Hið nýa SVÍsland

 

hnifaarasNýjar fréttir um hnífaárás og sprengingu í Reykjavík er ekki eitthvað sem friðsamir borgarbúar og landsmenn hafa áður búið við. Hömlulaus fólksinnflutningur á galopnum landamærum Schengen með litlu sem engu eftirliti er boðsmiði fyrir glæpamenn og ofbeldisseggi. Þetta þekkjum við sem búum í Svíþjóð því miður afskaplega vel með daglegum skot- og sprengjuárásum þar sem glæphópar halda öllu í greipum sér og sífellt fleiri saklausir borgarar týna lífinu fyrir það eitt að vera á vitlausum stað á vitlausum tíma.

Afstaða ríkisstjórnarinnar er skýr: Þeir sem mótmæla ólöglegum innflutningi fólks og reyna að gera eitthvað í málunum til hjálpar almenningi eru reknir úr starfi eins og Úlfar Lúðvíksson, fv. lögreglustjóri á Suðurnesjum. Úlfar Lúðvíksson og fleiri í sömu stöðu eiga skilið fálkaorðuna fyrir óeigingjarnt starf og vilja til að vinna fyrir þjóðina eftir bestu getu. 

Á Íslandi í dag er stjórnmálavaldið númer eitt. Almenningur verður að tilbiðja guð hins heilaga pólitíska rétttrúnaðar sem vinstri menn og rauðsokkur landsins hafa steypt þjóðinni í. Vókisminn ræður ríkjum og refsað fyrir gagnrýni á núverandi ESB-ríkisstjórn landsins.

Þegar ég hóf að segja frá glæpaþróuninni í Svíþjóð fyrir mörgum árum, þá mætti ég ofstopa, drambi og hroka sem einungis nútíma jafnaðarmenn búa yfir. Ég var eftirlýstur af RÚV fyrir falsfréttir sem eyðilagði fallegu kratamyndina af hamingjusömum Svíum sem léku sér við berfætt börnin fyrir utan rauðu sumarbústaðina í Paradís. Nokkrum árum síðar benti Donald Trump á sprengingar glæpahópa í Svíþjóð og sænska elítan fór á hliðina. Sænskur almenningur er látinn borga - sífellt fleiri með lífi sínu - fyrir þá glæpamennsku stjórnvalda að hirða ekki um landamærin. 

Í Svíþjóð hafa málin gengið svo langt, að systurflokkur Sjálfstæðisflokksins, Móderatar, leggja til nýjan fasteignaskatt á húseigendur sem nota á til að koma á samstarfi íbúa í borgarhverfum til að berjast gegn glæpaklíkunum! Uppgjöf löggjafans gæti ekki verið meiri og verði þetta raunin má búast við að stytti í blóðug átök hins almenna Svía beint við innflutta glæpamenn. Lögreglan hefur lýst því yfir að hún ráði ekki við glæpahópana og valdhafar láta það gott heita.

Ísland er margfalt viðkvæmara fyrir erlendum glæpamönnum en önnur Norðurlönd vegna vanbúinnar lögreglu, reynslu- og getuleysi til að fást við slíkt ofbeldi. Því miður virðast fréttirnar um hnífaárásina og dularfulla sprengingu á Hjarðarhaga aðeins vera toppurinn á ísjaka hins nýja raunveruleika sem stjórnmálamenn hafa skapað. 

Þessi aumingjaháttur yfirvalda gagnvart glæpahópum ber með sér aðra spurningu:

Hafa stjórnmálamenn hag af því að greiða götu alþjóðlegra glæpahópa? 

Ætti ekki að rannsaka hugsanleg tengsl þeirra við glæpaklíkurnar fyrst þeir vilja ekki lengur sinna skyldu sinni að vernda almenna borgara sem þeim ber að gera samkvæmt landslögum?


mbl.is Íbúi segir hverfinu haldið í heljargreipum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband