Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2025
Astrid Lindgren grætur, Lína langsokkur er í felum og Emil í Kattholti býr til byssur
28.8.2025 | 11:11
Þakka ber Morgunblaðinu, einu fréttaveitunni á Íslandi sem veit hvað er að gerast í Svíþjóð. RÚV má skilja sem Ríkisþöggun Útlenskra Voðaverka, því starfsmennirnir eru í álögum sænskra krata og bestu vina þeirra í múslímska Bræðralaginu og segja bara fréttir sem fylgja pólitískum rétttrúnaði. Eftir seinni skotárásina í Järfälla í Stokkhómi miðvikudagsmorgun skrifaði ég eftirfarandi pistil á Þjóðólf:
Skotárásirnar, sprengjurnar, drápin og limlestingarnar að ekki sé minnst á allar nauðganir, rán og niðurlægingarofbeldið er hversdagsmatur í Svíþjóð. Landið er stórkostlegt. Astrid Lindgren grætur í gröfinni, Lína langsokkur felur sig með vinum sínum í öruggum paníkherbergjum leik- og barnaskóla og Emil í Kattholti prentar byssur með þrívíddarskrifara útí smiðju. Ingimar Bergman gerir kvikmynd að handan um ópið og öskrin og þjáningar þeirra sem misst hafa ástvini sína, Þögnin hefur breyst í þrungna jarðafararkviðu og gyðingar flýja landið í hópum vegna íslamskrar menningar og gyðingahaturs í Svíþjóð.
Á götum úti er algengara að heyra Allah Akbar en Jesús almáttugur. Arabíska er næst stærsta tungumál ríkisins og á sumum elliheimilum tala starfsmenn ekki sænsku og skilja ekki Svía sem þar búa og þeir eiga að sinna.
Peningunum er grýtt í grjótið í Kænugarði og vopnaverksmiðjur byggðar og miðstöð Nató reist 80 km vestur af Stokkhólmi sem á að vera flutningamiðstöð í stríðinu mikla gegn Rússum sem hefja á í Eystrasalti austur af Stokkhólmi í síðasta lagi 2030. Grafir fyrir hálfa milljón Svía standa tilbúnar.
Bukele hefur 100% rétt fyrir sér þegar hann segir að valdhafar Svíþjóðar séu að eyðileggja þjóðina með glæpum innan frá. Ekkert gert nema blaðrað. Fólk löngu hætt að taka mark á þessum fábjánum sem ganga undir samheitinu stjórnmálamenn og gera ekkert annað en að tala um hvað föt keisarans séu dásamleg. Eru í hirð fáránleikans, hneigja sig og beygja fyrir vondu Leyen sem líkt norninni í Mjallhvít skipar transstjóranum að elta Orbán og aðra kristna út í skóg og skera úr þeim hjartað.
Allt það ljóta þrengist allt um kring. Ágangurinn eykst allan tímann. Margir grípa til þess ráðs að heyra og sjá ekki neitt. Skera sig frá raunveruleikanum og takmarka lífið við einfalda hluti, vinnu og mat. Stóri bróður nálgast allt með stafrænu eftirliti og bráðum erum við öll eins og kanínur í búri þar sem eigandinn ræður hvert okkar fái að lifa.
Einn íslenskur sendiherra í Stokkhólmi, fyrir nokkrum árum, fannst ekkert athugavert við skotárásirnar í Stokkhólmi: Glæpamennirnir drepa bara hvern annan sagði hán og málið þar með útrætt. Glæpamennirnir eru komnir inn í þjóðarlíkama Svía og stjórna meiru en látið er opinberlega. Ríkisstjórnin sem lofaði umsnúning og að stöðva innflutninginn hefur staðið sig jafnvel og kratarnir og mokar yfir 100 þúsund manns inn í Svíþjóð árlega.
Þrír menn voru í bílnum í gærmorgun sem skotið var á í Järfälla og særðust tveir þeirra en ekki lífshættulega að sögn lögreglunnar. Aftonbladet segir að lögreglan gangi út frá því að þeir hafi verið skotnir vegna mistaka. Þeir voru ekki þeir sem morðhundarnir voru sendir til að drepa.
Íslensk utanríkisstefna er stórkostleg. Sendiherrar fá að blaðra hvað sem er. Eins og að glæpamenn í Svíþjóð séu eiginlega þjóðþrifamenn, því þeir skjóti bara hvern annan. Þrátt fyrir allar skotárásirnar, sprengingarnar og morðin, þá fækkar glæpamönnunum ekki neitt í Svíþjóð. Þeim fjölgar. Og verða sífellt yngri. Hefur einhver séð 11 ára gamlan strák með alvöru hríðskotabyssu?
Kannski Þorgerður Katrín tilnefni hann til íslensku varnarmálaorðunnar til að votta aðdáun Íslendinga á dugnaði glæpamanna í Svíþjóð. Kannski flytur hún inn svona duglega glæpamenn svo lögreglan þurfi ekki að vinna vinnuna sína á Íslandi?
![]() |
Skotárásum fjölgar í Stokkhólmi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Skoðanakúgun Háskóla Íslands gegn Gil S. Epstein, sem er gyðingur og prófessor við Bar-Ilan-háskólann í Ísrael, er mikil skömm fyrir Háskólann, fræðasamfélagið, menntamálaráðherra og menntamálaráðuneytið sem og ríkisstjórn Íslands og landið sem slíkt.
Að stöðva Gil S. Epstein frá því að halda fyrirlestur um gervigreind, eingöngu vegna þess að hann er gyðingur, sýnir hversu lágt yfirvöld leggjast á sveif með verstu gyðingahöturum sem til eru. Grein Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar í Morgunblaðinu og viðtal í Dægurmálum er verðskulduð áminning um þann brothætta ís sem vælusamfélag vinstri akademíunnar er búin að leiða þjóðina út á. Morgunblaðið skrifar í leiðara dagsins að:
Má búast við að forystumenn háskólamenntunar á landinu, þar með talinn ráðherra málaflokksins, muni standa með akademísku frelsi þegar á reynir eða láta þeir yfirlýsingar og fögur orð duga? Mikilvægt er að fá fram svör við því enda akademískt frelsi á landinu í húfi sem og tjáningarfrelsið og jafnvel sjálft lýðræðið, svo vísað sé til yfirlýsingar háskólarektora landsins.
Gyðingahatur er krabbamein sem leyfir ofbeldinu að vaxa og þrífast. Slíkt er andstætt öllum lýðræðisgildum Íslendinga enda samræmist það hatur best nazískri hugmyndafræði. Að háskólinn skuli láta þetta viðgangast er reginhneyksli.
Óþjóðalýð með Ingólfi Gíslasyni aðjunkt í fararbroddi tókst að kæfa málfrelsi gyðings til að flytja erindi um gervigreind! Hefði viðkomandi verið að ráða íslenska karlmenn í Ísraelsher væri skiljanlegt að Hamas hefði mótmælt. En að starfsmenn Háskóla Íslands skulu vera í fararbroddi fyrir atlögu að málfrelsi og mannréttindum á þennan hátt er komið út yfir öll siðferðismörk. Ingólfur hefur með háttalagi sínu brotið á starfsskyldum sínum og ber að víkja umsvifalaust úr starfi.
Það sama ber einnig að gera við rektor Háskóla Íslands sem ekkert lætur í sér heyra um málið, þrátt fyrir ítrekaða eftirspurn og mikla umræðu í samfélaginu.
Jón Magnússon hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður sagði í nýjum þætti Ísafoldar varðandi þögn háskólarektors:
Það er eins og stendur sums staðar, þegar stjórnmálamenn eru búnir að gera eitthvað skammarstrik, að þá næst ekki í þá. Ég skrifaði einu sinni grein um ákveðinn stjórnmálamann sem ekki hafði náðst í í lengri tíma af fjölmiðlum. Einn af helstu stuðningsmönnum stjórnmálamannsins skrifaði þá svargrein og spurði hvort hann mætti ekki fara í bað, hvort hann þyrfti alltaf að vera viðstaddur símann. Ég svaraði með því að segja, jú hann má fara í bað en það er ekki þar með sagt að hann megi vera í baði svo dögum og vikum skipti. Og það er þannig núna með rektor háskóla Íslands varðandi fjölmiðla, hún má að sjálfsögðu fara í bað en hún verður einhvern tíma að vera tiltæk fyrir fjölmiðla til þess að svara fyrir þetta ófremdarástand sem að þarna átti sér stað, þegar að tjáningarfrelsið var fótum troðið á rasískum grundvelli.
Silja Bára háskólarektor hefur haft marga daga á sér en greinilega getur hún ekki þvegið hendur sínar hreinar í þessu máli.
Henni ber því að víkja úr starfi með Ingólfi aðjunkt.
En verður það gert?
Varla með ríkisstjórn sem veltir volæði vinstrimennskunnar yfir landsmenn ásamt ómældu gyðingahatri og samningum beint við fulltrúa Hamas.
Einungis þjóðin sjálf getur stöðvað þessa nazísku vegferð með því að hunsa ríkisstjórnarflokkana í næstu kosningum.
Vonandi verða þær sem fyrst.
![]() |
Framferði Ingólfs fyrir neðan allar hellur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hinn ómetanlegi liðsauki Hamas
22.8.2025 | 09:16
Hamas getur andað út. Gyðja Norðurljósa íhugar refsiaðgerðir gegn Ísrael. Þar með hlýtur stríðinu að ljúka hratt og örugglega á næstu dögum.
Kraftur Þorgerðar er svo mikill að íhugun ein og sér dugar til að hræða Ísraelsmenn frá áframhaldandi hernaðaraðgerðum gegn Hamas. Án Þorgerðar frá Þolinmaníu, landsins mikla við Norðurskaut, þar sem eina heimssagan gerist sem mark er takandi á, væri engin framtíð hvorki fyrir Palestínu né önnur ríki á þessari jörð. Íslendingar eru hamingjusamasta þjóð jarðar að hafa Þorgerði sem mun halda hinum hræðilegu Gyðingum frá borði svo dýrðarríkið Palestína geti staðið að eilífu.
Ómetanleg er þakkarskuld Hamas til Þorgerðar og munu þeir núna snúa sér einu sinni af átta á dag í átt til Reykjavíkur í staðinn fyrir Mekka, knékrjúpandi fyrir stuðningi hennar og Bakkasystra hennar sem opnað hafa Ísland sem miðstöð fyrir dýrð sharía. Næsta skref verður að banna Gyðingum að ferðast til Íslands og annarra helstu stórríkja ESB.
Hurð skall nærri hælum að Gyðingaprófessor fengi að tala í Þjóðminjasafninu en stuðningsmenn Þorgerðar og Hamas tókst á síðustu stundu að bjarga Íslendingum frá þeim hryllingi. Gyðingar hafa sýnt sig vera bæði stórhættulegir og illdrepanlegir, þeim tekst að flýja sömu leið og jólasveinninn kemur inn.
En Hamas þarf engar áhyggjur að hafa, þótt míkróofnar dugi ekki lengur í varnarstríði þeirra gegn hættulegum hvítvoðungum Gyðinga.
Íhugun Þorgerðar drepur nefnilega allt.
Heil sé þeim Bakkasystrum sem bjarga Hamasliðum og endurreisa íslamska ríkið!
![]() |
Þorgerður íhugar refsiaðgerðir gegn Ísrael |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Óhugnanlegur vöxtur íslams á Vesturlöndum
21.8.2025 | 09:26
(Myndin sýnir vígamenn ISIS leiða fórnarlömb til slátrunar en þeirra íslam gerir dauðann að sérstakri hátíð til að skelfa andstæðinginn).
Þakka ber Hannesi Hólmsteini Gissurasyni fyrir greinargóð og ítarleg skrif í Morgunblaðinu um aumingjaskap stjórnenda Háskóla Íslands sem létu það viðgangast að komið væri í veg fyrir fyrirlestur ísraelska hagfræðiprófessorsins Gil S. Epstein. Gyðingahatur akdemíunnar á Íslandi er skömm fyrir lýðræðið og á ekki heima í því lýðveldi sem Ísland var stofnað til að vera.
Því miður er það á fleiri stöðum en í Háskóla Íslands sem íslam er að ryðja sér rúms og kúga málfrelsið með ofbeldisaðferðum. Rannsóknarmiðstöð pólitískra áhrifa íslams á Vesturlöndum er með heimasíðu sem sýnir fjölgun íslamskra samtaka í löndum eins og Bandaríkjunum, Kanada, Bretlandi, Frakklandi, Þýskalandi, Spáni, Póllandi, Austurríki, Tékkalandi, Slóvakíu, Ungverjalandi, Ástralíu og Nýja Sjálandi.
Íslömsk samtök sem breiða út boðskap um íslam og vilja aukin áhrif í viðkomandi landi eru tekin með. Tölurnar eru sláandi, til dæmis voru engin slík samtök til í Bretlandi ár 1961, þrjátíu árum síðar voru 242 íslömsk samtök til og 35 árum eftir það, þ.e.a.s. í ár er fjöldinn kominn upp í hvorki meira eða minna en 3.676 samtök. Aukin spenna í Bretlandi hlýtur að verða að skoðast í þessu ljósi og þeirrar staðreyndar að sharia lög eru farin að skáka burtu lögum réttarfarsríkja eins og nýr dómur Héraðsdóms í Vínarborg ber með sér en þar er dómur sharíadómstóls sagður löglegur þótt hann sé úr hliðarkerfi íslams og utanvið réttarfarskerfi Austurríkis. Full ástæða er fyrir Íslendinga að athuga þessi mál vel og stíga varlega til jarðar með innflutningi íslams til landsins.
- Austurríki: Frá 1 samtökum ár 1960 upp í 149 samtök ár 2000 sem orðin eru að 434 samtökum ár 2020
- Þýskaland: 5 samtök ár 1950, 234 samtök ár 1980, 1.493 samtök ár 2000 sem orðin eru að 2. 486 samtök ár 2020
- Frakkland: 6 samtök ár 1930, 115 samtök ár 1980, 1.377 samtök ár 2000 sem orðin eru að 4.351 samtök árið 2024
- Bretland: 0 samtök ár 1961, 79 samtök ár 1980, 487 samtök ár 2000 sem orðin eru að 3.676 samtökum árið 2025.
- Spánn: 1 samtök ár 1968, 6 samtök ár 1980, 172 samtök ár 2000 sem orðin eru að 1.805 samtökum ár 2020.
- Pólland: 7 samtök ár 1950, 9 samtök ár 1980, 41 samtök ár 2000 sem orðin eru að 102 samtökum ár 2020.
- Tékkaland: 1 samtök ár 1990. 8 samtök ár 2000 sem orðin eru að 21 samtökum ár 2022.
- Ungverjaland: 1 samtök ár 1988, 9 samtök ár 2000 sem orðin eru að 18 samtökum ár 2022.
- Slóvakía: 1 samtök ár 1992, 3 samtök ár 2000 sem orðin eru að 12 samtökum ár 2020.
- Kanada: 125 samtök ár 1990, 294 samtök ár 2000 sem orðin eru að 1.060 samtökum ár 2020.
- Bandaríkin: 1 samtök ár 1935, 118 samtök ár 1980, 983 samtök ár 2000 sem orðin eru að 2.979 samtökum ár 2020.
- Ástralía: 1 samtök ár 1954, 18 samtök ár 1980, 102 samtök ár 2.000 sem orðin eru 247 samtök ár 2020.
- Nýja Sjáland: 14 samtök ár 1990, 58 samtök ár 2000 sem orðin eru 231 samtök ár 2022.
Eins og sjá má á þessum tölum virðast löndin í fyrrum Austur-Evrópu standa sig einna best í vörnum gegn útbreiðslu íslams.
![]() |
Heimspekiprófessor hafnar málfrelsi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Flokkur fólksins étur sjö sinnum meira en Fjölskylduhjálpin þarf
19.8.2025 | 12:13
Ef að Flokkur fólksins sæi sóma sinn og skilaði röngum fjárútlátum ríkisins til skúffufyrirtækis Ingu Sælands, hluta eða öllum þeim 240 milljónum sem Ingu Sælan tókst að kreista úr ríkissjóði, þá væri til sjö sinnum meira fjármagn en Fjölskylduhjálpin þarf til að halda starfseminni gangandi. Á meðan tölvubréfum þurfandi rignir yfir Ásgerði Flosadóttur hjá Fjölskylduhjálpinni, þá rignir hundruð milljónum yfir Ingu Sæland.
En það er mikilvægara að Inga Sæland finni ekki fyrir bauninni undir öllum sjö dýnunum í rúmi sínu en að fátækir geti stillt hungrið. Að styrkja hjálparsamtök, þar sem fólk starfar í óeigingjarnri sjálfboðavinnu til að hjálpa þeim sem minna mega sín er ekki í boði Flokks fólksins eða hinna ríkisstjórnarflokkanna.
Fólk má svelta í hel á Íslandi, miklu mikilvægara er að Ingu líði vel og geti brosað framan í spegilinn og sett á sig varirnar áður en haldið er út í stjórnmál dagsins á bakka ESB í höndum Kristrúnar og Þorgerðar.
Síðarnefndu Bakkasysturnar aðstoða prímadonnuna Ingu Sæland að bera inn fögur fyrirheit í hús fátækra eins og bræður þeirra gerðu forðum sem báru inn sólarljós í fötum inn í myrkrið en aldrei varð samt neitt ljós.
Að treysta Bakkasystrum fyrir góðgerðarmálum er jafn árangursríkt enda við engu öðru að búast á Bakka. Engir peningar eru í þeirra fötum sem þær bera til fátækra. Peningarnir eru bara í þeirra eigin vösum, dýnum og rándýrum varalit og andlitsforða til að andlitið hangi saman fram yfir myndatöku hirðljósmyndarans.
Þetta er hin dýra reynsla Ásgerðar Jónu Flosadóttur, formanns Fjölskylduhjálpar Íslands og allra skjólstæðinga hjálparinnar sem Fjölskylduhjálpin hefur unnið ómetanlegt gagn fyrir í fjölda ár.
![]() |
Margir sem eiga nú ekki fyrir mat |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Heil sé Þorgerði sem bjargar heiminum
15.8.2025 | 09:24
Með leiftursnjallræði hefur Þorgerður Katrín bjargað heiminum. Hún segir að Pútín og Trump eigi að ræða saman á Alaskafundinum. Án þessa ráðs Þorgerðar myndu Pútín og Trump sitja þegjandi á fundinum og horfa vandræðalega út í loftið á meðan verið væri að drepa fleiri hermenn á vígvellinum. Því ber að þakka Þorgerði, gyðju norðurljóssins, fyrir allt sem kemur jákvætt út úr fundi þeirra Pútíns og Trumps.
Ísland er hamingjusamasta þjóð heims með slíkum bjargvætti. Þorgerður gefur Trump einnig tækifæri að láta af fyrra háttalagi og gerast talsmaður frelsis í heiminum. Vonandi ná þau orð eyrum Trumps, bæði þess skotna og hins sem heilt er, þannig að hann muni geta breytt sér. Að öðrum kosti verður síðasta von mannkyns sú, að ráðgjafar Hvíta hússins sem heyrt hafa orð íslenska utanríkisráðherrans hendi sér í hrúgu yfir Trump í hornlausa herberginu og pressi úr honum alla vitleysuna. Þannig mun Trump loksins skilja hlutverk sitt, þegar og ef hann nær andanum aftur.
Án kvenvitringanna þriggja frá Íslandi, Þorgerðar, Kristrúnar og Ingu, á heimurinn enga framtíð. Ljós þeirra lýsir upp himinn með friðarvon fyrir mannkyn. Eftir breytingu Trumps verður hann í stakk búinn til að standa vörð um gildi vestrænna lýðræðisþjóða eins og fjórða ríkis ESB sem er fremst í mannréttindum og transréttindum, veiðigjöldum og öðrum grænum gjöldum, baráttu mannkyns gegn hamfarasteikingu jarðar, yfirstjórn Sameinuðu þjóðanna á heilbrigðismálum, kynfræðslu í leikskólum, RÚV ásamt fullkomnu eftirliti Evrópusambandsins með tjáningu allra landsmanna á samfélagsmiðlum til að stöðva fréttaóreiðu og makalausa gagnrýni lýðsins á óskeikul yfirvöld í Evrópu að ekki sé talað um ósvífni þeirra þjóðríkja sem dirfast að vera fullvalda og þess háttar.
Þökk sé Þorgerði, þá getur Trump loksins staðið uppréttur án þess að gefa neitt eftir gagnvart Pútín. Það er eiginlega móðgun við ríkisstjórn Íslands að Trump sendi ekki forsetavélina eftir Þorgerði á fundinn til að bjarga málunum.
Íslendingar eiga takmarkalausu láni að fagna með utanríkisráðherra sem gæddur er slíkum gáfum sem aldrei hafa áður sést á plánetunni.
Almenningur á Íslandi ætti að þakka og fagna valkyrjunum með eftirfarandi hyllingu:
Heil Þorgerður, heil Kristrún og heil Inga!
Heil, heil, heil!
![]() |
Stoppa verði stríðið með ráðum og dáð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hið góða samtal stjórnar og stjórnarandstöðu
14.8.2025 | 09:08
Hið góða samtal sem Kristrún Frostadóttir boðar á þingi eftir sumarfrí má bera saman við samtal móðir formanns Samfylkingarinnar í bréfi til dóttur sinnar:
Kæra dóttir. Sendi þér nokkrar línur svo þú vitir að ég er enn á lífi. Ég skrifa bréfið hægt, því ég veit að þú getur ekki lesið hratt.
Þú munt ekki þekkja heimilið okkar aftur þegar þú kemur heim, við erum nefnilega flutt.
Ég get því miður ekki látið þig hafa nýja heimilisfangið, þar sem Hafnafjarðarfjölskyldan sem bjó hér áður tók með sér húsnúmerið og notar það á nýja staðnum til að þurfa ekki að breyta um heimilisfang.
Nokkur orð um föður þinn, hann er búinn að fá nýtt starf. Hann er yfir 500 öðrum. Hann klippir grasið í kirkjugarðinum.
Það er þvottavél í nýja húsinu en hún virkar ekki almennilega. Ég setti 14 skyrtur í hana, tók í keðjuna og hef ekki séð þær síðan.
Systir þín eignaðist barn í morgun, ég veit ekki hvort það var strákur eða stelpa, svo ég veit ekki hvort þú ert frændi eða frænka.
Óli frændi drukknaði fyrir nokkru í brugggámi ölgerðarinnar. Margir starfsmenn hoppuðu út í til að bjarga honum án árangurs. Hann barðist um á hæl og hnakka til að vera þar áfram. Við sendum hann í líkbrennsluna, hann brann í þrjá daga.
Gunna frænka var hjá lækninum á fimmtudaginn, maðurinn hennar var með. Læknirinn setti smárör í munninn á henni og sagði að hún mætti ekki opna munninn í 10 mínútur. Maðurinn hennar keypti rörið. Þú ættir að fá þér svona rör.
Það rigndi bara tvisvar í Hafnarfirði í síðustu viku, fyrst í þrjá daga, síðan í fjóra.
Það var svo mikið rok á mánudaginn að ein hæna lagði sama egg fjórum sinnum.
Þín elskaða móðir.
PS. Ég ætlaði að senda þér peninga en það var ekki hægt, ég var búin að loka umslaginu. DS.
Þetta bréf er bæði falsfrétt og samsæriskenning.
Hið góða samtal sem ríkisstjórnin ætlar að eiga við stjórnarandstöðuna minnir á konuna sem fór að strauja gardínurnar. Hún datt út um gluggann.
![]() |
Vonast eftir „góðu samtali“ á Alþingi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hver er refsingin fyrir að nota sama dömubindið tvisvar?
12.8.2025 | 07:18
Mynd: Einnota merking dömubinda kemur í veg fyrir óseðjandi dansfíkn íslenskra kvenna sem margnota vissa gerð dömubinda sem innlegg í skó sem breytast þá í maraþon dansskó.
Er það vegna allra karla umhverfis-, orku- loftslagsráðuneytisins - og allra annarra mikilvægra ráðuneyta, sem fara andlega á Evrópusambandstúr að minnsta kosti einu sinni í mánuði, sem nauðsynlegt er talið að merkja sérstaklega dömubindi sem einnota? Hvað á að gera við öll herrabindin?
Umhyggja ráðuneytisins væri skiljanleg ef fjöldi kvenna létist fyrir aldur fram vegna misnotkunar dömubinda í einfeldni sinni að endurnota mætti sama dömubindið mörgum sinnum. Kannski lumar Jóhann Páll Jóhannsson umhverfisráðherra á slíkum dánartölum sem óbirtar eru almenningi en verða birtar í ESB-biblíu ríkisstjórnarinnar áður en Ísland kemst inn í himnaríkið í Brussel en þar eru öll ský skreytt gylltum skálum með ónotuðum dömubindum. Í himnaríki ESB eru allir karlar konur og allar konur karlar og enginn greinarmunur gerður á herra- og dömubindum. Bindi er bindi segja fróðir menn í Brussel án þess þó að þau bindi menn til að fara í herra- eða dömubindabindindi.
Þjóðin lýtur einnota höfði sínu fyrir þessari visku ESB-greindarinnar. Illa launaðir starfsmenn umhverfisráðuneytisins eiga allir skilið að fá bæði mánaðarlega launahækkun og Nóbelsverðlaun fyrir slíka frelsandi reglugerð um auðkenningu einnota dömubinda. Stærsti sigur femínismans er í höfn.
Jóhanni Páli verður eflaust boðin staða sem kvenréttindakonu Sameinuðu þjóðanna fyrir vikið og fær kannski mynd af sér í skrautsölum SÞ og ESB við hliðina á myndum af Þorgerði, Kristrúnu, Katrínu og Reykdals. Án þessara alþjóðlegu stórmenna myndi heimurinn farast í endalausri hringrás ómerktra dömubinda og rauðra herrabinda.
![]() |
Dömubindi verði merkt sem einnota |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trump rak Billy Long úr embætti skattstjóra Neitaði að afhenda upplýsingar um ólöglega innflytjendur
10.8.2025 | 10:25
Trump forseti olli miklu uppnámi í Washington D.C. eftir að hafa gert Scott Bessent, fjármálaráðherra, að starfandi skattstjóra. Núna vitum við hvers vegna hann gerði það. Trump vék Billy Long úr embætti skattstjórans og setti Bessent í embættið í staðinn. Long hafði gegnt starfinu í innan við tvo mánuði. Sem huggun? Kannski frekar sem refsingu, þá fékk Long sendiherrastöðu Bandaríkjanna á Íslandi sem ekki er talin vera nein sérstaklega glæsileg staða.
Fyrir Bessent var annað hvort að þiggja stöðuna eða verða atvinnulaus. Washington Post greindi frá því á laugardag að Long hefði verið rekinn úr embætti eftir að hann neitaði að afhenda upplýsingar um grunaða ólöglega innflytjendur.
Blaðið segir að innanríkisráðuneytið hafi sent skattyfirvöldum lista á fimmtudag með 40.000 nöfnum fólks sem embættismenn ráðuneytisins töldu vera ólöglega í landinu. Þeir báðu skattyfirvöld um að veita trúnaðarupplýsingar til að staðfesta heimilisföng þeirra.
Fjármálaráðuneytið, sem er yfir skattyfirvöldum, hafði áður gert samkomulag við innanríkisráðuneytið um að auðvelda slíkar upplýsingar. Long og aðrir embættismenn skattyfirvalda héldu því fram að þeir gætu ekki staðfest fleiri en 3% nafnanna.
Þá óskuðu embættismenn Hvíta hússins eftir frekari upplýsingum um þá skattgreiðendur sem skattstofan hafði borið kennsl á, sérstaklega varðandi tekjuskattsfrádrátt viðkomandi. Long neitaði að gefa upp þessar upplýsingar og sagði embættismönnum að stofnun hans myndi ekki veita slíkar upplýsingar um skattgreiðendur án samkomulags skattstofunnar við innanríkisráðuneytið.
Hann hafði áður varað embættismenn við því að hann myndi ekki samþykkja slíka beiðni. Nokkrum klukkustundum síðar rak Trump Long úr embætti skattstjóra Bandaríkjanna. Abigail Jackson, málsvari Hvíta hússins, gaf út eftirfarandi yfirlýsingu í svari við frétt Washington Post:
Stjórn Trumps vinnur í samvinnu að því að útrýma upplýsingaþröskuldum til að koma í veg fyrir að ólöglegir innflytjendur geti nýtt sér fríðindi sem ætluð eru duglegum bandarískum skattgreiðendum.
Fáránlegar fullyrðingar um annað en að við séum öll sammála um verkefnið eru einfaldlega rangar og algjörar falsfréttir.
![]() |
Vildi vinna fyrir ICE en var sendur til Íslands |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Enginn friður með Zelenský og ESB
9.8.2025 | 14:31
Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, hafnar alfarið tillögu Donalds Trumps um friðarsamning við Rússland sem felur í sér skipti á svæðum að því er New York Times greinir frá. Það getur aðeins orðið friður ef Úkraína fær tilbaka öll hernumdu svæðum frá Moskvu, þar á meðal Krímskaga, segir forseti Úkraínu. Zelensky vill fá ESB í samningaviðræðurnar og ómar það sem ESB og glóbalistarnir vilja og undirbúa af fullum krafti: Að fara í þriðju heimsstyrjöldina gegn Rússlandi. Svo lengi sem Zelensky er við völd verður þriðja heimsstyrjöldin eini valkosturinn.
Í ávarpi á myndbandi frá skrifstofu sinni í Kænugarði segir Zelensky:
Úkraínumenn munu ekki gefa land sitt hernámsaðilanum. Engar lausnir sem gerðar eru án þátttöku Úkraínu munu leiða til friðar. Þær munu ekki leiða neitt. Þetta eru glataðar tillögur.
Zelenskyj segir að Úkraína sé tilbúin að vinna að raunverulegum og varanlegum friði ásamt Trump og öðrum alþjóðlegum samstarfsaðilum en aðeins ef friðurinn gerist alfarið á forsendum Úkraínu. Zelensky vísar til stjórnarskrár Úkraínu:
Svarið við landhelgisspurningu Úkraínu er þegar að finna í stjórnarskránni. Enginn mun gefa eftir frá þessu og enginn mun geta gert það.

Trump sagði á föstudag að hann myndi hitta Vladimír Pútín, forseta Rússlands, í Alaska 15. ágúst til að ræða hugsanlegan friðarsamning, þar sem möguleg skipti á svæðum eru á dagskrá. Trump sagði samkvæmt New York Times:
Við munum fá eitthvað til baka og við munum gefa eitthvað í staðinn. Þetta verða skipti á svæðum til hagsbóta fyrir báða aðila.
Samkvæmt Bloomberg myndi tillaga Bandaríkjanna í raun þýða að gert yrði vopnahlé og átökin fryst. Rússland myndi halda stjórn á öllum svæðum sem her þess hefur lagt undir sig síðan innrásin var gerð árið 2022 þar á meðal Donetsk, Luhansk, Kherson, Zaporizjzja og Krímskaga. Rússland myndu einnig hætta sókn sinni í Kherson og Zaporizjzja héruðunum og hefja viðræður um langtíma friðarsamning.
Samtímis er sagt að Rússland krefjist þess að Úkraína gefi formlega frá sér þessi svæði, lýsi yfir hlutleysi og gerist ekki meðlimur í Nató. Úkraína og ESB krefjast einnig að kjarnorkuverinu í Zaporizjzja, sem er hernaðarlega mikilvægt, verði skilað til baka. Ráðgjafi Pútíns í utanríkismálum, Júrí Úshakov, hefur gefið í skyn að tillaga Bandaríkjanna sé alveg ásættanleg frá rússnesku sjónarhorni en það er óljóst hvort lokasamkomulag sé í nánd.
Að Zelensky talar um frið er marklaust þvaður á meðan skilmálarnir eru að Rússar yfirgefi svæðin í Austur-Úkraínu eins og Krím. Aðeins getur orðið um tímabundið vopnahlé að ræða á meðan ESB og Bretar byggja upp hervél sem þeir telja að dugi til árásar á Rússland. Þriðja heimsstyrjöldin er eina framtíðin sem ESB og Zelensky bjóða íbúum álfunnar og heiminum öllum.
![]() |
Munu ekki gefa eftir landsvæði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |