Villutrúarbiskup ásakar Morgunblaðið um upplýsingaóreiðu

 

villutruarbiskupBiskup Íslands, Guðrún Karl Helgadóttir, ræðst í viðtali við RÚV á Morgunblaðið fyrir að dirfast að tala við Geir Waage fyrrverandi prest „sem hætti að þjóna í Þjóðkirkjunni fyrir fimm árum og hafi augljóslega ekki kynnt sér handbókardrögin vel."

Svona rétt eins og að sú þekking sem prestar hafi fuðri upp þegar þeir fara á eftirlaun. Biskupinn afhjúpar hér ótrúlega fordóma gagnvart ellilífeyrisþegum sem líkja má við aðskilnaðarstefnu og hatursorðræðu. Það passar vel við allt annað í fari fjöldakynjatrúboðans.

Hún ásakar Morgunblaðið fyrir að brjóta grundvöll blaðamennskunnar með því að birta sjónarmið Geirs Waage á síðum blaðsins. Morgunblaðið stundar upplýsingaóreiðu að mati biskups:

„Og að fá hann til að kynna þau fyrir fólki, það er svona ákveðin upplýsingaóreiða sem felst í því.“

Biskupinn reynir á aumkunarverðan hátt að fela sig á bak við handbókarnefnd vegna gagnrýni m.a. á sálmi á arabísku. Hún segir það lýðræðisleg vinnubrögð að gagnrýnendur sendi athugasemdir til handbókarnefndar svona rétt eins og að almenningur eigi að vinna vinnuna hennar sem er að boða fagnaðarerindi Guðs um að kynin séu tvö: Maður og kona.

Biskupinn hélt því líka fram að sálmar á útlensku hjálpi til við inngildingu til að læra íslensku! Hún hvetur fólk til að koma í kirkju og viðra skoðanir sínar sem gefur kirkjunni ítarlegra tækifæri að draga þjóðina niður í andkristið samfélag.

Að sjálfsögðu ræddi hvorki RÚV né biskupinn um fílinn í stofunni: Samstarf biskups við Samtökin 78 sem verða með námsskeið í öllum prófastumdæmum landsins til að boða þá villutrú að kynin séu fleiri en tvö.

Sem þýðir samkvæmt smáa letri djöfulsins að Guð tókst ekki betur upp við sköpunarverkið en svo að afdönkuð vannabí rokkstjarna og andkristnu Samtökin 78 þurfa að taka Þjóðkirkjuna út í eyðimörk andskotans og eyðileggja kristindóminn á Íslandi.

PS. Svo að öllu réttlæti sé fylgt þá er birt mynd af engum öðrum en sjálfum biskupnum með greininni, sem er eitt af góðlátlegum meme fjölmiðlafræðingsins Írisar Erlingsdóttur.


mbl.is Trúin útilokar ekki fleiri kyn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband