Valdníðsla að hætti Al Capone vindur upp á sig

kallisnæ2Útjöfnuður valds í höndum jafnaðarmanna er bara á einn veg: Við erum valdið. Annað hvort ertu með mér eða þú ert óvinur minn. Ríkisvald í höndum slíkra ójafnaðarmanna er stórhættulegt almennum borgurum. Það sýna markvissar aðgerðir yfirvalda til að þagga niður í þeim sem hafa rangar skoðanir að mati stjórnvalda.

Með meirihluta á þingi heldur Samfylkingin að hún geti gert hvað sem er. Nýjustu dæmin eru Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, sem rekinn var úr starfi fyrir að segja sannleikann um galla landamæragæslu Schengen á miðju Atlantshafi. Á það má ekki heyra minnst. Schengen er óskabarn ESB og þar eiga allir að vera glaðir, gargandi páfagaukar á meðan frelsi og fullveldi þjóðarinnar er skert. 

Það allra nýjasta er svipting læknaleyfis hins þjóðkunna læknis Guðmundar Karls Sveinbjörnssonar fyrir það eitt að standa á grundvelli Hippókratesareiðsins sem er heit lækna um störf í þágu sjúklingsins. Guðmundur Karl eða Kalli Snæ eins og hann er kallaður hefur verið duglegur við að upplýsa Íslendinga um niðurstöður rannsókna í kjölfar Covid-faraldursins víða um heim. Vert er að minna á þá stefnubreytingu í Bandaríkjunum sem þjóðin kallaði eftir sem lýsir sér meðal annars í því að heilbrigðisráðherrann Robert F. Kennedy Jr. er að vinda ofan af allri þeirri spillingu í heilbrigðisstofnunum Bandaríkjanna, þar sem lyfjarisarnir stjórnuðu stofnunum beint fyrir eigin hagsmuni í stað almannahags. Læknum var mútað til að snúa blinda auganu að þeirri vanrækslu sem bóluefnaframleiðendur eru sekir um með því að setja bóluefni á markað sem ekki fékk nægjanlegar rannsóknir til að tryggja öryggi sjúklinga.

Afleiðingarnar hafa orðið skelfilegar með margfaldri aukningu sjúkdóma sem haldið var í skefjum fyrir Covid og háum umframdánartölum eftir Covid. Öll meðhöndlun faraldursins ber keim um æfingu til að fá úr skorið mætti yfirvalda til að hafa stjórn á fólki. Slíkar upplýsingar eru mikilvægar fyrir þá alþjóðlegu skúrka sem vinna með morðingjum, fasistum, rasistum, nasistum og kommúnistum til að bókstaflega ná stjórn á öllum heiminum. Í ríki þessara glæpamanna verður almenningur allra landa háður daglegu eftirliti og lifa lífi sem þrælar. Þrælahaldararnir eru síðan verðlaunaðir með feitum embættum á vegum ríkisins fyrir vel unnin störf samanber hina nýju stofnun WHO fyrir Katrínu Jakobsdóttur sem þökk fyrir að innleiða vókismann á Íslandi og flækja landið inn í reglurgerðarnet alþjóðlegra stofnana, fremst ESB. 

Að ráðist er með þessum hætti að þjóðkunnum mönnum eins og Úlfari og Kalla Snæ sýnir einbeittan brotavilja ríkisstjórnarinnar til aukinnar valdníðslu. Kné verður látið fylgja kviði og fleiri einstaklingar mega eiga von á svipuðum árásum á einkalífið einungis vegna skoðana sinna. 

Kalli Snæ hefur í árabil verið einn ötulusti talsmaður þess að yfirvöld komi að uppgjöri þjóðarinnar við meðhöndlun Covid-faraldursins. Í stað þess að taka umræðuna og vinna að slíku uppgjöri, þá ákveður stjórnin að taka þá sem ekki eru henni að skapi úr umferð og eyðileggja starfsmöguleika viðkomandi. 

Sú krataklíka sem núna stjórnar Íslandi er í sama farvegi og Al Capone forðum. Ofbeldið talar. Samþætting mála á miðstýrðri hendi margfalda hraða fasismans á Íslandi með tilheyrandi skoðanakúgun og handtökum. Fyrirmyndir Frostadóttur eru Joe Biden og Keir Starmer sem hleypa morðingjum, nauðgurum og barnaníðingum úr fangelsum til að fá rými fyrir stjórnarandstæðinga.   

Vonandi vaknar þjóðin – glæpaklíkan mun annars sækja í sig veðrið og láta fleiri höfuð fjúka sér til ánægju og skemmtunar.

Fram með pottana og pönnurnar, fundur þvert á flokka verður aftur á morgun klukkan 14.00 á Austurvelli. Það verður að stöðva þessa valdníðslu og ofríki ríkisstjórnarinnar áður en allt verður um seinan.


mbl.is Guðmundur sviptur lækningaleyfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband