Ríkisstjórnin fær rauða spjaldið frá nær öllum framleiðendum

dægurmálRagnar Árnason prófessor emeritus t.vl og Örvar Marteinsson, formaður samtaka smærri útgerða ræddu afleiðingar af árás ríkisstjórnarinnar á grundvallaratvinnugrein þjóðarinnar.

 Það er ánægjulegt að fylgjast með lifandi umræðu vegna fyrirætlunar ríkisstjórnarinnar um fjártöku í útgerðar- og fiskvinnslutökum með ofurskattheimtu sem tekur 70-80% af hagnaði fyrirtækjanna. Fólk í starfsgreininni bregst til varna sem er fullkomlega eðlilegt og nauðsynlegt gagnvart árás ríkisstjórnarflokkanna á aðalundirstöðuatvinnuveg landsmanna. 

Afstaða ríkisstjórnarinnar byggir á öfund á velgengi duglegra sjómanna og athafnamanna sem með dugnaði halda uppi einum skilvirkasta fiskiðnaði í heimi. Áróður ríkisstjórnarflokkanna á ekkert skylt við verðmætasköpun og velferð landsmanna heldur byggir á því að sundra þjóðinni til að komast yfir feng fyrir sjálfa sig til að eyða í eigin hugðarefni. Að það sé sama sem merki milli hærri skatta og velferðar er hugarfóstur sósíalista og áróðursbrella eins og sá mæti maður Ragnar Árnason prófessor emeritus lýsti vel í afar góðum umræðuþætti Dagmála nýverið. Með honum var Örvar Marteinsson, formaður samtaka smærri útgerða sem útskýrði hrikalegar afleiðingar „leiðréttingarinnar" á smábátaútgerð.

Ragnar bendir á að þegar fer helmingur af arði útgerðarinnar í skatta sem skila sér í þjóðarbúið. Hann segir réttilega að það sé enginn grundvöllur fyrir því að sérskatta einn atvinnuveg með ofursköttum umfram aðra. Þetta sé álíka og láta knattspyrnumenn íslenska landsliðsins keppa með margra kílóa lóð á fótum sem að lokum leiðir til þess að fólk hættir að spila fótbolta vegna þess að það er ekki hægt að vinna neinn leik.

Andrés Magnússon, þáttarstjórnandi, vísaði til greinar Dags B. Eggertssonar í Mbl. þar sem hann sagði að ofurskattar á sjávarútveginum væri bara fyrsta skref ríkisstjórnarinnar og fleiri blóðtökur væntanlegar í öðrum greinum eins og orku og ferðamannaiðnaði.

Það er mjög mikilvægt að þjóðin öll rísi upp og standi með þeim sem skapa verðmætin í landinu og stöðvi þessa ósvífnu árás sem mun skaða landið til langs tíma verði veiðgjaldafrumvarpið samþykkt. Þeim mun meiri einhug sem þjóðin sýnir í málinu, þeim mun meiri styrk gefur það stjórnarandstöðunni til að spyrna gegn málinu á þingi.

Velferð þjóðarinnar er í hættu, framtíð Íslands er í húfi.

Það verður of seint að ætla að bjarga gæsinni þegar hún liggur fjaðralaus á grilli vinstri manna. 


mbl.is Veiðigjöldin éta upp arðinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband