Popúlismi í sinni tærustu mynd
25.6.2025 | 10:48
Orðin eru Guðrúnar Hafsteinsdóttur, formanns Sjálfstæðisflokksins, sem skrifar í grein í Vísi í gær að það sé grafalvarlegt þegar forsætisráðherra æðsti embættismaður þjóðarinnar vænir þá sem gagnrýna ríkisstjórnina um að tala í falsfréttastíl. Guðrún skrifar:
Slíkt tal á ekkert skylt við stjórnmál sem byggja á málefnalegri umræðu, rökum og virðingu fyrir ólíkum sjónarmiðum. Það er hins vegar bein tilraun til að þagga niður í gagnrýni og merkja andstæðinga sem óheiðarlega.
Hún bætir við:
Við verðum að segja það skýrt: Þetta er ekki bara rangt, þetta er popúlismi í sinni tærustu mynd. Að grípa til þess að gera óvini úr þeim sem spyrja nauðsynlegra spurninga, í stað þess að svara þeim. Forsætisráðherra hefur ekki getað bent á eitt atriði sem þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa farið rangt með í umræðum um veiðigjöld heldur hefur hún ákveðið að grípa til gífuryrða.
Eflaust talar Guðrún hér fyrir hönd allra stjórnarandstöðuflokkanna, því ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa sýnt af sér óvenjulegan hroka og þöggunartilburði langt frá verstu öfgum sem sést hafa áður á þingi. Rétt eins og það sé markmið þeirra að gera Alþingi óstarfhæft.
Vert er að þjóðin veiti þessum einræðistilburðum forsætisráðherrans athygli. Forsætisráðherra sem sýnir slík einkenni er ekki verðugur stólsins.
Og staðreyndirnar liggja fyrir skrifar formaður Sjálfstæðisflokksins:
- Tvær ríkisstofnanir hafa bent á að forsendur frumvarpsins séu rangar.
- Útreikningar sýna að veiðigjöldin gætu numið yfir 70% af hagnaði fyrirtækja og 80% í heildarálagi með öðrum sköttum.
- Sveitarfélög hafa sameinast um andstöðu og varað við samfélagslegum afleiðingum.
Annað dæmi um firringu stjórnarliða eru móðursýkisleg skrif Ingu Sælands á facebook sem á ekki orð yfir falsi og hræðsluáróðri hinnar grímulausu hagsmunagæslu stjórnarandstöðunnar gegn eðlilegu og leiðréttu veiðigjaldi." Inga hneykslast á því að stjórnarandstaðan skuli ekki halda veislu með öllum þeim sveitarfélögum sem fái hundruði milljóna þegar upp verður staðið i auknar tekjur með viðbótar og eðlilegum gjöldum fyrir aðgang að auðlindinni okkar."
Elliði Vignisson svarar Ingu:
Ha? Er það bara í alvöru þannig að valkyrjurnar skilja ekki þetta umdeilda frumvarp? Halda þær í alvöru að þetta hækki ÚTSVAR til sveitarfélaga? Er svo einhver hissa á því að stjórnarandstaðan reyni að ræða þessi mál?
Þjóðin þarf að þjappa sér að baki stjórnarandstöðu sem þarf að glíma við svona veruleikafirrta ráðamenn sem hvorki kunna að leggja saman tvo og tvo og halda að þeir geti vegna setu í ríkisstjórn brotið bæði stjórnarskrána og mannréttindi almennings og eyðilagt burðarstoðir íslensks efnahagslífs.
![]() |
Orð Kristrúnar auka á ósættið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning