Vert ađ vera Íslendingur eftir lestur Reykjavíkurbréfs Morgunblađsins

mblÍ ţví vandrćđafári sem ríkisstjórn Íslands skapar međ gjörđum sínum virđist vókađ náttmyrkriđ leggjast eins og ţungt lömunarteppi yfir landsmenn. Viđ slíkar kringumstćđur aukast raddir margra ađ flýja land og bólfesta sig á Norđurlöndum eđa í suđri til dćmis á Spáni. Ég játa ađ ég varđ mjög undrandi á ţeirri tilfinningu sem ég fékk fyrir nokkrum árum í fyrsta skipti, hvađ ég var feginn ţegar flugvélin lyfti frá Keflavíkurflugvelli og ég var ađ fara frá minni ástkćru fósturjörđ heim til Svíţjóđar. Áđur var ţađ alltaf tilhlökkunarefni ađ fara til ástkćra Fróns og söknuđur viđ brottför. Af öllum löndum er Ísland trúlega versta land fyrir Íslending ađ vera ferđamađur í. Mađur er og verđur útlendingur í „stórborginni" Reykjavík, sem er alls ekki sú sama sem ég ólst upp í sem barn. Ekki er hćgt ađ fara út í búđ lengur og kaupa skyr og rjóma án ţess ađ vera spurđur: Do you speak English? Ađ ţessu leyti eru einnig margir Íslendingar búsettir í landinu orđnir ađ útkjálkaţjóđ ferđamannaiđnađarins. 

Ég elska Reykjavíkurbréf Morgunblađsins. Lífsgleđi bréfahöfundar og stjórnmálaskerpa smitar út frá sér, ţannig ađ jafnvel draugateppi Evrópusambandsstjórnar lýđveldisins virđist hjómiđ eitt og von um betri hlutskipti landsmanna í framtíđinni. Hér eru nokkur dćmi:

„Eina stóra verkefniđ, sem hún (ríkisstjórnin) leggur mestan metnađ sinn í, virđist vera ađ leggja til atlögu viđ einn ţýđingarmesta atvinnuţátt ţjóđarinnar, og virđist hún helst hafa ţađ á móti honum ađ hann gangi of vel, ađ minnsta kosti fyrir fýlupoka."

„Annar flokkurinn af tveimur valdaflokkunum, sem glotta viđ tönn, virđist raunar hafa misskiliđ verkefni sín ađ verulegu leyti, ţegar sá taldi ađ titillinn „utanríkisráđherra“ fćli einkum í sér ađ halda sig sem allra lengst og oftast „utan ríkis“ og fleygja ţar fjármunum eins og enginn vćri morgundagurinn."

„Ef íslenski utan„ríkis“ráđherrann telur sig hafa sterk spil á sinni hendi gćti hann ţess vegna spilađ ţeim út, viđ fyrsta góđa tćkifćriđ. Gárungarnir vćru vísir til ađ segja ađ réttast vćri ađ ráđherrann tćki upp ţétt samstarf viđ íslenska Hjálprćđisherinn." 

„En ţetta sýndi ţó allt, rétt eins og viđbrögđ utan„ríkis“ráđherrans gerđu, ađ samstarf ráđherrans og 30 kommissara, sem sáust ganga framhjá, vćri öflugt og sterkt og alls ekki útilokađ ađ utan„ríkis“ráđherrann fengi sendan reikning frá Brussel upp á 50 milljónir evra, sem sýndi ţá enn og aftur ađ vinsemd kommissaranna í Brussel til Íslands vćru engin takmörk sett."

Gleymum ţví aldrei ađ ţađ var vegna atbeina Davíđs Oddssonar Seđlabankastjóra ađ Íslendingar gátu notađ krítarkortin sín, ţegar ríkisstjórn Gordon Browns var svo elskuleg ađ lýsa íslenska lýđveldiđ hryđjuverkaríki á opinberum fjármálaskiltum heims og allar leiđir lokuđust. 

Gleymum ţví ekki ađ ţađ voru ráđ stjórnmálaforingjans Davíđs Oddssonar ađ fara dómstólaleiđina sem bjargađi ţjóđinni í Icesavedeilunni ţvert á markmiđ krata og ESB sem horfđu á úr forsćtisráđherrastúkunni og ćtluđu ađ hlćja ađ óförum Íslands en fóru sjálf grátandi heim. 

Gleymum ţví ekki ađ Davíđ Oddsson Seđlabankastjóri varađi viđ komandi fjármálakreppu í langan tíma áđur en fjármálafárviđriđ skall á en kratar og kommar völdu ađ virđa orđ hans ađ vettugi og svćla hann međ stjórnarskrárbroti úr löglegu embćtti og allir vita hvernig fór. 

Mun íslenska ţjóđin muna eftir ţeim löđrungi eftir ţúsund ár?

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband