Fyrirsögnin eru lokaorð Einars S. Hálfdánarsonar í góðri grein í Morgunblaði dagsins, þar sem hann bendir á fölsun Viðreisnar á útflutningstölum en Viðreisn telur útflutning til Asíu með viðkomu á meginlandinu sem útflutning til ESB í staðinn til að fegra tölur um viðskipti Íslands við sambandið. Að nokkur stjórnmálaflokkur dirfist að falsa útflutningstölur á þennan hátt í pólitískum ávinningi er til marks um það að upplýsingaóreiða og falsfréttir koma frá þeim sem mest ásaka aðra um slíkt.
Einar Hálfdánarson mælir fyrir um þá stefnu sem landsmenn þurfa að fylgja til að standast þessa árás Evrópusambandsins og íslensku valkyrjanna sem komnar eru í hlutverk landstjóra ESB á Íslandi:
Nú ríður á að allir taki höndum saman, hvar í flokki sem þeir standa, sem vilja ekki undirgangast erlent vald. Söguþekkingu hefur markvisst verið útrýmt af nútímavinstrimönnum, en mörgum er hún þó enn töm. Hrindum þessari ásælni Evrópusambandsins og meðhjálpara þess af höndum okkar!
Óhætt er að taka undir þessa herkvaðningu. Oft hefur verið þörf en nú er nauðsyn.
![]() |
Umsóknin „dregin til baka“ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
INNLIMUNARSINNAR hafa hingað til verið duglegir við að halda því fram að útflutningur til ESB landa sé "ríflega" 50% (sem er haugalygi) en samt sem áður er hægt að standa á þessari vitleysu. Því að afurðir álveranna, sem er um þriðjungur af útflutningi okkar, er fluttur til Rotterdam, þar er álinu skipað um borð í ANNAÐ SKIP SEM FRAMFLYTUR ÁLIÐ TIL KÍNA. þarna fara ríflega 30% útflutningsins til ESB ANNAÐ og þá verður útflutningurinn niður í 20%. En hvaðan Utanríkisráðherrann fær þessi 70% er mér hulin ráðgáta????????
Jóhann Elíasson, 23.7.2025 kl. 10:50
Sæll Jóhann og þakka þér fyrir athugasemd. Já það þarf að taka fram réttar tölur um þetta, því ekki gerir ráðherrann það. Allt séð með lygagleraugum ESB.
Gústaf Adolf Skúlason, 23.7.2025 kl. 12:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning