Spilling Sjálfstæðisflokksins hverfur ekki einfaldlega með kjöri nýs formanns

XD-Logo-3879874383-1Landsfundur Sjálfstæðisflokksins er um þessa helgi og mikill spenningur aðallega varðandi formannskjör eftir að Bjarni Benediktsson tók réttilega þá ákvörðun að víkja til hliðar. Arfleifð hans mun hins vegar ekki hverfa með nýjum formanni flokksins. Sú uppgjafar- og ósjálfstæðismenning sem hreiðrað hefur um sig innan flokksins undir valdstjórn Bjarna Benediktssonar er dýpri en að það dugi að skipta um formann. 

Bjarni Benediktsson sýndi það í Icesave deilu þjóðarinnar að hann vildi ekki fara dómsstólsleiðina. Hann hefur aldrei viðurkennt það, hvorki fyrir sjálfum sér eða öðrum að hann lenti vitlausu megin við þjóðina sem hafnaði samningstillögu sem hann sagði bestu lausnina fyrir Ísland. Þjóðin fylgdi í staðinn stefnu fyrrverandi formanns Sjálfstæðisflokksins, Davíðs Oddssonar, sem gekk út á það að landsmenn ættu ekki að borga skuldir óreiðumanna. Sú leið reyndist farsæl fyrir þjóðina sem engu að síður þurfti að greiða hátt verð fyrir fjármálarán útrásarvíkinganna í bankahruninu. Sú spillingarmenning sem útrásarvíkingarnir sáðu og gegnsýrði íslenska samfélagið er enn við lýði. Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki gert upp við þá spillingu en viðhaldið henni með undirlægjuhætti við Evrópusambandið eins og frumvarpið um bókun 35 sýnir. Þau svik nýtast núverandi ESB-stjórn Íslendinga til að ná fram því markmiði að þvinga Ísland í hlekki sambandsins.

Sjálfstæðismenn hafa ekki gert upp við undirlægjuhátt flokksins gagnvart jafnaðarmönnum, sósíaldemókrötum og vinstri mönnum Íslands. Á meðan Davíð Oddsson var foringi flokksins, þá hélt hann stjórnmálaandstæðingum flokksins í skák vegna meðfæddra leiðtogahæfileika sinna. Á skemmtilegan og húmorsríkan hátt greindi hann kjarnann frá hisminu fyrir sjálfstæðismál Íslands, ætíð trúr stjórnarskrá lýðveldisins og starfi í þágu þjóðarinnar. Hann var kjörinn í snarpri baráttu við ESB-sinnann Þorstein Pálsson sem klauf flokkinn í fýlu við að tapa formannskjörinu. Allt of margir framagosar eru í íslenskum stjórnmálum fá borgað fyrir að gera ekki neitt eins og trúðurinn Jón Gnarr er dæmi um. Sjálfstæðismenn verða að fara að gera sér grein fyrir því, að stjórnmálaskalinn hefur færst til vinstri og hluti flokksins með. 

Flokkurinn verður að endurnýja flokksforystuna með einstaklingum sem ekki eru smitaðir af vinstri veirunni. Slíkt smit lýsir sér í hræðslu við að framfylgja réttmætum, löglegum ákvörðunum ef þær stangast á við hagsmuni ESB og sósíalíska Internationalen. Finna þarf einstaklinga með hæfileika til að leiða flokkinn í stíl Ólafs Thors og Davíðs Oddssonar. 

Það er einkenni íslenskra stjórnmála eftir hrun að stjórnmálamenn bera enga ábyrgð á gjörðum sínum. Litið er á embætti sem hnoss til að auka pyngjuna og monta sig með á mannamótum sérstaklega fyrir fulltrúa erlends valds. Litið er á heiðarleg embættisstörf fyrir þjóðina sem söluvöru til að komast í feitar stöður hjá alþjóðastofnunum. Stjórnmálin á Íslandi þjást af stefnuleysi og almennri hnignun og hafa aldrei komist á skrið eftir fjármálahrunið 2008.

Má fullyrða að stjórnarkerfi landsmanna sé í gíslingu. Sjálfstæðisflokkurinn hefur sögulegu hlutverki að gegna að uppræta þessa spillingu, skera niður báknið og gæta aðhalds fyrir hag þjóðarinnar. Byrja verður í eigin húsi en því miður hefur ekki mikið komið fram sem bendir til þess að sú leið verði farin. Einkenni allra kosninga á Íslandi er að umræðan er grunn og gerð í hálfkáki vegna takmarkaðs tíma og leið sýndarmennsku valin á kostnað innihaldsins. Ráðandi stefna í stjórnmálum er að líta á fé skattgreiðenda sem einkasjóð kjörinna embættismanna. Það er stefna sósíalismans í hrópandi andstöðu við sjálfstæðisstefnuna.

Hér er verk að vinna.

 


mbl.is Tvær kannanir, ólíkar niðurstöður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lárus Ingi Guðmundsson

BANKA HRUNIÐ HEFUR ALDREI VERIÐ GERT UPP !!!

Staðreyndin er sú, að allt frá 2000 þá byrjaði Esb seðlabankin að dæla peningum inn i landið og hætti þvi ekki fyr en í júni 2008. 

Rétt áður en að allt hrundi .. 

Hvar eru VEÐIN ????

Þeir hljóta að hafa fengið einhver veð á móti ??

Leyndarhyggja Bjarna i kringum Lindarhvol, eignir seðalbankans, og slitabúin er með ólíkindum. 

Svo mikil er hún að jafnvel Ríkis skattstjóri gat ekki fengið umbeðin gögn. Tilvisan til Sigurðuar. 

þetta hvílir yfir þjóðinni rétt eins og guðmundar og geirfinnsmálið. SVÖRT ÞOKA SEM AÐ MUN FYLGJA ÞJOÐINNI ALLA TÍÐ.  

Það hefur aldrei mátt gera upp Banka hrunið að fullu, þvi að þá koma maðkarnir i ljós i botninum á sultu krukkunni. Það hefur allt verið gert svo að ekki sjáist í Maðkanna á botninum. Reynt að festa lokið eins og hægt er. 

Að mínu mati, þá var verið að hafa islendinga að fiblum, þar sem að átti taka isl þjoðina sem gjaldþrota land inn i Esb og láta greipar sópa í kjölfarið. 

Katrin  jakobs skrifaði undir loftslags samning sem að allir vissu nema hún, að ekki yrði hægt að standa við. 

Nú er komið að skuldadögum. 10 miljarðar frá isl til Esb. 

En katrin er núna komin með stól hjá WHO !!!!!!!!!

Er þetta óheppileg tilviljun, eða spilling sem rýmist þó innan ramma laganna ??

kv

LIG

Lárus Ingi Guðmundsson, 27.2.2025 kl. 12:07

2 Smámynd: Gústaf Adolf Skúlason

Sæll Lárus, spilling sem engan vegin rýmist innan laganna, en það skiptir engu máli fyrir stjórnmálamenn sem komast upp með dagleg svik viðstjórnarskrá og almenn lög. Núna verður byrlunarmálið tekið upp á þingi en hvað kemur svo sem út úr því? Inga Sæland svíkur hundruði milljóna úr fjárhirslum ríkisins og ekkert gert. Málin hrannast upp. En ef venjulegt fólk, Jón og Gunna, verða á mistök, þá er krafist endurgreiðslu og sekta. 

Hér er verk að vinna.

Gústaf Adolf Skúlason, 27.2.2025 kl. 23:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband