Alþingi á hálum ís – hefur ekki stjórnskipulega heimild til að lögfesta bókun 35

jonsteinarDeilt er á Alþingi um lögleiðingu á bókun 35 sem felur í sér breytingu á lögum nr. 2/1993 um Evrópska efnahagssvæðið. En Alþingi er á hálum ís. Sá mæti maður Jón Steinar Gunnlaugsson, fv. Hæstaréttardómari skrifaði eftirfarandi innlegg á Facebook í morgun:

„Texti frumvarpsins um lögleiðinguna hljóðar svo:

"Ef skýrt og óskilyrt lagaákvæði sem réttilega innleiðir skuldbindingu samkvæmt EES-samningnum er ósamrýmanlegt öðru almennu lagaákvæði skal hið fyrrnefnda ganga framar, nema Alþingi hafi mælt fyrir um annað. Sama á við um skuldbindingar sem eru innleiddar með stjórnvaldsfyrirmælum ef þau eru ósamrýmanleg öðrum stjórnvaldsfyrirmælum."

Í þessu felast fyrirmæli um að eldri reglur skv. EES-samningnum skuli ganga fyrir yngri lögum sem Alþingi setur ef ekki er efnislegt samræmi á milli. Þetta felur það í sér að löggjafarvald Alþingis er takmarkað, því að ný sett lög á Alþingi víkja auðvitað ævinlega til hliðar eða fella niður eldri lagareglur ef efnislegt ósamræmi er til staðar. Í reynd er því lagasetningarvald Alþingis takmarkað að þessu leyti án þess að stjórnarskráin heimili slíkt.  

Ekki verður annað séð en að sú skipan sem felst í þessu frumvarpi standist ekki nema stjórnarskránni sé fyrst breytt og í hana sett ákvæði sem heimilar þetta. Alþingismönnum er skylt að haga störfum sínum að lagasetningu samkvæmt þeim heimildum sem stjórnarskráin veitir. Þess vegna hefur Alþingi ekki stjórnskipulega heimild til að lögfesta þetta frumvarp."

Skýrari en svo verður ekki að orði komist. 

Það sem vekur furðu er að þingmenn Sjálfstæðisflokksins virðast ætla að styðja þetta frumvarp sem ESB-ríkisstjórnin ber nú fram en var áður lagt fram af þáverandi utanríkisráðherra Sjálfstæðismanna, Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttir. Hún setur einnig nafn sitt áfram undir frumvarp núverandi ríkisstjórnar. 

Ætla Sjálfstæðismenn að styðja frumvarp sem brýtur gegn stjórnarskrá lýðveldisins?

Hvað segir núverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, Guðrún Hafsteinsdóttir? Ætlar hún að greiða atkvæði með frumvarpi sem Alþingi skortir stjórnskipulega heimild til að lögfesta?

Almenningur á fullan rétt á að fá slíkt svar frá formanni Sjálfstæðisflokksins.


mbl.is Vilji til að afgreiða bókun 35
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Dominus Sanctus.

Ef að við myndum ekki samþykkja bókun 35.

yrði okkur þá hent út úr EES-samstarfinu? 

Dominus Sanctus., 8.6.2025 kl. 12:20

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband