Bloggfærslur mánaðarins, maí 2025
Þorskur á þurru landi
12.5.2025 | 05:42
ESB-ríkisstjórnin er með allt niður um sig. Valkyrjurnar ráðast á þjóðina með svo kallaðri leiðréttingu rétt eins og þær eigi sjálfar fiskinn í sjónum. Mæta síðan ekki á fund í fyrstu umræðu um leiðréttinguna og verður að fresta honum svo stjórnarandstaðan taki ekki yfir.
Hegðun ríkisstjórnarinnar minnir á manninn sem fór í veiðitúr með vinnufélögunum og þegar hann kom heim spurði eiginkonan hvernig ferðin hefði verið.
Jú, jú, þetta var mjög góður veiðitúr en þú gleymdir að pakka niður auka nærbuxum."
Konan svaraði um hæl:
Nei, nei, ég setti þær í kassann með önglunum."
Ríkisstjórnin er upptekin af lauslæti og skilur stjórnarandstöðuna eftir með alla ábyrgð. Með sama áframhaldi tekst stjórnarandstöðunni vonandi að draga leiðréttinguna" upp úr vitfirringshafi vinstri stjórnarinnar á land skynseminnar sem er eina rétta leiðin fyrir þorskinn að komast á þurrt land.
![]() |
Hefur greinilega ekki verið með neina verkmenn í húsinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 05:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur
10.5.2025 | 07:16
Í dag er veiðigjaldafrumvarp ríkisstjórnarinnar til umræðu á Alþingi. Hraða á för gegnum þingið svo leiðréttingin" nái fram að ganga. Það sem verið er að leiðrétta" er verðmætasköpun liðinna kynslóða og barátta forfeðranna að fá að ráða sjálfir yfir sjómennsku og landhelgi. Saga sjómennskunnar er órofa samtvinnuð sögu íslensku þjóðarinnar. Núna er í lagi að vaða yfir árangurinn á skítugum skóm háskólamenntaðs fólks sem telur eigin raunheim úr tengslum við veruleikann æðri dugnaði Íslendinga í aldanna skaut.
Stefna ríkisstjórnarinnar er morð á mikilvægustu undirstöðugrein atvinnulífsins. Það mun ekki líða langur tími þar til árangur leiðréttingarinnar" kemur í ljós. Útgerðir munu fara á hausinn og hætta störfum. Sjómenn munu hætta sjósókn og leita eftir vinnu í landi. Afskipti fákunnugs fólks með ríkisvald í höndum mun leggja efnahagslíf þjóðarinnar í rúst. Því miður skilja ekki barnalegir mennta- og háskælingar öll umsvif og störf kringum sjóinn sem hefur svo mikil áhrif á velferð landsmanna. Það eru ekki bara sjómennirnir og útgerðarmennirnir sem fara og vinna afrekið að ná þorskinum upp úr hafinu, heldur allur sá skari manna sem kemur því í kring að gera það mögulegt. Skipasmíðar, hátæknibúnaður, netfæraframleiðsla, viðhald, fasteignir og fiskverkunarstöðvar í landi, flutningar innanlands og á erlenda markaði og svo má lengi halda áfram að telja þau jákvæðu áhrif sem sjómennskan hefur á allt líf þjóðarbúsins.
Íslenskur fiskur er einn sá besti ef ekki sá besti sem til er í heimi. Ísland gegnir mikilvægu hlutverki í matarkeðju miklu fleiri en Íslendinga sjálfra. Allt þetta hefur áunnist með gríðarlegum dugnaði sjóvíkinga sem skapað hafa verðmætin á heiðarlegan hátt og þjóðin hefur notið góðs en ekki þurft að súpa seyðið af eins og þarf eftir útrásarvíkinga.
Það sem verið er að leiðrétta" er að ríkið eignar sér afrakstur sjómanna sem núna verður ríkiseign. Ísköld hönd kommúnismans drepur allan þrótt einstaklingsins, jarðar frjálsa samkeppni og innlært bókavit fræðikenninga stjórnar för þeirra gáfuðu" sem allir aðrir eiga umsvifalaust að falla á kné fyrir og tilbiðja. Núna eiga sjómenn að vinna sex daga af sjö fyrir valkyrjustjórnina og fá fyrst laun í eigin vasa á sjöunda degi sjósóknar.
Með hatri og ósvífnum, óréttlætanlegum árásum á sjómenn beitir valkyrjustjórnin sér fyrir því að rústa árangri sjálfstæðisbaráttu Íslendinga í meira en 100 ár, þar sem stækkun landhelginnar lagði grunninn að þróun fiskveiðiflota landsmanna og auknum afla. Þegar allt efnahagskerfið hrynur á nýjan leik eftir störf þessara nýju innrásarvíkinga verður of seint að bjarga sér. Litið er á fiskveiðikerfið sem svik og þjófnað sjómanna í stað þess að skilja að það er einstakt á heimsmælikvarða og örugg trygging fyrir velferð þjóðarinnar.
Efnahagssérfræðingum valkyrjustjórnarinnar verður eflaust hampað af ríkisstjórn Norður-Kóreu, svo vel hefur þeim tekist að fara fram úr snillingum kommúnismans þar. Það mun ekki líða langur tími þangað til fólk fer að flýja land í matarleit eins og einungis þeim stálheppnu tekst að gera í Norður-Kóreu. Hinir verða að lepja dauðann úr skel og tilbiðja valdhafa sem mata eigin krók á striti annarra.
Það verður dýr missir fyrir þjóðina að sjá á eftir sjávarútveginum. Sú reynsla og þekking sem þar hefur varðveist og þroskast verður ekki endursköpuð eftir að sjávarútveginum hefur verið rústað. Markmið ríkisstjórnarinnar er að tróna með inngöngu í ESB sem lausn á því neyðarástandi sem hún skapar.
Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur.
![]() |
Þórunn: Ljúka umræðunni á morgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmálavændið
5.5.2025 | 08:38
Það er ömurlegt að fylgjast með hnignun íslensks samfélags. Þrátt fyrir sífellt menntaðri þjóð samkvæmt pappírnum, þá hrakar lestrar- og stærðfræðikunnáttu barna í grunnskólum. Breiðholtsskóli með fagurgala á pappír heldur ekki vatni í raun. Þjóðin má þakka fyrir einstaklinga eins og Hermann Austmar faðir stúlku í skólanum, sem óskaði eftir að námsmatið yrði lagt fyrir hópinn þar sem hann taldi öruggt að nemendurnir hefðu ekki fengið viðunandi kennslu vegna ofbeldisvanda sem hefur þrifist í skólanum."
Niðurstöður matsins sýna ofmat stjórnenda og kennara skólans miðað við raunverulega kunnáttu nemenda og þannig reynt að hylma yfir raunveruleikann. Ef Hermann Austmar hefði ekki farið sjálfur af stað til að fá fram sannleikann, er óvíst að nokkur annar hefði gert það. Með sömu úrkynjun menntunar og skóla á landinu í dag verður Ísland þriðja heims ríki eftir nokkur misseri.
Fölsun staðreynda með opinberum yfirlýsingum eins og í Breiðholtsskóla eru ekkert einsdæmi heldur dæmigert fyrir þá tækifærisstefnu sem trónar á Íslandi og hefur gert í áratugi.
Allt er til sölu, ekkert hefur gildi ef ekki er hægt að setja verðmiða á það. Þannig er menntunin orðin annars flokks söluvarningur þar sem árangurinn skiptir ekki lengur neinu máli. Öll stjórnmálastéttin er undirlögð svindlmenningu útrásarvíkinganna forðum sem rændu landsmenn og aðra í mörgum löndum Evrópu. Uppgjörið við hrunið var að ljúka skuldadæmi fjárglæframanna með lagalegri leið en vitundarhliðin var aldrei gerð upp. Stjórnmálastéttin hefur því miður tekið upp verstu glæfrasiðina og verðlaunar sjálfa sig og einstaklinga sem hafa skaðað þjóðina með opinberum embættum á Alþingi og í utanríkisþjónustunni.
Allt er gert að söluvarningi, menntun, náttúra, tungumál, auðlindir, menning....sjálft Ísland er til sölu. Gleymt er að af aurum verður margur api og bestu hlutirnir fást ekki keyptir eins og raunverulegur kærleikur, góð fjölskyldubönd og gott heimili. Landsmenn þurfa að fara að vakna upp úr menningarroti útrásarvíkinganna og klára dæmið með því að fara að fordæmi Hermanns Austmar og krefjast árangurs af þeim sem eru í stjórn, hvort svo sem það er í grunnskóla, sveitarfélagi eða ríkisstjórn. Örlög íslensku þjóðarinnar verða aðeins söluvarningur á meðan almenningur sefur.
Breiðholtsskóli stendur líka fyrir það vandamál sem ábyrgðarlaus stjórnmálastétt hefur þvingað á landsmenn með niðurlagningu landamæra Íslands og allir boðnir velkomnir til landsins í boði skattgreiðenda. Peningagræðgin er slík að íslensk tunga er í útrýmingarhættu. Þjóðin er orðin að leiguliða í eigin landi og vændiskonur stjórnmálastéttarinnar þeysa á fundi hirðarinnar í Brussel til að selja út það sem eftir er af Íslandi.
Vændið er aðalburðarstoð íslenskrar menningar nútímans.
![]() |
Einkunnir gáfu allt aðra mynd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Samfylkingin nýtir sé andvara- og kæruleysi í nornaseiðinn
3.5.2025 | 11:46
Það er athyglisvert að bera saman ávarp forsætisráðherra Íslands, Kristrúnar Frostadóttur, á fundi Samfylkingarinnar 1. maí, við raunveruleikann. Hún reynir að tæla verkalýðshreyfinguna með sér í að byggja upp alræðisríki fasismans á Íslandi sem verður á endanum lokaútkoman ef jafnaðarmannaforinginn fær sem hún vill.
Forsætisráðherrann sagði:
Gagnrýni á ríkið, á kerfið, á að vera í okkar höndum - við getum ekki eftirlátið þeim sem vilja ekki að kerfið virki, vilja ekki að ríkið virki að gagnrýna það og rífa það niður. Þetta verður verkalýðshreyfingin líka að hafa í huga í samvinnu við okkur - og í huga við eigin baráttu og skipulag.
Hér lýsir foringi jafnaðarmanna á Íslandi því yfir, að Samfylkingin eigi einkarétt á því að gagnrýna kerfið." Öll önnur gagnrýni en sú sem Samfylkingin/ríkið leyfir er niðurrifsstarfsemi. Þetta er höndin í hanska haturslöggjafarinnar, þar sem yfirvöld túlka hverju sinni, hvað er hatur. Nýlegt dæmi jafnaðarmanna í Þýskalandi er drápslag gegn lýðræðinu með útskúfun Valkosts fyrir Þýskaland sem öfgahægri" flokks hættulegum lýðræðinu. Næsta skref verður að banna flokkinn sem núna er stærsti flokkurinn í þýskum stjórnmálum. Bandaríkjastjórn gagnrýnir Þýskaland fyrir að endurreisa Berlínarmúrinn.
Valdataka á ríkisstofnunum í þágu flokkshagsmuna
Á Íslandi vill Samfylkingin eigna sér ríkið og sósíalisminn, sem nútíma jafnaðarmenn aðhyllast, þótt þeir þykist vera eitthvað annað, verður opinber stefna ríkisins. Þetta er yfirlýsing um valdatöku eins flokks á ríkisstofnunum Íslands til að nota fyrir markmið flokksins. Allir sjá að þetta hefur ekkert að gera með lýðræði eða lýðræðisleg vinnubrögð. Alræði flokksins í Reykjavík og skelfilegar afleiðingar af stefnu Samfylkingarinnar í húsnæðismálum er öllum ljós, þegar borgarbúum er breytt í leiguliða stóreignavina Samfylkingarinnar. Markvisst er verið að útrýma möguleikum einstaklingsins á að koma sér þaki yfir höfuðið og borgin fyrir löngu farin á hausinn, þótt reynt sé með töfrapinna jafnaðarmanna að hræra í pappírstölum borgarinnar.
Þess vegna er það kaldranaleg hræsni að jafnaðarmannaforingi Íslands fullyrðir að jafnaðarmenn berjist fyrir því að verja réttindi einstaklinga gegn ofríki stjórnvalda." Ofríki stjórnvalda er einmitt sú stefna sem Kristrún boðar með einkaeign Samfylkingarinnar á sannleikanum." Mjög margir Reykvíkingar eru til frásagnar um ofríki borgarinnar í höndum Samfylkingarinnar sem er fordæmið fyrir stjórn Samfylkingarinnar í ríkismálunum.
Bylting byrlunarmenningarinnar
Kristrún Frostadóttir vísar í alþjóðlega þróun sem er eins konar endapunktur umræðunnar um þróun Íslands sem sjálfstæðs ríkis og það kemur skýrt fram í hvaða tilliti. Útlendinga- og innflytjendamál, varnarmál og löggæslumál eru mikilvæg til að öfgaflokkar vaxi ekki og dafni í kosningum fyrir vikið:
Því miður sjáum við dæmi þess allt of víða á Vesturlöndum á síðustu árum. Þess vegna segi ég: Andvaraleysi og kæruleysi er ekki í boði. Við í Samfylkingunni verðum að taka þá ábyrgð sem okkur er falin alvarlega. Og ég hvet verkalýðshreyfinguna sömuleiðis til að taka þátt með virkum hætti í samfélagsumræðu um viðkvæm en mikilvæg mál sem liggja félögum þeirra á hjarta.
Herða skal eftirlit með opinberri umræðu og byrlunarmenning Samfylkingarinnar færð út í ríkisstofnanir til að elta uppi stjórnarandstæðinga og refsa. Markmið Samfylkingarinnar er að koma á fót innlendu njósnakerfi yfir allar umræður og elta uppi og auðkenna stjórnmálaandstæðinga Samfylkingarinnar og setja viðkomandi í gapastokk á Lækjartorgi fyrir rétttrúaða til að hrækja á og smána á allan hátt.
ESB-atkvæðagreiðslan er rýtingur í bak þjóðarinnar
Það er svo hámark hræsninnar að Kristrún Frostadóttir reynir að telja landsmönnum trú um að Samfylkingin sé eitthvað sameiningarafl eftir stærstu átök og klofningu þjóðarinnar í Icesave, þar sem Samfylkingin var 100% á sveif með óreiðumönnum að koma skuldum þeirra á herðar almennings. Kristrún segist ætla að færa fólkið í landinu nær hvort öðru og byrjar á því að tilkynna þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB sem er fyrir utan að vera brot á kosningaloforðum hennar rýtingur í bak þjóðarinnar. Síðan eyðileggur hún ásamt samstarfsflokkunum aðal undirstöðuatvinnuvegi þjóðarinnar, sjávarútveg og ferðamannaiðnað. Önnur eins sameiningartækni finnst hvergi í heiminum nema í vopnabúri Lenín og Stalíns.
Þessi auma valkyrjustjórn er ekkert annað en völd norna sem bræða þjóðinni eiturseið úr hugmyndafræðilegum grösum sínum. Jafnaðarmenn nútímans eiga ekkert skylt við heiðarlega jafnaðarmenn. Áður var það talinn glæpur að byrla fyrir öðrum. Hvernig ætlar til dæmis Kristrún Frostadóttir að útskýra að þrátt fyrir að konur séu nær í öllum mikilvægustu embættum þjóðarinnar að launamismunur kynjanna hefur aukist að undanförnu?
![]() |
Andvaraleysi og kæruleysi er ekki í boði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |