfylkingarinnar og Viðreisnar Afturábak Ísland! Valkyrjurnar eru að rústa grundvallaratvinnuvegum landsmanna og vinna í reynd sem amtstjórar ESB á Íslandi, þær telja þjóðfánann vera sinn eða ríkisins eingöngu. Fáni ríkisstjórnarinnar er fáni ESB sem Ása og aðrir þingmenn Samfylkingarinnar ætla að flagga á opinberum fánastöngum á Íslandi.
Til að ráða bug á öllu þessu kynþáttamisrétti geta Ása Berglind og Samfylkingin fengið njósnara S78 í lið með sér og myndað ljósmyndaher til að taka myndir af öllum rasistunum sem birtast á götum Reykjavíkur og annarra bæja 17. júní. Í kjölfarið geta þau síðan kært og fangelsað þau 72% landsmanna sem telja að vandamál fylgi innflytjendum samkvæmt Maskínu.
Í hnotskurn dreymir Ásu um að banna stjórnarandstæðingum að halda opinbera fundi. Hún vill banna umræðu um þau vandamál sem fylgja stjórnlausum innflutningi sem hún kallar mannfjandsamlegan málflutning" sem eru önnur orð yfir hatursumræðu. Í staðinn fyrir að fangelsa 72% þjóðarinnar er mun einfaldara að segja Ísland úr Schengen svo við fáum aftur stjórn á eigin landamærum. En á það má ekki heyra minnst, af því að ESB vill hafa Schengen og bannar þjóðinni að stjórna eigin málum.
Málflutningur Ásu minnir á geðsjúklinginn sem féll á prófinu þegar hán var beðið um að stoppa opinn vatnskrana og hán jós vatni úr baðkarinu í staðinn fyrir að skrúfa fyrir kranann. Annað nærtækt dæmi eru hánin á Bakka sem báru sólarljós inn í stofu í fötum og sturtuðu því á gólfið. Nútíma Bakkasaga er að sjálfsögðu kynsegin að hætti Samfylkingarinnar þar sem hvorki má segja systur né bróður og því talað um Bakkahána sem bakka aftur á bak á samfélagsbakkanum eins og ríkisstjórnin gerir.
![]() |
Meira en 60% telja of marga fá hér hæli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 04:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Trump var ekki tilkynnt um árásina fyrirfram en Graham var í Úkraínu
2.6.2025 | 06:26
Úkraínskir drónar eyðilögu á sunnudag að sögn Zelenský 36% af öllum rússneskum herflugvélum. Tjónið er talið nema 2 milljörðum dollara. Volodymyr Zelensky tilkynnti að 117 drónar hefðu verið notaðir í árásinni innan Rússlands sem eyddi tugum kjarnorkusprengjuflugvéla og annarra flugvéla.
Trump forseti var ekki tilkynnt um árásina fyrir fram, svo hann fengi ekki tækifæri til stöðva hana, þar sem hann vill frið. Hnattræningjar vilja heimsstyrjöld og eyðileggingu Rússlands.
Öldungadeildarþingmaðurinn Lindsey Graham, sem var í Úkraínu fyrir tveimur dögum, fagnaði fréttunum af árásinni á sunnudag. Graham var í Úkraínu tveimur dögum áður en árásin var gerð. Vissi hann af henni fyrir fram?
Þessi sögulega árás á sér stað aðeins einum degi áður en friðarviðræður eiga að hefjast aftur í Tyrklandi í dag 2. júní. Árásin var mjög ítarleg og hefði varla getað átt sér stað án aðstoðar Vesturlanda og líklega Bandaríkjanna.
Árásirnar áttu sér stað 1.800-4.000 kílómetra innan landamæra Rússlands. Árásardrónarnir flugu frá vörubílum í Rússlandi.
Á rússneska Telegram reikningi Slavyangrad má lesa að:
Alþjóðlegum degi barna hafi verið breytt í sigurdag hryðjuverka með drónaárásum á herflugvelli í Murmansk, Irkutsk, Ivanovo, Ryazan og Amur héruðum...Drónum var skotið á loft úr vörubílum sem keyrt var nálægt herflugvöllum."
Greinarhöfundur telur ólíklegt að drónunum hafi verið smyglað til Rússlands. Hann telur að þeir hafi verið búnir til með þrívíddarprentara í Rússlandi og síðan hlaðnir sprengjum. Slíkt hafi áður verið gert til dæmis í Sýrlandi. Hann telur einnig að Vesturlönd hafi aðstoðað við árásina með gervihnöttum og nákvæmum hnitum skotmarkanna:
Drónarnir voru faldir á yfirráðasvæði okkar í gámum sem voru settir á vörubíla og síðan opnaðir með fjarstýringu - og drónarnir flugu að skotmarkinu."
Árásin kemur degi fyrir nýjan fund sendinefnda Rússlands og Úkraínu í Istanbúl í dag. Spurning er hvort Rússar mæti eftir slíka árás. Ljóst er að enginn friðarvilji er til staðar í Úkraínu og hjá ESB og stofnaðilum Nató eins og Íslandi. Rússar munu eflaust svara af fullum krafti. Áður en það gerist getur íslenska ríkisstjórnin skálað í kampavíni yfir vel heppnaðri árás allt að 4000 km inni í Rússlandi.
Valkyrjurnar og Graham geta fagnað því að heimurinn er komin einu skrefi nær ragnarökum mannkyns í komandi kjarnorkustyrjöld.
![]() |
Telur Rússland gera árás á NATO-ríki á næstu árum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Appelsínuguli kallinn er vondur
1.6.2025 | 07:34
Jón Atli Benediktsson, fráfarandi rektor Háskóla Íslands, fellir krókódílatár yfir ákvörðunum Donalds Trump Bandaríkjaforseta gagnvart háskólum í Bandaríkjunum sem veki ugg innan íslenska háskólasamfélagsins án þess að útskýra með neinum rökum eða staðreyndum hvað Trump er að gera, eða um hvað málið snýst annað en að Trump sé að veitast að sjálfstæði háskóla og akademísku frelsi. Hægt hefði verið að spara lesendum Morgunblaðsins tíma frá því að lesa þetta þvaður með því að hafa viðtalið í einni setningu: Trump er vondur maður" eða eins og Trumphatarar segja fyrir vestan: Appelsínuguli kallinn er vondur."
Að mennt sé máttur er fyrir löngu orðið úrelt, þegar stuðningsmönnum Hamas er leyft að valsa um, slá upp tjaldbúðum og stunda daglegar árásir gagnvart gyðingum. Þegar háskólum er breytt í herbúðir vinstri aðgerðasinna í stað þess að kenna staðreyndir og vinna að þróun framleiðslugreina. Þegar akademían rís upp á afturlappirnar, breytir háskólanum í utanríkisráðuneyti og kennir Ísrael um árásir Hamas. Hámark frelsis akademíunnar fékkst í Þýskalandi á dögum Marx og Engels og allir vita hvert þau marxísku fræði hafa farið með heiminn og fara enn með heiminn. Það er engin ástæða til að vera að þvinga skattgreiðendur til að borga öðrum fyrir frelsi til að skapa öfl sem vinna að niðurrifi hinns frjálsa samfélags.
Hér koma nokkrar staðreyndir um hvað Bandaríkjastórn og Trump forseti eru að glíma við varðandi akademíuna. Byrjum á Harvard.
Hvaða kröfum Trumps hafnaði Harvard?
Í bréfi til Harvard háskóla setti stjórn Trumps fram eftirfarandi kröfur:
- Breyta stjórnarháttum til að draga úr völdum nemenda, kennara og stjórnsýslu sem leggja frekar áherslu á að vera aðgerðasinnar en að stunda fræðimennsku.
- Að hætt verði að taka tillit til kynþáttar, litarháttar, trúarbragða, kyns eða þjóðernis við starfsmannaráðningar og fara yfir núverandi kennara til að finna þá einstaklinga sem nota ritstuld í stað sjálfstæðra fræðistarfa. Einnig að hætt verði svipuðum sjónarmiðum í inntökuferlinu.
- Breyta inntökuferlum til að koma í veg fyrir að nemendur séu fjandsamlegir bandarískum gildum og stofnunum sem eru skráðar í stjórnarskrá Bandaríkjanna og sjálfstæðisyfirlýsingu Bandaríkjanna.
- Fá utanaðkomandi aðila sem alríkisstjórnin hefur samþykkt til að endurskoða hópa innan skólans með tilliti til fjölbreyttra hugmyndafræðilegra sjónarmiða.
- Fá utanaðkomandi aðila sem alríkisstjórnin hefur samþykkt til að endurskoða námsbrautir, námskeið og deildir sem kynda undir gyðingahatur eða endurspegla hugmyndafræðilega yfirtöku.
- Stöðva allar DEI-áætlanir innan skólans (DEI, diversity, equity, inclusion stendur fyrir fjölmenningu, réttlætingu og inngildingu).
- Uppfæra agastefnu nemenda þegar hún er ófullnægjandi til að koma í veg fyrir truflun á námsárangri, námi og kennslu í kennslustofu eða öðrum þáttum eðlilegs háskólalífs. Þessi krafa felur einnig í sér bann á andlitsgrímum.
- Koma á ferli þar sem allir tengdir Harvard-aðilar geta tilkynnt brot á reglum til háskólastjórnenda og alríkisstjórnarinnar.
Dæmið að ofan varðar Harvard háskólann en háskólarnir í Princeton, Brown, Cornell, Northwestern og Columia hafa einnig fengið athugasemdir Bandaríkjastjórnar.
Málið er að þegar þetta heilaga akademíska frelsið hans Jóns er nýtt til að æsa til byltingar gegn þeim sem greiða háskólunum fé fyrir störf sín, þá er háskólinn sjálfur farinn að vinna gegn þeim gildum sem hið frjálsa samfélag stendur fyrir og verður að verja sig gegn.
Þess vegna má vísa þessu blaðri fyrrverandi háskólarektors til heimahúsanna, sem einnig er staðfesting á því hvernig akademían notar frelsið til að færa umheiminn langt burt frá öllum staðreyndum.
![]() |
Trump vekur ugg innan íslenska háskólasamfélagsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Vert að vera Íslendingur eftir lestur Reykjavíkurbréfs Morgunblaðsins
31.5.2025 | 08:46
Í því vandræðafári sem ríkisstjórn Íslands skapar með gjörðum sínum virðist vókað náttmyrkrið leggjast eins og þungt lömunarteppi yfir landsmenn. Við slíkar kringumstæður aukast raddir margra að flýja land og bólfesta sig á Norðurlöndum eða í suðri til dæmis á Spáni. Ég játa að ég varð mjög undrandi á þeirri tilfinningu sem ég fékk fyrir nokkrum árum í fyrsta skipti, hvað ég var feginn þegar flugvélin lyfti frá Keflavíkurflugvelli og ég var að fara frá minni ástkæru fósturjörð heim til Svíþjóðar. Áður var það alltaf tilhlökkunarefni að fara til ástkæra Fróns og söknuður við brottför. Af öllum löndum er Ísland trúlega versta land fyrir Íslending að vera ferðamaður í. Maður er og verður útlendingur í stórborginni" Reykjavík, sem er alls ekki sú sama sem ég ólst upp í sem barn. Ekki er hægt að fara út í búð lengur og kaupa skyr og rjóma án þess að vera spurður: Do you speak English? Að þessu leyti eru einnig margir Íslendingar búsettir í landinu orðnir að útkjálkaþjóð ferðamannaiðnaðarins.
Ég elska Reykjavíkurbréf Morgunblaðsins. Lífsgleði bréfahöfundar og stjórnmálaskerpa smitar út frá sér, þannig að jafnvel draugateppi Evrópusambandsstjórnar lýðveldisins virðist hjómið eitt og von um betri hlutskipti landsmanna í framtíðinni. Hér eru nokkur dæmi:
Eina stóra verkefnið, sem hún (ríkisstjórnin) leggur mestan metnað sinn í, virðist vera að leggja til atlögu við einn þýðingarmesta atvinnuþátt þjóðarinnar, og virðist hún helst hafa það á móti honum að hann gangi of vel, að minnsta kosti fyrir fýlupoka."
Annar flokkurinn af tveimur valdaflokkunum, sem glotta við tönn, virðist raunar hafa misskilið verkefni sín að verulegu leyti, þegar sá taldi að titillinn utanríkisráðherra fæli einkum í sér að halda sig sem allra lengst og oftast utan ríkis og fleygja þar fjármunum eins og enginn væri morgundagurinn."
Ef íslenski utanríkisráðherrann telur sig hafa sterk spil á sinni hendi gæti hann þess vegna spilað þeim út, við fyrsta góða tækifærið. Gárungarnir væru vísir til að segja að réttast væri að ráðherrann tæki upp þétt samstarf við íslenska Hjálpræðisherinn."
En þetta sýndi þó allt, rétt eins og viðbrögð utanríkisráðherrans gerðu, að samstarf ráðherrans og 30 kommissara, sem sáust ganga framhjá, væri öflugt og sterkt og alls ekki útilokað að utanríkisráðherrann fengi sendan reikning frá Brussel upp á 50 milljónir evra, sem sýndi þá enn og aftur að vinsemd kommissaranna í Brussel til Íslands væru engin takmörk sett."
Gleymum því aldrei að það var vegna atbeina Davíðs Oddssonar Seðlabankastjóra að Íslendingar gátu notað krítarkortin sín, þegar ríkisstjórn Gordon Browns var svo elskuleg að lýsa íslenska lýðveldið hryðjuverkaríki á opinberum fjármálaskiltum heims og allar leiðir lokuðust.
Gleymum því ekki að það voru ráð stjórnmálaforingjans Davíðs Oddssonar að fara dómstólaleiðina sem bjargaði þjóðinni í Icesavedeilunni þvert á markmið krata og ESB sem horfðu á úr forsætisráðherrastúkunni og ætluðu að hlæja að óförum Íslands en fóru sjálf grátandi heim.
Gleymum því ekki að Davíð Oddsson Seðlabankastjóri varaði við komandi fjármálakreppu í langan tíma áður en fjármálafárviðrið skall á en kratar og kommar völdu að virða orð hans að vettugi og svæla hann með stjórnarskrárbroti úr löglegu embætti og allir vita hvernig fór.
Mun íslenska þjóðin muna eftir þeim löðrungi eftir þúsund ár?
Jólasveinaskýrslan
30.5.2025 | 07:55
Á miðvikudag birti Morgunblaðið grein eftir mig: Jólasveinar Evrópusambandsins sem var svar mitt við grein Gunnars Hökmarks og Patrik Oksanen í Mbl. vikunni áður: Ísland þarfnast varnarliðs - hríðin er skollin á. Ég gagnrýndi skrif þeirra sem áróður fyrir stækkun ESB, sem herrarnir sögðu ekki frá í grein sinni. Þeir vísuðu í skýrslu hugveitu sinnar: Jólasveinninn er í snjóstorminum sem ég linka til hér svo allir geti kynnt sér sjálfir milliliðalaust boðskap skýrslunnar.
Undir því yfirskyni að vera að aðstoða Íslendinga við að efla varnir Íslands með því að koma á fót eigin her er hið raunverulega markmiðið yfirtaka ESB á Íslandi og jafnframt Noregi, Færeyjum og Grænlandi og að Svíar og Danir leggi niður krónuna og taki upp evruna.
Sífellt harðari orðræða á milli ESB og Bandaríkjanna sýnir ásetning ESB að verða að herveldi Evrópu og fara í stórstyrjöld gegn Rússum. Hökmark og Oksanen ganga svo langt í jólasveinaskýrslunni, að þeir ásaka Bandaríkjastjórn um að vera leppur Rússlandsstjórnar og Kína.
Hið sama var upp á teningnum á umræðum um varnarmál á fundi Háskóla Akureyrar í vikunni sem einkenndist af fólskulegum árásum á traustasta vin Íslands frá seinni heimsstyrjöldinni, Bandaríkin. Utanríkisráðherrann tók þátt í þessum rógburði ásamt flestum ræðumönnum. Allt ber þetta að sama brunni. Verið er að hafa áhrif á afstöðu landsmanna til að játast ofurvaldi ESB og hætta samstarfi við Bandaríkin.
Svik ríkisstjórnarflokkanna við farsæla varnarmálastefnu Íslands frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar og svik við varnarsamning Íslands og Bandaríkjanna gætu ekki verið skýrari. Beygja á Ísland undir hið nýja herveldi Evrópu, ESB, þar sem Þýskaland rís upp sem ægishjálmur meginlandsins eina ferðina enn. Ríkisstjórnin hefur farið á bak við þjóðina í varnarmálum með skuldbindingu Íslands við hernaðarstefnu Evrópusambandsins og fjáraustri til Úkraínu án þess að spyrja þing eða þjóð eða upplýsa um málið. Unnið er gegn friði í Úkraínu með óraunsæjum kröfum um sigur yfir Rússum.
Samhliða þessu hleypir ríkisstjórnin öllu í uppnám á Íslandi með árásum á undirstöðuatvinnuvegi þjóðarinnar og skapar atvinnu- og efnahagskreppu með aðgerðum sínum fyrir komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um inngöngu Íslands í ESB. Þetta er leið ESB sem þarf á kreppum að halda til að réttlæta tilvist skrímslins í Brussel.
Ríkisstjórnin fær rauða spjaldið frá nær öllum framleiðendum
29.5.2025 | 10:19
Ragnar Árnason prófessor emeritus t.vl og Örvar Marteinsson, formaður samtaka smærri útgerða ræddu afleiðingar af árás ríkisstjórnarinnar á grundvallaratvinnugrein þjóðarinnar.
Það er ánægjulegt að fylgjast með lifandi umræðu vegna fyrirætlunar ríkisstjórnarinnar um fjártöku í útgerðar- og fiskvinnslutökum með ofurskattheimtu sem tekur 70-80% af hagnaði fyrirtækjanna. Fólk í starfsgreininni bregst til varna sem er fullkomlega eðlilegt og nauðsynlegt gagnvart árás ríkisstjórnarflokkanna á aðalundirstöðuatvinnuveg landsmanna.
Afstaða ríkisstjórnarinnar byggir á öfund á velgengi duglegra sjómanna og athafnamanna sem með dugnaði halda uppi einum skilvirkasta fiskiðnaði í heimi. Áróður ríkisstjórnarflokkanna á ekkert skylt við verðmætasköpun og velferð landsmanna heldur byggir á því að sundra þjóðinni til að komast yfir feng fyrir sjálfa sig til að eyða í eigin hugðarefni. Að það sé sama sem merki milli hærri skatta og velferðar er hugarfóstur sósíalista og áróðursbrella eins og sá mæti maður Ragnar Árnason prófessor emeritus lýsti vel í afar góðum umræðuþætti Dagmála nýverið. Með honum var Örvar Marteinsson, formaður samtaka smærri útgerða sem útskýrði hrikalegar afleiðingar leiðréttingarinnar" á smábátaútgerð.
Ragnar bendir á að þegar fer helmingur af arði útgerðarinnar í skatta sem skila sér í þjóðarbúið. Hann segir réttilega að það sé enginn grundvöllur fyrir því að sérskatta einn atvinnuveg með ofursköttum umfram aðra. Þetta sé álíka og láta knattspyrnumenn íslenska landsliðsins keppa með margra kílóa lóð á fótum sem að lokum leiðir til þess að fólk hættir að spila fótbolta vegna þess að það er ekki hægt að vinna neinn leik.
Andrés Magnússon, þáttarstjórnandi, vísaði til greinar Dags B. Eggertssonar í Mbl. þar sem hann sagði að ofurskattar á sjávarútveginum væri bara fyrsta skref ríkisstjórnarinnar og fleiri blóðtökur væntanlegar í öðrum greinum eins og orku og ferðamannaiðnaði.
Það er mjög mikilvægt að þjóðin öll rísi upp og standi með þeim sem skapa verðmætin í landinu og stöðvi þessa ósvífnu árás sem mun skaða landið til langs tíma verði veiðgjaldafrumvarpið samþykkt. Þeim mun meiri einhug sem þjóðin sýnir í málinu, þeim mun meiri styrk gefur það stjórnarandstöðunni til að spyrna gegn málinu á þingi.
Velferð þjóðarinnar er í hættu, framtíð Íslands er í húfi.
Það verður of seint að ætla að bjarga gæsinni þegar hún liggur fjaðralaus á grilli vinstri manna.
![]() |
Veiðigjöldin éta upp arðinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Gott mál hjá Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formanni Sjálfstæðisflokksins, að taka upp greiðslur ríkisstjórnarinnar úr ríkissjóði til að greiða fyrir réttar skoðanir um aðild Íslands að ESB. Ríkisstjórnin notar peninga landsmanna til að efla ESB-áróðurinn á Íslandi fyrir komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um inngöngu Íslands í ESB. Flokkur fólksins mótmælir engu enda sjálfur á kafi í eigin fjármálasvindli. Markmið ríkisstjórnarinnar er að landsmenn segi já í þeirri trú að verið sé að kanna afstöðu þeirra til hvort taka eigi upp aðildarumræður að nýju. Það er ósvífin blekking. Aðildarviðræðurnar eru þegar hafnar eftir heimsókn forsætis- og utanríkisráðherra til Brussel strax eftir kosningar.
Ríkisstjórnin vinnur samkvæmt áætlun ESB um að taka yfir Ísland á bak við landsmenn. Í raun starfar ríkisstjórnin eins og skipuð bráðabirgðastjórn Evrópusambandsins, þar til önnur verður skipuð eftir að búið er að véla Ísland inn í sambandið. Í aðdraganda kosninganna sögðu kratar og Viðreisn að aðild að ESB yrði ekki á dagskrá. Það hefur sýnt sig, að innganga Íslands í ESB er aðalmál ríkisstjórnarinnar á kjörtímabilinu. Jafnaðarmenn kunna að blekkja og svíkja. Það kunna líka peningaþvottamenn útrásarvíkinga sem tókst að næla í milljarða króna úr vösum landsmanna á hlaupum eftir hrun.
Enginn skal halda að komandi þjóðaratkvæðagreiðsla sé um eða verði tekin sem neitt annað en svar Íslendinga um hvort þeir vilja ganga með í ESB eða ekki. Svari Íslendingar já, verður dreginn upp tilbúinn samningur við ESB og lagður fyrir Alþingi og forseta Íslands til samþykktar. Svari Íslendingar nei verður samningnum breytt lítils háttar og kosið aftur. Og aftur og aftur þar til niðurstaðan verður já.
Guðrún Hafsteinsdóttir bendir réttilega á að kjörnir embættismenn eiga að gæta sameiginlegra hagsmuna landsmanna:
Við erum komin á þann stað að ríkisstjórnin ætlar að ausa peningum úr ríkissjóði í stéttarfélög og önnur samtök, mörg hver með milljarða í sínum sjóðum, til að halda uppi áróðri fyrir sínu helsta stefnumáli. Ef ríkisstjórnin væri að veita sömu fjármuni til atvinnurekendasamtaka til að tala gegn ESB-aðild, væri þá ekki litið á það sem pólitíska misnotkun? Hvers vegna er þetta ásættanlegt þegar sjónarmiðin falla að stefnu ríkisstjórnarinnar? Með þessu er verið að stíga yfir mörk sem eiga að skilja stjórnmál og opinbera fjárveitingu.
Þetta eru orð að sönnu. Þegar stjórnmálaflokkar sjá ekki mun á fjármálum landsmanna og eigin flokks, þá eru málin komin á hættulega braut. Lýðræðið víkur fyrir alræði. Guðrún spurði:
Hvernig getur það talist forsvaranleg meðferð á opinberu fé að ríkisvaldið beiti fjármagni almennings til að styðja pólitíska umræðu sem beinlínis fellur að stefnu ríkisstjórnarinnar sjálfrar?
Svar Þorgerðar Katrínar um að hætta standi af utanaðkomandi öflum vekur spurningar. Af hverju segir ekki ráðherrann hreint út Rússar og Bandaríkjamenn?
Guðrún Hafsteinsdóttir hittir beint í mark, þegar hún bendir á það afl sem er þjóðinni hættulegast:
Það er ekki hlutverk stjórnvalda að greiða fyrir rétt svar í þjóðaratkvæðagreiðslu.
![]() |
Ekki hlutverk stjórnvalda að greiða fyrir rétt svar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Glæpahringirnir hagnast á brottrekstri Úlfars Lúðvíkssonar
24.5.2025 | 09:52
Það var hressilegt að hlýða á viðtal Stefáns E. Stefánssonar við Úlfar Lúðvíksson, fv. lögreglustjóra á Suðurnesjum, í þætti Spursmála í gær. Úlfar Lúðvíksson var rekinn úr embætti lögreglustjóra fyrir það eitt að vilja vinnu sína eftir bestu getu við landamæragæslu Íslands á Keflavíkurflugvelli. Brottrekstur Úlfars er fólskuverk sem þjónar glæpahringjum sem eru að leggja undir sig Ísland.
Úlfar Lúðvíksson uppljóstraði um flöskuháls í kerfinu þar sem Sigríður Björk Guðjónsdóttir, ríkislögreglustjóri og Haukur Guðmundsson ráðuneytisstjóri gæta allt annarra hagsmuna en þjóðarhags. Sem dæmi nefndi hann að hann væri ekki einu sinni virtur svara með ábendingum og fyrirspurnum til dómsmálaráðuneytisins sem er skýlaust brot á starfsreglum ráðuneytisins og ætti að vera refsivert fyrir viðkomandi starfsmenn.
Þetta er lýsandi dæmi um hvar stjórnkerfið er statt. Leyndarhyggja ókjörinna embættismanna sem vinna gegn hagsmunum almennings. Ókjörnir embættismenn sem eiga að gæta þess að alþjóðlegir glæpahringir nái ekki fótfestu á Íslandi en auðvelda þeim leikinn með því að reka þá sem harðastir eru gegn glæpamönnunum. Hagur þjóðarinnar er fyrir borð borinn með brottrekstri Úlfars Lúðvíkssonar. Hagur glæpamanna vænkar. Aðrir hafa verið reknir á undan honum og munu verða reknir á eftir honum nema að þjóðin taki af skarið og kjósi sér stjórnmálamenn til að vinna fyrir sig í stað þess að greiða stjórnmálamönnum laun fyrir að vinna að yfirtöku ESB á Íslandi.
Það er sjálfsagt mál að taka undir þá lágmarkskröfu Úlfars Lúðvíkssonar að víkja Sigríði Björk Guðjónsdóttur og Hauki Guðmundssyni úr embætti. Einnig ætti að endurráða Úlfar í lögreglustjórastöðu Suðurnesja, því hann er hæfasti maðurinn sem Ísland á til starfsins í dag.
Frásögn hans um níu ára þöggun ráðuneytisins til að leysa vandann með farþegalista flugfélaganna vekur spurningar. Hvaða hag hafa yfirmenn dómsmálaráðuneytisins af því að tryggja flugfélögum möguleika á að flytja eftirlitslausa einstaklinga til Íslands? Er verið að aðstoða glæpamenn að komast til landsins og valda usla? Peningar eru ekkert vandamál hjá alþjóðlegum fíkniefna- og glæpahringjum og mútur notaðar til að kaupa fólk, það vita allir. Nýleg uppljóstrun um kaup Björgólfs Björgólfssonar bankamanns á lögreglumönnum til einkanjósna staðfestir veikleika kerfisins.
Úlfar Lúðvíksson hefur mestu reynslu allra af landamæragæslu Íslands og hann fullyrðir að innganga landsins í Schengen hafi verið mistök. ESB-sinnar þola enga gagnrýni eða ábendingar um að þeir geri neitt rangt. Hjá þeim er ESB himnaríkið og allt annað brennandi helvíti. Þótt Schengen gerði líf landsmanna óbærilegt með innfluttum glæpamönnum, þá finnst ESB betra að fórna öryggi og velferð landsmanna en að játa á sig mistökin.
Þjóðin á að hlusta á þegar reyndir, heiðarlegir starfsmenn segja frá reynslu sinni eins og Úlfar Lúðvíksson. Það eru einmitt svona einstaklingar sem við þurfum til starfa, sem skilja muninn á réttu og röngu og hafa kjark til að ræða málin.
Þjóðin á að sæma Úlfar fálkaorðunni, segja sig úr Schengen, skera upp herör gegn vaxandi ítökum glæpahringja á Íslandi og hefja hreinsunaraðgerðir á ríkisbákninu til að losna við þá einstaklinga sem nota ríkið í laumi á bak við okkur sem gagnast glæpamönnum.
![]() |
#78. - Kallar eftir afsögn ríkislögreglustjóra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hið nýa SVÍsland
23.5.2025 | 05:18
Nýjar fréttir um hnífaárás og sprengingu í Reykjavík er ekki eitthvað sem friðsamir borgarbúar og landsmenn hafa áður búið við. Hömlulaus fólksinnflutningur á galopnum landamærum Schengen með litlu sem engu eftirliti er boðsmiði fyrir glæpamenn og ofbeldisseggi. Þetta þekkjum við sem búum í Svíþjóð því miður afskaplega vel með daglegum skot- og sprengjuárásum þar sem glæphópar halda öllu í greipum sér og sífellt fleiri saklausir borgarar týna lífinu fyrir það eitt að vera á vitlausum stað á vitlausum tíma.
Afstaða ríkisstjórnarinnar er skýr: Þeir sem mótmæla ólöglegum innflutningi fólks og reyna að gera eitthvað í málunum til hjálpar almenningi eru reknir úr starfi eins og Úlfar Lúðvíksson, fv. lögreglustjóri á Suðurnesjum. Úlfar Lúðvíksson og fleiri í sömu stöðu eiga skilið fálkaorðuna fyrir óeigingjarnt starf og vilja til að vinna fyrir þjóðina eftir bestu getu.
Á Íslandi í dag er stjórnmálavaldið númer eitt. Almenningur verður að tilbiðja guð hins heilaga pólitíska rétttrúnaðar sem vinstri menn og rauðsokkur landsins hafa steypt þjóðinni í. Vókisminn ræður ríkjum og refsað fyrir gagnrýni á núverandi ESB-ríkisstjórn landsins.
Þegar ég hóf að segja frá glæpaþróuninni í Svíþjóð fyrir mörgum árum, þá mætti ég ofstopa, drambi og hroka sem einungis nútíma jafnaðarmenn búa yfir. Ég var eftirlýstur af RÚV fyrir falsfréttir sem eyðilagði fallegu kratamyndina af hamingjusömum Svíum sem léku sér við berfætt börnin fyrir utan rauðu sumarbústaðina í Paradís. Nokkrum árum síðar benti Donald Trump á sprengingar glæpahópa í Svíþjóð og sænska elítan fór á hliðina. Sænskur almenningur er látinn borga - sífellt fleiri með lífi sínu - fyrir þá glæpamennsku stjórnvalda að hirða ekki um landamærin.
Í Svíþjóð hafa málin gengið svo langt, að systurflokkur Sjálfstæðisflokksins, Móderatar, leggja til nýjan fasteignaskatt á húseigendur sem nota á til að koma á samstarfi íbúa í borgarhverfum til að berjast gegn glæpaklíkunum! Uppgjöf löggjafans gæti ekki verið meiri og verði þetta raunin má búast við að stytti í blóðug átök hins almenna Svía beint við innflutta glæpamenn. Lögreglan hefur lýst því yfir að hún ráði ekki við glæpahópana og valdhafar láta það gott heita.
Ísland er margfalt viðkvæmara fyrir erlendum glæpamönnum en önnur Norðurlönd vegna vanbúinnar lögreglu, reynslu- og getuleysi til að fást við slíkt ofbeldi. Því miður virðast fréttirnar um hnífaárásina og dularfulla sprengingu á Hjarðarhaga aðeins vera toppurinn á ísjaka hins nýja raunveruleika sem stjórnmálamenn hafa skapað.
Þessi aumingjaháttur yfirvalda gagnvart glæpahópum ber með sér aðra spurningu:
Hafa stjórnmálamenn hag af því að greiða götu alþjóðlegra glæpahópa?
Ætti ekki að rannsaka hugsanleg tengsl þeirra við glæpaklíkurnar fyrst þeir vilja ekki lengur sinna skyldu sinni að vernda almenna borgara sem þeim ber að gera samkvæmt landslögum?
![]() |
Íbúi segir hverfinu haldið í heljargreipum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hvaða stjórnmáladruslur eru í utanríkismálanefnd Alþingis?
22.5.2025 | 07:36
Ríkisstjórn Íslands er orðinn samgróinn hluti Evrópusambandsins. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttur og Kristrún Frostadóttur ganga frá skrímslavef ESB um Ísland til að tryggja að fullveldi Íslands verði mélað fyrir atkvæðagreiðsluna um inngöngu Íslands í ESB. Í þéttingu hervæðingar Evrópusambandsins og sérstaklega þá Þýskalands sem boðar stærsta og sterkasta her Evrópu eina ferðina enn, er Ísland notað í áróðursskyni gegn Donald Trump og Bandaríkjunum.
Hlutirnir verða skýrari með hverjum deginum. Nató og ESB undirbúa stórstyrjöld gegn Rússum. Í augum sósíalíska Internationalen (sem Samfylkingin á aðild að) er Bandaríkjaforseti versti óvinurinn. Til og með verri andstæðingur en sjálfur Pútín. Í þeirri meðvituðu sundrung vestrænna ríkja sem sósíalíski Internationalen og ESB standa fyrir er leiðin að fjórða ríki meginlandsins rudd og Bandaríkin, frelsi, lýðræði og frjáls samkeppni tekin út af borðinu. Sagan endurtekur sig.
Ríkisstjórn Íslands hefur vaskað fram skýra stefnu sína sem falin var í kosningunum: Að draga Ísland með í átök stórveldanna. Horfin er afstaða vopnlausrar smáþjóðar til friðar. Land og þjóð eru matreidd á silfurfati til andstæðinga Bandaríkjanna til að nýta á þann hátt sem þóknast. Forsætis- og utanríkisráðherrann láta ekki bara mynda sig með leiðtogum heims, þær fórna Íslandi á altari ólýðræðislegra afla sem bera engan hag eða tilfinningar fyrir þeim hræðum sem búa á eldfjallaeyjunni. Ferðalög þeirra og ánetjun landsins í undirbúningi komandi heimsstyrjaldar skaðar Ísland og og mun skaða Íslendinga margar kynslóðir fram í tímann.
Að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir þvingar Ísland að taka þátt í undirbúningi ESB fyrir stríðsátök án þess að segja utanríkismálanefnd frá því, er viðbúið.
En spyrja má hvaða stjórnmáladruslur eru í utanríkismálanefnd Alþingis sem gera ekkert í málinu og fljóta sofandi að feigðarósi.
Ef Staksteinar Morgunblaðsins eru beittasta stjórnarandstaðan á Íslandi í dag, þá eru stjórnmálin í óefni komin.
Til hvers er þá Alþingi?
![]() |
EES-ríkin og ESB efla samstarf á sviði öryggismála |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)