Enginn vinamissir í Ingibjörgu Sólrúnu
7.6.2025 | 07:34
Dagblaðið Vísir er sérstakur fjölmiðill að því leyti, hvað þeir eru duglegir að búa til fréttir úr engu. Sem hæst jarmandi sauður vók-menningarbyltingarinnar á Íslandi er allt tínt til til að koma höggi á þá sem segja sannleikann. Er þá meira að segja rykið dustað af gleymdum mikilmennum eins og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttir sem trónaði pólitískt á toppi glæpamennsku útrásarvíkinganna sem settu Ísland á hausinn 2008. Kannski er Íris Erlingsdóttir hálmstráið sem upplýsir landsmenn um áframhaldandi jarðlega tilvist fyrrverandi utanríkisráðherrans sem annars væri með öllu horfin í myrkur gleymskunnar nema kannski á strápuntuhátíðum íslenskra jafnaðarglæpamanna sem rændu þjóðina á sokkabandsdögum Sólrúnar.
Hver hefði trúað því fyrir nokkrum áratugum síðan að fjandinn sjálfur væri laus í þjóðkirkjunni fyrir tilstilli biskupsins? Ef einhvers staðar ríkir tröllbundin fjöldasturlun, þá er það innan prestastéttarinnar sem ætlar að leyfa biskupi Íslands og Samtökunum 78 að breyta þjóðkirkjunni í áróðursmiðstöð fyrir kölska sem vill betrumbæta sköpunarverk Guðs. Eru menn búnir að gleyma deilum hins góða og hins illa? Þegar tár rann af kinn Guðs og féll í hafið og breyttist í gullfallegan fisk sem fyllti öll höf jarðar. Kölski vildi ekki vera minni og hrækti í hafið og úr varð eiturbrennandi marglytta sem drepur allt í kringum sig. Það sama verk er Guðrún Karls Helgudóttir að vinna innan íslensku þjóðkirkjunnar með breytingu á litum kirkjunnar yfir í markaðsfærða liti transhreyfingarinnar ljósblátt og bleikt og afnám íslenskrar kristinnar tungu sem byrjar faðirvorið á orðunum Faðir vor, sem nú verður bannvara í höndum biskupsins. Kynsegin mál andskotans skulu gilda og prestastéttin er í dáleiðslu og lyftir ekki fingri.
Dagblaðið DV sem eiginlega stendur fyrir Dæmalausu Vitleysingana sér ástæðu til að reyna að koma höggi á Íris Erlingsdóttur, fjölmiðlafræðing, sem nýlega var í athyglisverðri heimsókn til Íslands meðal annars vegna skoðana um þá fjöldasturlun sem heldur mörgum í álögum á Íslandi. Verið er að reyna að telja landsmönnum trú um að skapari himins og jarðar sé mislukkaður og hafi verið svo áfátt í verki sínu að hann skapaði aðeins tvö kyn: mann og konu, Adam og Evu. Ein af þeim sem eru í þessum álögum nema að hún sé alfarið gengin myrkrahöfðingjanum á hönd er Guðrún Karls Helgudóttir, biskup yfir Íslandi. Virðist ekki einu sinni orðið Guð í nafni hennar veita henni neitt ljós lengur, slíkar eru atlögur hennar gegn kristinni trú, kristnum gildum og kristnum hefðum á Íslandi.
Og eins og að þetta sé ekki nóg, þá er verið að fjarlægja gilda sálma kristinnar trúar úr sálmabók kirkjunnar og meðal annars setja halelújasöng um Allah í staðinn. Þú lest alveg rétt, Allah. Sá sem boðar barnaníð og fjölkvæni með börnum og verðlaunar þá sem drepa kristna og kveikja í kirkjum með nótt hjá fjölda jómfrúa.
Samkvæmt kristinni trú eru kynin tvö og Guð einn. Biskup Íslands segir annað og stjórnar S78 púkahljómsveitinni til að fella prestastéttina í trans og landsmenn líka svo Jesús Kristur verði brottrækur gerður frá Íslandi. Íslenski þjóðsöngurinn hefst á orðunum Ó Guð vors lands, Ó lands vors Guðs. Næsta skref djöflamafíunnar verður með tilstilli sólrúnskra vókaðra stjórnmálamanna allra kynja að skrifa nýjan þjóðsöng sem dæmalausu vitleysingarnir birta á DV: Ó Guð án lands, Ó land án Guðs....
Sannleikurinn er sá að landinn veit lítið um þá djöfullegu áætlun að eyðileggja kristnina á Íslandi og þar fer einkavinur Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, Guðrún Karls Helgudóttur, sem hegðar sér eins og pönkuð fyrirsæta í skælbrosukeppni til að komast á forsíðu Vogue, fremst í broddi fylkingar. Biskupinn virðist eiga endalausan fataskáp með fínu tískumerkjunum og lætur mynda sig sveiflandi transpensli á Ísafirði eða í skákmunstruðum jakkafötum á regnbogatröppum Akureyrarkirkju. Markmið biskupsins er hið sama og andskotans: Skák og mát gegn Guði.
Gagnrýni Íris Erlingsdóttur á hugmyndafræði andskotans á fullkomlega rétt á sér.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:08 | Facebook
Athugasemdir
Þetta er orðin svo mikil geðveiki að meira að segja
forsetadruslan er að boða þennan ófögnuð í Japan.
Svo var sagt að hún hefði slegið í gegn í Japan.
Jú, hún sló í gegn því Japanir áttu ekki til eitt
ainasta orð yfir þessari þvælu og það frá forseta.
Ég er farin að hallast að því að allstaðar þar sem
konur eru við stjórn er bara allt í klessu og hefur
ekkert með karlrembu eða fyrirlitningu gegn kvennfólki.
Þetta er bara staðreynd.
Sigurður Kristján Hjaltested, 7.6.2025 kl. 10:28
Sæll Sigurður og þakka athugasemd þína, ég frétti að Halla forseti hefði rætt mikið um kynjajafnrétti í Japan enda litið á Ísland sem eitt af fremstu löndum í þeim efnum og hinsegin fána flaggað oftar en þjóðfánanum. Já mér finnst til dæmis við mannaráðningar að frekar eigi að fara eftir hæfileikum til starfsins en að forgangsraða konum fram fyrir karlmenn. Sú afstaða endar yfirleitt ekki með góðu....
Gústaf Adolf Skúlason, 7.6.2025 kl. 13:28
Heill og sæll Gústaf Adolf.
Heilög ritning, Biblían, kennir okkur að hver sem blessar Ísrael mun blessun hljóta. Og hver sem bölvar Ísrael mun bölvun hljóta. Sá áróður sem ríkisstjórn Íslands, sú sem nú er og sú sem var hér á undan, muni kalla yfir land okkar bölvun Drottins Guðs.
Enginn getur verið biskup Íslensku þjóðkirkjunnar ef hann/hún fer gegn því sem Guðs Orð kennir okkur. Ef við brjótum gegn Orði Guðs mun Orð Guðs dæma okkur á efsta degi og það er sama hver þar á í hlut, biskup, prestur, djákni, annar starfsmaður kirkjunnar eða jafnvel hver meðlimur sem er. Við þurfum á Orði Guðs að halda sérhvern dag og leyfa því að umbreyta lífum okkar þannig að við hlýðum Orði Guðs.
Tómas Ibsen Halldórsson, 7.6.2025 kl. 13:51
Amen. Fallega skrifað góði Tómas, kærar þakkir, kristnin er eilífðaruppspreta visku og sannleika. Biskup sem frekar hefði viljað vera fræg rokkstjarna breytir orðum Guðs í nafni Guðs að hætti Kölska. Þjóðkirkjan fjarlægist Guð en hvar eru prestarnir? Eru þeir sammála þessari hningnun eða réttara sagt árásum á kristni á Íslandi í dag? Taka þeir eins og í álögum þátt í því að gera Krist brottrækan frá Íslandi?
Tími til kominn að einhverjir þeirra taki blaðið frá munninum og rísi upp gegn þessu guðlasti.
Gústaf Adolf Skúlason, 7.6.2025 kl. 14:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning