Bloggfćrslur mánađarins, júní 2025
Trump var ekki tilkynnt um árásina fyrirfram en Graham var í Úkraínu
2.6.2025 | 06:26
Úkraínskir drónar eyđilögu á sunnudag ađ sögn Zelenský 36% af öllum rússneskum herflugvélum. Tjóniđ er taliđ nema 2 milljörđum dollara. Volodymyr Zelensky tilkynnti ađ 117 drónar hefđu veriđ notađir í árásinni innan Rússlands sem eyddi tugum kjarnorkusprengjuflugvéla og annarra flugvéla.
Trump forseti var ekki tilkynnt um árásina fyrir fram, svo hann fengi ekki tćkifćri til stöđva hana, ţar sem hann vill friđ. Hnattrćningjar vilja heimsstyrjöld og eyđileggingu Rússlands.
Öldungadeildarţingmađurinn Lindsey Graham, sem var í Úkraínu fyrir tveimur dögum, fagnađi fréttunum af árásinni á sunnudag. Graham var í Úkraínu tveimur dögum áđur en árásin var gerđ. Vissi hann af henni fyrir fram?
Ţessi sögulega árás á sér stađ ađeins einum degi áđur en friđarviđrćđur eiga ađ hefjast aftur í Tyrklandi í dag 2. júní. Árásin var mjög ítarleg og hefđi varla getađ átt sér stađ án ađstođar Vesturlanda og líklega Bandaríkjanna.
Árásirnar áttu sér stađ 1.800-4.000 kílómetra innan landamćra Rússlands. Árásardrónarnir flugu frá vörubílum í Rússlandi.
Á rússneska Telegram reikningi Slavyangrad má lesa ađ:
Alţjóđlegum degi barna hafi veriđ breytt í sigurdag hryđjuverka međ drónaárásum á herflugvelli í Murmansk, Irkutsk, Ivanovo, Ryazan og Amur héruđum...Drónum var skotiđ á loft úr vörubílum sem keyrt var nálćgt herflugvöllum."
Greinarhöfundur telur ólíklegt ađ drónunum hafi veriđ smyglađ til Rússlands. Hann telur ađ ţeir hafi veriđ búnir til međ ţrívíddarprentara í Rússlandi og síđan hlađnir sprengjum. Slíkt hafi áđur veriđ gert til dćmis í Sýrlandi. Hann telur einnig ađ Vesturlönd hafi ađstođađ viđ árásina međ gervihnöttum og nákvćmum hnitum skotmarkanna:
Drónarnir voru faldir á yfirráđasvćđi okkar í gámum sem voru settir á vörubíla og síđan opnađir međ fjarstýringu - og drónarnir flugu ađ skotmarkinu."
Árásin kemur degi fyrir nýjan fund sendinefnda Rússlands og Úkraínu í Istanbúl í dag. Spurning er hvort Rússar mćti eftir slíka árás. Ljóst er ađ enginn friđarvilji er til stađar í Úkraínu og hjá ESB og stofnađilum Nató eins og Íslandi. Rússar munu eflaust svara af fullum krafti. Áđur en ţađ gerist getur íslenska ríkisstjórnin skálađ í kampavíni yfir vel heppnađri árás allt ađ 4000 km inni í Rússlandi.
Valkyrjurnar og Graham geta fagnađ ţví ađ heimurinn er komin einu skrefi nćr ragnarökum mannkyns í komandi kjarnorkustyrjöld.
![]() |
Telur Rússland gera árás á NATO-ríki á nćstu árum |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:46 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (1)
Appelsínuguli kallinn er vondur
1.6.2025 | 07:34
Jón Atli Benediktsson, fráfarandi rektor Háskóla Íslands, fellir krókódílatár yfir ákvörđunum Donalds Trump Bandaríkjaforseta gagnvart háskólum í Bandaríkjunum sem veki ugg innan íslenska háskólasamfélagsins án ţess ađ útskýra međ neinum rökum eđa stađreyndum hvađ Trump er ađ gera, eđa um hvađ máliđ snýst annađ en ađ Trump sé ađ veitast ađ sjálfstćđi háskóla og akademísku frelsi. Hćgt hefđi veriđ ađ spara lesendum Morgunblađsins tíma frá ţví ađ lesa ţetta ţvađur međ ţví ađ hafa viđtaliđ í einni setningu: Trump er vondur mađur" eđa eins og Trumphatarar segja fyrir vestan: Appelsínuguli kallinn er vondur."
Ađ mennt sé máttur er fyrir löngu orđiđ úrelt, ţegar stuđningsmönnum Hamas er leyft ađ valsa um, slá upp tjaldbúđum og stunda daglegar árásir gagnvart gyđingum. Ţegar háskólum er breytt í herbúđir vinstri ađgerđasinna í stađ ţess ađ kenna stađreyndir og vinna ađ ţróun framleiđslugreina. Ţegar akademían rís upp á afturlappirnar, breytir háskólanum í utanríkisráđuneyti og kennir Ísrael um árásir Hamas. Hámark frelsis akademíunnar fékkst í Ţýskalandi á dögum Marx og Engels og allir vita hvert ţau marxísku frćđi hafa fariđ međ heiminn og fara enn međ heiminn. Ţađ er engin ástćđa til ađ vera ađ ţvinga skattgreiđendur til ađ borga öđrum fyrir frelsi til ađ skapa öfl sem vinna ađ niđurrifi hinns frjálsa samfélags.
Hér koma nokkrar stađreyndir um hvađ Bandaríkjastórn og Trump forseti eru ađ glíma viđ varđandi akademíuna. Byrjum á Harvard.
Hvađa kröfum Trumps hafnađi Harvard?
Í bréfi til Harvard háskóla setti stjórn Trumps fram eftirfarandi kröfur:
- Breyta stjórnarháttum til ađ draga úr völdum nemenda, kennara og stjórnsýslu sem leggja frekar áherslu á ađ vera ađgerđasinnar en ađ stunda frćđimennsku.
- Ađ hćtt verđi ađ taka tillit til kynţáttar, litarháttar, trúarbragđa, kyns eđa ţjóđernis viđ starfsmannaráđningar og fara yfir núverandi kennara til ađ finna ţá einstaklinga sem nota ritstuld í stađ sjálfstćđra frćđistarfa. Einnig ađ hćtt verđi svipuđum sjónarmiđum í inntökuferlinu.
- Breyta inntökuferlum til ađ koma í veg fyrir ađ nemendur séu fjandsamlegir bandarískum gildum og stofnunum sem eru skráđar í stjórnarskrá Bandaríkjanna og sjálfstćđisyfirlýsingu Bandaríkjanna.
- Fá utanađkomandi ađila sem alríkisstjórnin hefur samţykkt til ađ endurskođa hópa innan skólans međ tilliti til fjölbreyttra hugmyndafrćđilegra sjónarmiđa.
- Fá utanađkomandi ađila sem alríkisstjórnin hefur samţykkt til ađ endurskođa námsbrautir, námskeiđ og deildir sem kynda undir gyđingahatur eđa endurspegla hugmyndafrćđilega yfirtöku.
- Stöđva allar DEI-áćtlanir innan skólans (DEI, diversity, equity, inclusion stendur fyrir fjölmenningu, réttlćtingu og inngildingu).
- Uppfćra agastefnu nemenda ţegar hún er ófullnćgjandi til ađ koma í veg fyrir truflun á námsárangri, námi og kennslu í kennslustofu eđa öđrum ţáttum eđlilegs háskólalífs. Ţessi krafa felur einnig í sér bann á andlitsgrímum.
- Koma á ferli ţar sem allir tengdir Harvard-ađilar geta tilkynnt brot á reglum til háskólastjórnenda og alríkisstjórnarinnar.
Dćmiđ ađ ofan varđar Harvard háskólann en háskólarnir í Princeton, Brown, Cornell, Northwestern og Columia hafa einnig fengiđ athugasemdir Bandaríkjastjórnar.
Máliđ er ađ ţegar ţetta heilaga akademíska frelsiđ hans Jóns er nýtt til ađ ćsa til byltingar gegn ţeim sem greiđa háskólunum fé fyrir störf sín, ţá er háskólinn sjálfur farinn ađ vinna gegn ţeim gildum sem hiđ frjálsa samfélag stendur fyrir og verđur ađ verja sig gegn.
Ţess vegna má vísa ţessu blađri fyrrverandi háskólarektors til heimahúsanna, sem einnig er stađfesting á ţví hvernig akademían notar frelsiđ til ađ fćra umheiminn langt burt frá öllum stađreyndum.
![]() |
Trump vekur ugg innan íslenska háskólasamfélagsins |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:20 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (6)