Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2025

Spilling Sjálfstæðisflokksins hverfur ekki einfaldlega með kjöri nýs formanns

XD-Logo-3879874383-1Landsfundur Sjálfstæðisflokksins er um þessa helgi og mikill spenningur aðallega varðandi formannskjör eftir að Bjarni Benediktsson tók réttilega þá ákvörðun að víkja til hliðar. Arfleifð hans mun hins vegar ekki hverfa með nýjum formanni flokksins. Sú uppgjafar- og ósjálfstæðismenning sem hreiðrað hefur um sig innan flokksins undir valdstjórn Bjarna Benediktssonar er dýpri en að það dugi að skipta um formann. 

Bjarni Benediktsson sýndi það í Icesave deilu þjóðarinnar að hann vildi ekki fara dómsstólsleiðina. Hann hefur aldrei viðurkennt það, hvorki fyrir sjálfum sér eða öðrum að hann lenti vitlausu megin við þjóðina sem hafnaði samningstillögu sem hann sagði bestu lausnina fyrir Ísland. Þjóðin fylgdi í staðinn stefnu fyrrverandi formanns Sjálfstæðisflokksins, Davíðs Oddssonar, sem gekk út á það að landsmenn ættu ekki að borga skuldir óreiðumanna. Sú leið reyndist farsæl fyrir þjóðina sem engu að síður þurfti að greiða hátt verð fyrir fjármálarán útrásarvíkinganna í bankahruninu. Sú spillingarmenning sem útrásarvíkingarnir sáðu og gegnsýrði íslenska samfélagið er enn við lýði. Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki gert upp við þá spillingu en viðhaldið henni með undirlægjuhætti við Evrópusambandið eins og frumvarpið um bókun 35 sýnir. Þau svik nýtast núverandi ESB-stjórn Íslendinga til að ná fram því markmiði að þvinga Ísland í hlekki sambandsins.

Sjálfstæðismenn hafa ekki gert upp við undirlægjuhátt flokksins gagnvart jafnaðarmönnum, sósíaldemókrötum og vinstri mönnum Íslands. Á meðan Davíð Oddsson var foringi flokksins, þá hélt hann stjórnmálaandstæðingum flokksins í skák vegna meðfæddra leiðtogahæfileika sinna. Á skemmtilegan og húmorsríkan hátt greindi hann kjarnann frá hisminu fyrir sjálfstæðismál Íslands, ætíð trúr stjórnarskrá lýðveldisins og starfi í þágu þjóðarinnar. Hann var kjörinn í snarpri baráttu við ESB-sinnann Þorstein Pálsson sem klauf flokkinn í fýlu við að tapa formannskjörinu. Allt of margir framagosar eru í íslenskum stjórnmálum fá borgað fyrir að gera ekki neitt eins og trúðurinn Jón Gnarr er dæmi um. Sjálfstæðismenn verða að fara að gera sér grein fyrir því, að stjórnmálaskalinn hefur færst til vinstri og hluti flokksins með. 

Flokkurinn verður að endurnýja flokksforystuna með einstaklingum sem ekki eru smitaðir af vinstri veirunni. Slíkt smit lýsir sér í hræðslu við að framfylgja réttmætum, löglegum ákvörðunum ef þær stangast á við hagsmuni ESB og sósíalíska Internationalen. Finna þarf einstaklinga með hæfileika til að leiða flokkinn í stíl Ólafs Thors og Davíðs Oddssonar. 

Það er einkenni íslenskra stjórnmála eftir hrun að stjórnmálamenn bera enga ábyrgð á gjörðum sínum. Litið er á embætti sem hnoss til að auka pyngjuna og monta sig með á mannamótum sérstaklega fyrir fulltrúa erlends valds. Litið er á heiðarleg embættisstörf fyrir þjóðina sem söluvöru til að komast í feitar stöður hjá alþjóðastofnunum. Stjórnmálin á Íslandi þjást af stefnuleysi og almennri hnignun og hafa aldrei komist á skrið eftir fjármálahrunið 2008.

Má fullyrða að stjórnarkerfi landsmanna sé í gíslingu. Sjálfstæðisflokkurinn hefur sögulegu hlutverki að gegna að uppræta þessa spillingu, skera niður báknið og gæta aðhalds fyrir hag þjóðarinnar. Byrja verður í eigin húsi en því miður hefur ekki mikið komið fram sem bendir til þess að sú leið verði farin. Einkenni allra kosninga á Íslandi er að umræðan er grunn og gerð í hálfkáki vegna takmarkaðs tíma og leið sýndarmennsku valin á kostnað innihaldsins. Ráðandi stefna í stjórnmálum er að líta á fé skattgreiðenda sem einkasjóð kjörinna embættismanna. Það er stefna sósíalismans í hrópandi andstöðu við sjálfstæðisstefnuna.

Hér er verk að vinna.

 


mbl.is Tvær kannanir, ólíkar niðurstöður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stríð það eina sem gengur upp

valkyrjurnarForsætisráðherrann og utanríkisráðherrann hafa verið duglegar að sýna sig á alþjóðasviðinu enda er athyglin þar eitt það helsta sem þær sækjast eftir. Fimm sekúndna frægð í heimspressunni er andvirði óteljandi mannslífa á vígvellinum. Kristrún Frostadóttir var í vikunni með aðdáendaklúbbi Zelenskýs í Kænugarði að minnast þriggja ára afmælis innrásar Rússlands í Úkraínu.

Stríð sem átti að vinnast á þremur vikum er enn óunnið þremur árum síðar. Zelenský hefur því þörf á haldgóðri huggun nánustu bandamanna. Aðdáendaklúbburinn er sammála um að fordæma Donald Trump, Bandaríkjaforseta sem dirfðist að ræða um frið án þess að kyssa fyrst á tær valkyrjanna. Samkvæmt Kristrúnu Frostadóttur gengur friður ekki upp, stríð er það eina sem gengur upp. Samak fundurinn í Osló stappaði síðan stálinu í heimsstyrjaldarguði sósíalíska Internationalen.

Síðan hvenær fóru varnarmál Úkraínu inn í íslensk fjárlög?

Norræna gyðjan frá íslenska heimsveldinu tilkynnti stolt:

„Ég get tilkynnt í dag að ríkisstjórn mín hefur ákveðið að rúmlega tvöfalda styrk til varnarmála Úkraínu á þessu ári. – Úkraína myndar öryggislínu fyrir varnir okkar allra í Evrópu.“ 

Að sjálfsögðu munar stórveldinu Íslandi ekki um milljarða hingað og þangað enda styrkurinn til Úkraínu svo lítill að ekki tekur því að fara eftir stjórnarskránni, þegar öryggislína Úkraínu er skrifuð inn sem varnir Íslands fram hjá fjárlögum ríkisins. Fyrst Evrópusambandið getur haldið Úkraínu gangandi með launagreiðslum til starfsmanna ríkisins, þá hlýtur Ísland að geta borgað fyrir nokkrar sprengjuhreinsanir.

Eitt ríki – einn alþjóða sósíalismi – einn foringi

Evrópa á að þétta raðirnar og verða eitt ríki. Ef marka má kyrjur Evrópusambandsins. Úkraínustríðið staðfestir Rússagrýluna. Rússagrýlan staðfestir markmið ESB-gyðjanna um eitt ríki, einn foringja. Fullveldissinnar sem fylgja stjórnarskrám eigin þjóða eru óvinurinn. Þeir dást að niðurskurði Trumps og tiltekt heima fyrir. Þeir vilja frið og tala við Pútín sem er bannað. Andi hervæðingar fyllir vitin. Meiri vopn. Áframhaldandi stríð. Meiri peninga. Köstum Pútín út og stykkjum Rússland í minni ríki. Rússland er of stórt, nær frá Eystrasalti til Kyrrahafs. Það hefur alltaf verið stórt. Napóleon fannst það of stórt. Hitler fannst það of stórt. Núna finnst æðsta guði ESB í Brussel Rússland of stórt. Vopnahlé að hætti Trumps og Pútíns er óhugsandi. Eina leiðin til að tryggja friðinn er allsherjarstríð gegn Rússlandi til að verja öryggislínu okkar Íslendinga.

Svo kallaðir jafnaðarmenn mynda harðlínufylkingu gegn lýðræðinu á Vesturlöndum. Einungis eitt ríki, ein rödd, einn foringi verður leyfður. Betra að vinna með kommúnískum byltingaröflum en einstaklingshyggjuflokkum fullveldis og sjálfstæðra þjóða. Sósíalíski Internationalen stjórnar á bak við tjöldin. ESB og Íslandi.

Allt til hægri við Stalín og Samak stimplað sem öfgar

Það hættulegasta sem til er fyrir hina stríðsóðu krata og vinstri bandamenn þeirra er fólk sem vill ráða örlögum sínum sjálft. Þeim fjölgar stöðugt sem sjá og skilja að verið er að teyma Evrópubúa beint í glötun: Heimsfaraldur, græna lygin, stafrænt eftirlit með öllum einstaklingum, innflutningur íslamskra atkvæða, niðurskurður málfrelsis, stöðug stríð og núna hótun um heimsstyrjöld. Kratar og kommar hafa sameinast í eina sæng. Ekki bara í Reykjavík heldur í ESB og í heiminum. Allt hægra megin við Stalín og Samak er stimplað sem öfgar. Árásir á lýðræðið er númer eitt. Árásir á alla þá sem verja lýðræðið fylgir. Allt í nafni lýðræðis.

Þegar Hitler réðst á Sovét 1941 hrópuðu sænskir jafnaðarmenn upp yfir sig í aðdáun á þessum snarpa manni sem fór í frelsisstríð fyrir alla aðra í Evrópu gegn rauðu hættunni í Moskvu. Í dag hylla vinstri menn hinn snarpa Zelenský, brautryðjanda frelsisstríðiðsins gegn Rússum. Friður Pútin og Trump er til trafala. Þá verður að byggja ESB-her. Sama formúla og fyrr.


mbl.is „Vopnahlé á hvaða forsendum sem er gengur ekki upp“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samstaðan rofin um hagsmuni Íslands

gullnahlidesbForsætisráðherra Íslands leggst í víking með öflum óvinveittum íslenskri þjóð. Á kostnað skattgreiðenda flengist hún um heiminn í faldi keisarans í Brussel. Kristrún Frostadóttir hefur meiri samstöðu með sósíalíska Internationalen en með íslenskri þjóð. Mesta eitur í beinum valkyrjanna er stjórnarskrá íslenska lýðveldisins sem þær hafa svarið eið að framfylgja.

Fyrsta frumvarpið um bókun 35 á að tryggja endanlega yfirtöku á íslenska löggjafanum. Síðan verður fylgt eftir með kosningaleikriti um aðild að ESB svo Kristrún og aðrir skósveinar ESB geti veifað „samstöðu" þjóðarinnar með hinu erlenda yfirvaldi og stimplað sjálfa sig inn sem mikilmenni hjá framtíða drottnurum Íslands.

Nái áform þessarar hreinræktuðu vinstri stjórnar fram að ganga, sem keyrir áfram svikastefnu Sjálfstæðisflokksins sem þjóðin hefur mátulega lagt sem hálfstæðisflokknum, nær lýðveldið ekki að verða aldargamalt. Fari svo sem sósíalíski Internationalen vill, að stofnaður verði sameiginlegur her fyrir ESB og lagt út í þriðju heimsstyrjöldina gegn Rússum, er óvíst hvort nokkru sinni komist á lýðveldi aftur á Íslandi.

Allt það sem forfeðurnir börðust fyrir, losun úr fjötrum nýlenduríkis til burðugrar lítillar en sjálfstæðrar þjóðar, verður til einskis. Öll baráttan fyrir stækkun landhelginnar verður að engu höfð sem kannski gæti glatt samstöðuminni söguendurritarans Guðna Th. Jóhannessonar sem ósáttur er við fávísan lýðinn.

Kristrún Frostadóttir og samkyrjur hennar þær Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Inga Sæland fá kannski að glansa í fimm mínútur við gyllta hliðið í Brussel sem er allt sem þær sækjast eftir fyrir störf í þágu Evrópusambandsins.

Minnumst orða Arnar Þórs Jónssonar, formanns Lýðræðisflokksins:

„Hlutverk þingmanna er að verja stjórnarskrá lýðveldisins, styrkja innviði og verja Alþingi sem löggjafarþing.“

Ekkert af þessu virða ráðherrar ríkisstjórnar Íslands sem hafa skilið eftir stjórnarskrá Íslands frosna í öræfahelli týndri öllum landsmönnum. Ríkisstjórn Íslands gerir allt sem í hennar valdi stendur til að slökkva það ljós sem lyftir þjóðinni duftinu frá og gefur hinu eilífa smáblómi líf.


mbl.is „Samstaðan er lykilatriði“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fer ekki á milli mála að ríkisstjórnin vill blóðugt stríð

KristrunÞað ríkir mikil samstaða meðal bandamanna sósíalíska Internationalens um að friður sé ekki uppi á borðinu varðandi Úkraínu og að þriðja heimsstyrjöldin sé eina forsenda varanlegs friðar í þeirri Evrópu sem þá verður eftir. Reynt er að gera lítið úr tölum fallinna hermanna og óbreyttra borgara í Úkraínu, ekkert hlustað á mannúðleg sjónarmið Bandaríkjamanna en persónulegar árásir stundaðar í staðinn gegn Donald Trump sem hefur verið aðalsport vinstri manna síðan 2016. Reynt er að klína Hitler á alla ráðherra ríkisstjórnar Bandaríkjanna og íhaldsmenn almennt og sagt: Úkraína er að berjast fyrir okkur. Fellur Úkraína fellur frelsi okkar. Pútín mun ekki láta staðar numið og ráðast á okkur og hertaka löndin okkar.

Þegar Hitler réðst á Sovétríkin 1941 í aðgerðinni Barbarossa, þá skrifaði málgagn systurflokks Samfylkingarinnar, Aftonbladet sænska, sem kratar stjórnuðu, eftirfarandi í leiðara dagsett 22. júni 1941 með fyrirsögninni Frelsisstríð í Evrópu. Það er sláandi hversu lík orðræðan þá er orðræðu Kristrúnar Frostadóttur og þeirra sem bergmála orðræðu sósíalista og ESB í dag. Hér að neðan er texti leiðarans en orðinu Þýskaland hefur verið breytt í ESB:

Frelsisstríð Evrópu


aftonbladet-barbarossa3-497877283

 

„ESB..... hefur brotið fjötra sína og stefnir nú með frelsi og auknum styrk í átt að evrópsku, heimssögulegu verkefni sínu að mylja niður rauða stjórnina, sem er stöðug ógn við sjálfan grundvöll frelsisins. Í skjóli málamynda ríkisstofnunar ógnar Moskva allri samtíð okkar.“

„Undir forystu ESB stefnir Evrópa í þjóðarstríð gegn Rauða heimsveldinu.“

Rök dagsins fyrir áframhaldandi stríði í Úkraínu eru endurtekin rök Hitlers sem réðst á Sovétríkin 1941. Þá hylltu sænskir jafnaðarmenn Hitler og sögðu stríð nazismans vera frelsisstríð fyrir alla Evrópu, þar á meðal Svía. Í dag dynja sömu rök daglega á íbúum Svíþjóðar, Finnlands og annarra aðildarríkja Evrópusambandsins.

En tímarnir eru ekki þeir sömu. Kommúnismi Sovétríkjanna hefur fallið og Rússland er komið í staðinn. Samt sem áður er stríðsáróður sósíalista árið 2025 sá sami og stríðsáróður sósíalista var árið 1941. Sósíalistar verða seint sakaðir um að vera fljótir í hugsun.

Kristrún Frostadóttir fylgir blint og gagnrýnislaust flokkslínu sósíalíska Internationalen og dælir meira af skattfé landsmanna í hið tapaða Úkraínustríð. Ákvarðanir sem varða Ísland eru ekki lengur teknar á Alþingi heldur erlendis. Alþingi er orðið að verkfæri til að ráðstafa skattfé hart vinnandi Íslendinga og verkefnadeild glóbalizta fyrir yfirtöku á auðlindum landsins. Þetta er ójafn leikur þar sem sífellt hallast meira á landsmenn.

Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur fylgir áætlun ESB um innlimun Íslands í ESB. Bókun 35 er fyrsta og afgerandi skrefið. Kosningar í kjölfarið skipta engu máli. Kosið verður eins oft og þarf til að kreista já út úr landsmönnum.

Bandaríski ofurstinn Douglas Macgregor segir Zelensky fasista, einræðisherra og óvin kristinna manna. Zelensky er sérstakur vinur forsætisráðherra Íslands.

 


mbl.is Kristrún: Fer ekki á milli mála hver réðst á hvern
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnsýsla á heljarþröm

ruvþing

Það er hreint ótrúlegt að fylgjast með byrlunarmálinu svo kallaða sem blaðamennirnir Páll Vilhjálmsson og Stefán E. Stefánsson eiga heiðurinn af að hafa upplýst. Páll Vilhjálmsson hefur lagt grundvöllinn í nokkur ár að uppljóstrun þessa morðtilræðis við skipstjórann Pál Steingrímsson. Skipstjórinn lá milli heims og helju eftir byrlun svefnlyfs á meðan fyrrverandi forsetaframbjóðandi, Þóra Arnórsdóttir, starfsmaður RÚV ásamt fleirum á þeim bæ, fékk síma hans til afritunar. Málið varpar ljósi á alvarlegustu stjórnmálaspillingu Íslands í seinni tíð og sér í lagi spillingu ríkisfjölmiðilsins sem skattgreiðendur eru neyddir til að borga fyrir.

Allir skilja að greiðslur til að kosta ríkisfjölmiðil er ekki ætlað til grófra afbrota eins og morðtilræða eða stulds á einkasímum. Það er engin blaðamennska að véla fólk til liðs við sig til sem beitir slíkum aðferðum til að komast yfir gögn í leit að æsingafrétt til að koma höggi á pólitískan andstæðing. Það hefur verið merkilegt að fylgjast með vörnum viðkomandi blaðamanna sem réttlæta framda glæpi í nafni blaðamennskunnar. Slíkar aðferðir eiga að sjálfsögðu ekkert skylt við eðlilega blaðamennsku en sýna hversu langt ríkisfjölmiðill landsmanna er kominn frá verkefni laganna sem honum eru settar. Landsmenn vilja ekki borga fyrir laglausan slúðurmiðil.

Útungunarvél stjórnmálamanna

Í grunninum fjallar byrlunarmálið um hatur vókaðra aðallega samfylkingarblaðamanna Ríkisútvarpsins gegn arðbærri undirstöðugrein landsmanna og eigendum fyrirtækja í sjávarútvegi. Hatrið er þvílíkt að byrgt hefur alla sýn á grundvelli blaðamennsku viðkomandi starfsmanna RÚV sem gerst hafa afbrotamenn í því skyni að uppfylla pólitískan rétttrúnað og misnota ríkisfjölmiðilinn til að breiða út eigin stefnu í stjórnmálum.

Samfylkingin hreiðraði um sig og náði fljótt völdum innan RÚV og bjó til útungunarvél fyrir stjórnmálafólk. Ef andlitið var kynnt landsmönnum gegnum skjáinn, kom viðkomandi inn í kosningabaráttuna á allt öðrum forsendum en aðrir sem þurftu að kosta miklu fé til að kynna sig þjóðinni. RÚV hefur þannig orðið stökkpallur fyrir alls konar framagosa til að komast áfram í vel launaðar stöður á alþingi eða í forsetastól á Bessastöðum. Þóra Arnórsdóttir bauð sig fram til forseta Íslands 2012 gegn sitjandi forseta Ólafi Ragnar Grímssyni en skjáandlit hennar dugði samt ekki til eftir auknar vinsældir forsetans sem beitti sér í Icesavemálinu. Aftur á móti dugði skjáandlit Guðna Jóhannessonar sem fékk viðkomu og kynningu RÚV á tímabili áður en hann kynnti framboð sitt til forseta. Mörg önnur nöfn má nefna, hér eru einungis nokkur dæmi nefnd af handahófi: Eiður Guðnason þingmaður, Guðbjörg Rikey borgarstjórnarfulltrúi Reykjvíkinga, Ólafur Árnason þingmaður, Ágúst Ó. Ágústsson þingmaður, Sigríður I. Ingadóttir þingkona, Páll Jónsson þingmaður osfrv.

Valdatæki andstæðinga íslensku stjórnarskrárinnar

Þessi stjórnmálaspilling hefur ekki komið í einni svipan í stíl við valdarán heldur hefur þróast í áratugi og lagt grundvöllinn að þeirri siðleysismenningu að starfsmenn RÚV telja það sjálfsagðan hlut að gerast brotlegir við landslög. Slík afstaða einkennir valdhafa einræðis sem sitja tryggir á stóli sínum, því þeir hafa tækin í höndunum til að halda andstæðingum sínum fjarri. Því miður er þessi menning ekki einbundin við RÚV heldur gegnumsýrir menningu og vitund íslensku þjóðarinnar. RÚV er Pravda íslensku spillingarinnar sem hefur tekið þjóðarsálina í gíslingu með sífelldum heilaþvotti allan sólarhringinn ár út og ár inn. Þessi menning sem innleiddi vókmenninguna á Íslandi er valdatæki til að skapa, næra, viðhalda og þróa áfram þá spillingu sem sundrar Íslendingum og gerir þjóðina viðkvæma fyrir áformum andstæðingum hennar sem vilja komast yfir auðlindir landsins eins og fiskinn í landhelgi Íslands. Það er engin tilviljun að flest allir stjórnmálamenn aldir upp á RÚV styðja aðild Íslands að ESB og eru í slíkum flokkum. Frá þessu fólki hefur atlaga verið gerð og enn á að reyna að gera til að afnema rétt landsmanna til að ráða örlögum sínum sjálfir með breytingu á stjórnarskránni. Frumvarp um bókun 35 og uppvakning aðildarumsóknar ESB eru nýjustu dæmin.

Þakka ber Páli Vilhjálmssyni fyrir að standa trúfastur á grundvelli starfsgreinarinnar, Morgunblaðinu fyrir að taka málið á herðar sínar og Stefáni E. Stefánssyni fyrir aðkomu og umfjöllun. Án þessara aðila væri þjóðin í myrkri stödd.

Það er mikilvægt fyrir þjóðina að láta ekki áróður, ósannindi og sviksamleg markmið andstæðinga sinna sundra landsmönnum frá því að verja réttinn að ráða örlögum sínum sjálfir. Skjaldarmerkið okkar er varið af fjórum landvættum og þörf er á þeim öllum í þeirri baráttu sem fram undan er.


mbl.is Starfsfólk RÚV huldi slóðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er það hlutverk Íslands að ákveða dagskrá Bandaríkjaforseta?

ukraina

Er þetta hluti þeirrar heildar sem utanríkisráðherra Íslands vill að Íslendingar verði þátttakendur í? (Samsett mynd með nasistaherdeild Azov í Úkraínu).

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir fer mikinn í Morgunblaði gærdagsins og segir það „skrítið þegar Rúss­ar og Banda­ríkja­menn setj­ast niður í Sádí-Ar­ab­íu að ræða um Úkraínu og ör­yggi Evr­ópu." Hún er hæstánægð með sterkan vilja ESB og skipar Íslendingum að vera „fullir þátttakendur í þeirri heild sem er að myndast."

Síðast þegar sterkur vilji ríkti í Evrópu var það undir forystu Þýskalands sem endaði í heildarblóðbaði seinni heimsstyrjaldarinnar. Enn á ný þéttast raðirnar þeim megin og kannski lýsir það best allri viðkvæmni við gagnrýni varaforseta Bandaríkjanna á lýðræðisskorti Þýskalands en þar er reynt að endurtaka herbragð Hitlers sem fékk stuðning annarra flokka til að banna kommúnistaflokkinn á sínum tíma. Í dag er það flokkurinn Valkostur fyrir Þýskaland sem stjórnmálaelítan reynir að útiloka frá þátttöku í kosningunum næsta sunnudag.

Evrópuher undir þýskri stjórn ekki lausnin

Vance gagnrýndi einmitt aðkomu ESB að ógildingu kosninganna í Rúmeníu af því að „vitlaus" forsetaframbjóðandi vann í fyrri umferð kosninganna. Vance fannst það óhuggulegt að fyrrum hátt settur embættismaður ESB hefði lýst því yfir að ESB ætlaði sér að halda áfram á þeirri braut. Sama tilfinning finnst í brjóstum margra íbúa meginlandsins.

Ef að raðir ESB þéttast á þann hátt, að Evrópuher verður stofnaður með fulltingi Þjóðverja, þá verður sama maskína ræst og tókst næstum að eyðileggja alla Evrópu í seinni heimsstyrjöldinni. Verði sú leið farin verður eyðileggingin í þriðju heimsstyrjöldinni svo mikil að álfan gæti verið óbúanleg mannfólki í 100 þúsund ár. Það er sú heildarmynd sem blasir við, ef valkyrjurnar fjórar með Von der Leyen í fararbroddi fá að vaða áfram á skítugum skónum í álfunni og Þorgerður vill að Íslendingar verði „fullir þátttakendur í."

Hvað er það sem ekki stemmir frú Þorgerður?

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sýnir af sér þvílík hortugheit og fábjánahátt að hún stekkur á stall og skammar Bandaríkjaforseta fyrir að halda fundi án síns leyfis. Gorgeirinn hæfir valdmennsku ESB vel en engan veginn lítilli þjóð eins og Íslandi og er landsmönnum til mikillar skammar.

Það sem ekki stemmir er að utanríkisráðherra Íslands telur það vera í sínum verkahring að ákveða dagskrá og fundarhöld Bandaríkjaforseta. Enginn íslenskur kjósandi hefur greitt atkvæði um þá stefnu sem Gunnarsdóttir færir fram. Enginn á Íslandi kýs þann sem fer í Hvíta húsið. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er aumur fulltrúi landsmanna en þeim mun betri fulltrúi fyrir glóbalizta og útrásarvíkinga sem snúið hafa aftur og gera núna innrás gegn eigin þjóð.

Guð varðveiti íslenska þjóð og bjargi henni frá því að verða fullir þátttakendur í heildarheimsku Þorgerðar Katrínar og valkyrjustjórnarinnar


mbl.is Evrópa þéttir raðirnar og Ísland á að taka þátt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta skref verður að skilgreina Bandaríkin sem hægri öfga ríki

kolbrun reykdalMóðgaða ESB-elítan er ekki búin að ná áttum. Ekki enn þá. En ef ESB gæti, þá myndu þeir koma fram við Bandaríkin eins og þau gera við íhaldsflokka sem gagnrýna ESB. Bandaríkin yrðu titluð sem öfga hægri samsærisríki. Frelsisstjórn Bandaríkjanna hefur með einni gagnrýnni ræðu tekið upp málsvarann fyrir alla Evrópubúa sem vilja frið og frelsi.

Þórdís Reykdal tók fyrir löngu síðan afstöðu með ókjörnum embættismönnum alþjóðastofnana sem traðka á lýðræðinu í Evrópu. Núna fær hún eins og aðrir skósveinar Brussel hirðarinnar að kyngja því hvoru megin hún stendur. Konan sem eyðilagði stjórnmálatengsl Íslands við Rússland skilur að sjálfsögðu ekkert frekar en aðrir ólýðræðissinnar af hverju Donald Trump leyfir sér að yrða á hryðjuverkamanninn Vladimír Pútín.

Botnlaust hatur og Rússagrýla

ESB ritskoðar rússneska fjölmiðla og skilgreinir Pútín sem hryðjuverkamann sem eftirlýstur er fyrir glæpi gegn mannkyni. Að rætt sé um þátttöku Bandaríkjanna í lituðu byltingunni í Kænugarði 2014 eða tugi veirurannsóknastofa Pentagon í Úkraínu sem Biden jr. var viðriðinn er að sjálfsögðu ekki uppi á borðinu. Að þegja um forsögu og aðdraganda innanríkisstríðsins, þar sem nýir valdhafar Kænugarðs hófu slátrun á Rússum í austurhluta landsins er ekkert annað en ómerkileg sögufölsun. En þannig eru vinnubrögð þeirra sem ásælast rússneskt land. Mætti halda að sjálfur Hitler væri endurborinn, slíkt er hið botnlausa hatur og Rússagrýla.

Djúpi skilningurinn á stöðunni

Djúpur skilningur fyrrverandi utanríkisráðherra er að vara Íslendinga við notkun á orðinu friðarviðræður. Blinda hennar á þróun alþjóðamála er slík að hún sér ekkert nema stríð við Rússland. Hún hefur valið sér bandamenn sem hafa tekið yfir alþjóðastofnanir og breytt alþjóðaregluverki sér í vil. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin er í höndum lyfjarisa, Sameinuðu þjóðirnar í höndum Alþjóða viðskiptaráðsins með vitstola mönnum eins og Klaus Schwab sem boðar kosningalausa framtíð af því gervigreindin veit fyrir fram hvað fólk muni kjósa.

Glæpamenn sem tekið hafa yfir alþjóðastofnanir hafa bæði breytt lögum og keypt stjórnamálamenn til að framkvæma stefnu sína. Grundvelli SÞ hefur verið breytt meðal annars með stefnu um hömlulausan og eftirlitslausan fjöldainnflutning ásamt sósíalískum heimsmarkmiðum. Logið er að jarðarbúum að undirstaða lífríkisins sé hættuleg mönnum og jörðin að farast, tómar spunablekkingar til að komast að lífeyrissjóðum og fjárhirslum ríkisins og rýja fólk inn að skinni.

Í stað þess að horfa gagnrýnum augum í kringum sig, þá skipti Reykdal út íslenskum kjósendum fyrir stórhættulegt erlent fólk sem enginn Íslendingur hefur kosið. Sannleikurinn er enn hinn sami og áður:

Ísland er pínuríki í alþjóðlegu samhengi. Við erum herlaus þjóð. Hvað hefur Ísland þá með að gera að taka slíka hernaðarafstöðu með einum aðila eins og fyrrverandi ríkisstjórn neyddi upp á þjóðina?

Dýr verður Reykdal öll.


mbl.is „Þungur og mikill skuggi yfir Evrópu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hið brýna hagsmunamál Íslands: Fara í heimsstyrjöld gegn Rússum

ÞGK„Langvarandi og réttlátur friður í Úkraínu" er að bola Rússum út úr Austur-Úkraínu. Sá friður kostar heimsstyrjöld við Rússa, þar sem það er bein árás á sjálft Rússland eftir að íbúar svæðisins kusu að sameinast Rússlandi. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hefur gleypt græna lygapillu glóbalizmans sem neitar því að Rússar bjuggu áður í Úkraínu. Töluðu rússnesku sem nazistarnir í Kænugarði neituðu þeim um og hófu fjöldamorð á studdir af George Soros, ESB, CIA og vopnaframleiðendum djúpríkisins í Washington.

Eftir slíkan frið veit enginn hvort Evrópa verður til eða búanleg næstu 100 000 árin. Hvers vegna Íslendingar skyldu sækjast eftir slíkri tortímingu skilja bara þeir sem fá borgað fyrir það. Það er ekki lengur „Ýsa var það heillin" heldur keyptar og bræddar svartúldnar heilasellur í sölumönnum dauðans.

Móðgaðar maddonnur ESB

Valkyrjurnar Frostadóttir og Gunnarsdóttir elta myrkur Evrópusambandsins sem fór grenjandi í enn þá meira myrkur heim eftir frelsisræðu varaforseta Bandaríkjanna á öryggisráðstefnunni í Munchen. Í dag verður Macron með „neyðarfund" í París. Hvað? Sitja ekki valkyrjurnar honum á hægri og vinstri hönd og gogga ráðin í eyru hans að hætti Hugins og Munins? Orðuberar Nató eru í biðröðum eftir að senda hermenn bandalagsins beint í dauðann á vígvellinum og tryggja að heimsstríðið komist á fulla ferð. Pótintátar stærstu sambandsríkja ESB, Þýskaland og Frakkland, núna með stuðningi Bretlands, skortir orð til að lýsa þeirri yfirgengilegu móðgun sem varaforseti Bandaríkjanna sýndi þeim með því að nefna nokkur vel þekkt dæmi um lýðræðisskort þessara ríkja.

Vance benti á það að einum stærsta stjórnmálaflokki Þýskalands, Valkosti fyrir Þýskaland var ekki boðið á þessa ráðstefnu án þess að nefna nafn flokksins. Kannski var fleiri föðurlandsvinum í öðrum ESB-ríkjum heldur ekki boðið en vegna manndrápa og limlesti innflutts brjálæðings daginn áður og svo kosninganna 23. febrúar, þá voru þessi orð einstaklega óþægileg fyrir þýsku hirðina. Glóbaliztar ESB keppast nú hver um annan þveran að setja heimsmet í táraflóði og fúkyrðum út í Bandaríkin. Það er saltblautur formáli að samþykkt nýs hers Evrópusambandsins undir stjórn Þjóðverja sem þá hefur dreymt lengi um.

Vondi, vondi, vondi, voðalega vondi Trump

Fréttamiðlar glóbalizmans ljúga alfarið um fundahöld Pútín og Trumps og segja að ESB og Zelenskí sé bannað að vera með. Vondi Trump keyrir yfir grátandi hirðina í Brussel sem veit ekki sitt rjúkandi ráð. Úps, verður að halda neyðarfund svo hugga megi maddömuna í Brussel og undirbúa stærsta innrásarher sem sést hefur á byggðu bóli síðan í seinni heimsstyrjöldinni. Trump ræðir við báða stríðandi aðila, hann hefur líka rætt við Zelenskí sem mígur í stígvélin og segir að Trump og Pútín leyfi sér ekki að vera með. Rétt eins og að Trump og Pútín myndu skrifa sjálfir undir samninginn án aðkomu Úkraínu. En það er ekki endilega víst að það verði Zelenskí sem skrifar undir þann samning. Trump hefur sagt honum að hann verði að halda forsetakosningar í Úkraínu og mögulega líka að aflétta banni á stjórnarandstöðunni. Kannski hefur Trump sagt við Zelenskí að hann væri ekki löggiltur forseti Úkraínu, eftir að hann kastaði stjórnarskrá Úkraínu í ruslafötuna.

Með lögum skal land bygga og alþjóðalögum eyða

Talandi um virðingu fyrir lögum og reglum. Sama og er í gangi um íslenska alþingismenn. Lög og reglur gilda bara um „hina." Glóbaliztarnir sem hafa hreiðrað um sig í alþjóðastofnunum og nýta sem verkfæri fyrir eigin markmið, hafa breytt þeim öllum með lagaklækjum og mútuðum stjórnmálamönnum. Svo koma heimskingjarnir og norrænar valkyrjur og nota það sem skjöld að allir verði að fylgja alþjóðalögum. Það eru einu rökin og eru ekkert ný af nálinni. Nationalsósíalistar Þýzkalands beittu því sama, notuðu national í stað international, þegar þeir útrýmdu lýðræðinu með breyttum lögum ásamt aðstoð SS.

Bandaríkin eru eina ferðina enn að rísa upp gegn mannvonskunni. Íslendingar mega þakka sínum sæla fyrir að frelsið kemur að vestan og ættu að leggja þeirri vegferð lið í staðinn fyrir að ganga í lið óvinarins og fara til heljar með ESB.

Valkyrjurnar reyna að góla hæst allra svo yfirgnæfi dauðahróp vígvallarins. Þeirra hlutverk er hvort eð er að ákveða hverjir fá að lifa og hverjir eiga að deyja í hildarleiknum.


mbl.is Friður í Úkraínu „brýnt hagsmunamál“ fyrir Ísland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dagur B. boðar ríkisvæðingu sjávarútvegs

 

valkyrjuavarpidÍ besta kommúnistastíl leggur Dagur B. til ríkisvæðingu sjávarútvegs sem atvinnugreinar í pistli í Morgunblaði dagsins. Undir fyrirsögninni „Með almannahagsmunum – gegn sérhagsmunum" segir Dagur málið komið á dagskrá að skilgreina ríkisbúskap í stjórnarskrá til að tryggja „eðlilegt endurgjald af þessari sameign til þjóðarinnar." Verði þetta að veruleika verður undirstöðum íslensk samfélags rústað með lögþvinguðum kommúnisma sem eyðileggur frumkvæði einkaframtaksins og sér ofsjónum yfir umbun þeirra sem skapa verðmætin.

Það þarf ekkert að sérorða um auðlindir lands og sjávar sem tilheyra sjálfstæðri þjóð og er fullvalda sameign hennar. Sjálfsákvörðunarréttur landsmanna yfir landi og sjó er þegar tryggður í stjórnarskrá lýðveldisins frá 1944. En að ætla sér að í skjóli valds að þvinga fram ríkisbúskap í heilli atvinnugrein eins og Dagur B. boðar er ekkert annað en hreinn kommúnismi í hrópandi mótsögn við stjórnarskrá Íslands.

Lóðaskortastefna Reykjavíkur módel fyrir kvótaskortastefnu

Sjálfsagt finnst Degi B. hann vera afskaplega snjall í viðskiptum með skipulögðum lóðaskorti í Reykjavík sem blæs upp húsnæðisverð sem gefur borginni sífellt meiri tekjur í hækkun fasteignagjalda. Með uppblásnum eignum er hægt að fegra tölur og fela hrikalega skuldsetningu sem er að sliga borgarbúa og gerir borgina gjaldþrota við minnsta eignarfall. Þessu sama kerfi ætlar Dagur B. núna að þvinga upp á landsmenn í aðalundirstöðuatvinnuvegi þjóðarinnar, sjávarútveginum. Fordæmið er Reykjavíkurborg sem stundar samninga að tjaldabaki við einstök einkafyrirtæki og býður hæstbjóðanda þjónustu jafnvel þótt hún kosti svik á gerðum samningum og skerðingu þjónustu við aðra bæjarbúa t.d. eins og verksmiðjuhús í íbúðarhverfi í Álfabakka sýnir. Með sömu aðferðum ætlar Dagur B. að etja útgerðarfyrirtækjum hverjum gegn öðrum og vingast þeim sem bjóða hæst til ríkisins.

Dagur B. skrifar:

„Hins veg­ar verður lagt fram frum­varp um hækk­un veiðigjalda. Það er bæði eðli­legt, sann­gjarnt og mik­il­vægt. Hækk­un veiðigjalda er löngu tíma­bær, all­ar töl­ur und­ir­strika það. Hagnaður sjáv­ar­út­vegs áður en hann greiddi veiðigjald, tekju­skatt og trygg­inga­rgjald í rík­is­sjóð árið 2023 var um 87,5 millj­arðar króna. Þegar hann var bú­inn að greiða öll op­in­ber gjöld og alla fjár­fest­ingu stóðu eft­ir 58 millj­arðar króna sem runnu til eig­enda út­gerða sem hafa getað nýtt það fé til fjár­fest­inga í ótengd­um geir­um. Og það á þessu eina ári, 2023."

Þetta þýðir að sjávarútvegurinn greiddi um 30 milljarða í gjöld til ríkisins sem er um 34% skattlagning. Sjálfsagt vilja hatursmenn einkaframtaksins í ríkisstjórninni skattleggja hagnaðinn 100% til ríkisins, þannig að ábati sjómanna verður að engu hafður. Hversu mikið valkyrjustjórnin reynir að hrifsa til sín af undirstöðu velmegunar landsmanna á eftir að koma í ljós.

Arðbærri atvinnugrein rústað og gerð að ríkisbúskap sósíalismans

Dagur B. er að sjálfsögðu ekkert að minnast á það lítilræði, að sjávarútvegurinn skapaði um 360 milljarða útflutningsverðmæti fyrir Ísland árið 2023. Hann skilur heldur ekki að íslenskur sjávarútvegur byggir á römmu einkaframtaki fólks sem vinnur við ein harðgerðustu atvinnuskilyrði sem til eru í heiminum. Á flestum öðrum stöðum eru peningar teknir úr vasa skattgreiðenda til að halda veiðiskipum gangandi. Á Íslandi klára menn sig sjálfir og eru aflögufærir til þjóðarbúsins.

Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur stefnir að því að rústa sjávarútveginum sem mun kippa aðalburðarstoðinni undan efnahagslífinu og velferð þjóðarinnar. Þá vegferð má setja í samhengi við úrslitaárás ESB og skósveina þeirra um yfirráðin yfir Íslandi. Sjálfstæðir útgerðarmenn eru ekkert minni þyrnir í augu ESB en sjálfstæðir bændur.

Dagur dásamar frumvarp atvinnuvegaráðherra varðandi „gagnsæi í sjávarútvegi." Myrkur Dags B. Eggertssonar í stjórnskipun Reykjavíkur segir annað. Það myrkur mun leggjast yfir landið með núverandi ríkisstjórn.

Ísland hefur ekki efni á því að missa arðbærar útgerðir landsins. Hér verður þjóðin að sameinast og hrinda af sér hugmyndum valkyrjuávarps gjaldþrotastjórans frá Reykjavík.


STRÍÐ er leið Evrópusambandsins og Íslands

ukraine Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra Íslands t.v. og Kalla Kajas, utanríkisstjóri ESB t.h. Í bakgrunni er mynd frá appelsínugulu byltingunni í Kænugarði 2014, þegar Vesturlönd æstu til valdaráns og löglega kjörnum fulltrúa fólksins var steypt af stóli. (Samsett mynd).

ESB ræðst gegn friðarumleitunum Bandaríkjanna við Rússland og Úkraínu. Afstöðu Kaja Kallas, utanríkisstjóra ESB má líkja við skælandi barn sem heldur að hún verði skilin eftir ein og yfirgefin. Það er skiljanlegt. Stríðsæsingabandalagið er hluti vandans og ófært um að koma með tillögur að varanlegum friði.

Kaja Kallas fordæmdi friðarviðleitni Bandaríkjanna og kallar utanríkisstefnu Bandaríkjanna „kærulausa diplómatíu sem verðlaunar yfirgang Rússa áður en samningaviðræður hefjast.“ Hún hótaði með stríði gegn hugsanlegum friðarsamningi við Úkraínu:

„Af hverju erum við að gefa þeim allt sem þeir vilja jafnvel áður en samningaviðræður hefjast? Friðþæging hefur aldrei virkað. Það lítur ekki vel út ef einhverjir eru sammála um eitthvað og hinir munu segja: Allt í lagi, þið hafið samið en við munum ekki fylgja samningnum. Úkraínumenn munu veita andspyrnu og við munum styðja þá.“

Í ESB er rætt um „svik" Bandaríkjamanna að hætta að kynda undir áframhaldandi manndráp í Úkraínu. Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna vísar öllum slíkum ásökunum á bug:

„Þetta eru engin svik. Þetta er viðurkenning á því að Bandaríkin og allur heimurinn vill að samið verði um frið.“

Weimar+ yfirlýsing stærstu ríkja ESB

Æðstu fulltrúar utanríkis- og öryggismála í Frakklandi, Þýskalandi, Póllandi, Spán og Bretlands gáfu út yfirlýsingu í beinni andstöðu við breytta utanríkisstefnu Bandaríkjanna. Í yfirlýsingunni sem kölluð er Weimar+ yfirlýsingin segjast ríkin tilbúin að auka stuðning sinn við Úkraínu:

„Við skuldbindum okkur fyrir sjálfstæði Úkraínu, fullveldi og landhelgi í ljósi árásarstríðs Rússlands. Við deilum markmiði áframhaldandi stuðnings við Úkraínu þar til réttlátum, alhliða og varanlegum friði verður komið á. Friði sem tryggir hagsmuni Úkraínu og okkar eigin.“

„Við vísum til þess að öryggi meginlands Evrópu er okkar sameiginlega ábyrgð. Við vinnum því saman að því að efla sameiginlega varnargetu okkar.“

ESB og Ísland vilja áframhaldandi mannsslátrun eins lengi og hægt er


Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands segir yfirlýsinguna marklausa, ESB framlengi stríðið með afstöðu sinni í stað þess að létta undir friðarferlinu. Hann skrifar á X:

„Þessi yfirlýsing er sorglegur vitnisburður um slæma forystu í Brussel. Á meðan forseti Bandaríkjanna @realDonaldTrump og Pútín forseti Rússlands semja um frið, þá birta embættismenn ESB gagnslausar yfirlýsingar.....Afstaða Brussel - að styðja manndrápin eins lengi og hægt er - er siðferðilega og pólitískt óviðunandi.“

Ísland er í slæmum gír með stríðsæsingakonur í ríkisstjórn. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, margfaldar stríðsstefnu fyrri ríkisstjórnar. Hún talar eins og hún sé ráðin amtstjóri ESB yfir Íslandi. Ekkert annað í boði nema að eyða meiri skattpeningum landsmanna í áframhaldandi stríð í Úkraínu. Samtímis undirbúa Trump og Pútín að geta tilkynnt vopnahlé um páskana eða 9. maí sem er sigurdagur Rússa yfir nazistum Þýskalands í seinni heimsstyrjöldinni. Pútín hefur boðið Trump til Mosku og má búast við myndum af þeim saman að virða fyrir sér hernaðarsýningu á Rauða torginu. Það mun ekki minnka angistarvein Kaja Kallas og ESB.


mbl.is Segir Ísland þurfa að efla varnir sínar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband