Mikilvægasta verkefni ríkisstjórnarinnar: Sundra þjóðinni fyrir yfirtöku ESB á Íslandi
12.2.2025 | 07:08
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, fylgdi frumvarpi um samþykkt bókun 35 úr hlaði sem fyrsta máli ríkisstjórnarinnar á Alþingi. Þrátt fyrir loforð um annað fyrir kosningar þá byrjar ríkisstjórnin þingferil sinn með því að stinga rýting í bak íslensku þjóðarinnar og rífa upp sár sundrungar og ósættis. Evrópusambandið á sér engan betri fulltrúa á Íslandi en veruleikafirrtan utanríkisráðherrann sem fullyrðir að ESB sé núna að styrkja sig á öllum sviðum."
Utanríkisráðherrann hljómar eins og biluð grammafónskífa í hátölurum Títanic sem hyllir óyfirvinnanlegan styrk skipsins við öllum hættum. Hún er tónleikastjóri tríósins sem spilar á fiðlu á meðan hið ósökkvanlega skip sekkur og tekur með sér mannslíf í djúpið. Hún talar á sama plani og ókjörnir kommissjónerar ESB sem afneita veruleikanum fyrir utan gullna hliðið í Brussel.
Orðræpa fyrir keypta lögfræðinga andskotans
Orðræpa utanríkisráðherrans, þegar hún talaði fyrir samþykkt bókunar 35, er óskiljanleg öllum nema keyptum lögfræðingum sem fá borgað fyrir það að lesa og læra tilvitnanir í lagaflækjur eins og andskotinn kann tilvitnanir í ritverk Lenín og Stalín. Ráðherrann heldur því fram, að yfirtaka ESB á Alþingi sé mikilvæg réttarbót sem tryggi rétt einstaklinga og fyrirtækja á Íslandi." Hún fullyrti að EES-samningurinn hefði verið gallaður frá byrjun og ríkisstjórnin væri að leiðrétta samninginn" svo Ísland gæti staðið við alþjóðlegar skuldbindingar. Það er bara lítilvæg, tæknileg leiðrétting" að eyðileggja gildandi EES-samning og fjarlægja þær varnir sem Davíð Oddsson og Jón Baldvin Hannibalsson tryggðu fyrir hag Íslands.
Þorgerður hrósaði fyrri ríkisstjórn fyrir að hafa rutt ESB-dansbrautina fyrir valkyrjurnar. Þær þurfa ekkert annað að gera en að fara beint í háhæluðu skóna og sparikjólinn til að dansa inn endanlega yfirtöku ESB á Íslandi.
Árásin á Ísland að undirlagi stækkunardeildar ESB
Klárt mál að leiðrétting EES-samningsins" er gerður í samráði við stækkunardeild ESB sem núna er bakhjarl þessarar aumu ríkisstjórnar sem sér engin önnur mál mikilvægari fyrir þjóðina en að koma henni í hlekki hins erlenda stórveldis. Verið er að undirbúa yfirtöku ESB á Íslandi og auðlindum landsins sjávarútvegi og orku. Endahnúturinn verður gerður með kosningum um ESB og nei verður aldrei samþykkt heldur kosið þar til niðurstaðan verður ásættanleg ESB.
Þingmenn fá ekki að sjá gögn málsins
Þorgerður Katrín ásakar stjórnarandstæðinga um valdníðslu með því að veifa fullveldinu til að taka réttindi af fólki" og slá ryki í augu fólks með tali um fullveldisafsal." Þeir sem standa á grundvelli stjórnarskrár lýðveldisins eru að sjálfsögðu til trafala fyrir yfirtöku ESB á fullveldi Íslands. Miðflokksmenn eiga þakkir skildar fyrir málefnalega og drengilega andspyrnu gegn gerræðislegum gjörningum ríkisstjórnarinnar að leyfa ekki þingmönnum að kynna sér málið eins og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson benti á:
Ég má ekki tala um það sem ég veit um varnir Íslands eftir lestur gagna utanríkismálanefndar og þingmenn hafa ekki verið upplýstir um. Gögnin voru afhent í trúnaði sem meinar mér að tjá mig. Þingmenn fá ekki gögnin, einungis þeir sem eru í utanríkismálanefnd. Hæstvirtur forseti, ég má ekki ræða hér í þessum þingsal um varnir Íslands í þessu máli."
Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Miðflokksins sagði:
Verið er að hrifsa löggjafarvaldið frá okkur, því með samþykki bókun 35, þá munu lög ESB ganga framar íslenskri stjórnarskrá. Það er lágmarkskrafa að þingmenn fái að sjá bréf fyrrverandi utanríkisráðherra til Brussel."
Valkyrjurnar blása til stríðs gegn þjóðinni
Valkyrjurnar halda að þær geti gert hvað sem er eftir að Samfylkingin fékk aukinn stuðning í síðustu kosningum. Samfylkingin er búin að gleyma útreiðinni sem hún fékk eftir ömurlegustu ríkisstjórn lýðveldistímans, fyrstu hreinræktuðu vinstri stjórninni. Þjóðin gerði réttast í að senda Viðreisn og Samfylkinguna út af þingi í næstu kosningum.
Núna þarf þjóðin enn og aftur að rísa upp gegn ásælni og árásum Evrópusambandsins sem reiðir sig á fimmtu herdeild í röðum landsmanna: Valkyrjuflokkana. Bókun 35 er verkfæri ESB til að sundra þjóðinni og þá verður eftirleikurinn auðveldur: að hrifsa til sín gullegg þjóðarinnar og skilja landsmenn eftir rænda, snauða og í sömu vesöld og ríkti á landinu á 18. öld.
![]() |
Þorgerður: Þjóðin spurð hvort hún sé tilbúin í viðræður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:10 | Facebook
Athugasemdir
Þetta er nokkuð djúp samsæriskenning.
Ert þú andvígur því að farið sé eftir EES-samningnum?
Hef ég kannski spurt þig að því áður?
Guðmundur Ásgeirsson, 12.2.2025 kl. 16:53
Sæll Guðmundur og þakkir fyrir innlit og athugasemd. Það er engin samsæriskenning að halda því fram að ákveðið innlimunarferli sé þegar farið af stað í annað sinn í ESB. Ríkisstjórnin byrjaði á því að senda forsætis- og utanríkisráðherra Íslands til Brussel þar sem þeim var tilkynnt að umsóknin væri enn virk. Síðan hefja þær einbeittar fulla ferð með bókun 35 sem fyrsta mál á þingi. Boðað er til ESB-kosninga á Íslandi 2027. Í hverju felst samsæriskenningin? Að ríkisstjórnin vinni markvisst að því með ESB elítuna að bakhjarli að koma Íslandi í ESB? Ert þú samþykkur bókun 35? Ef bókun 35 hefði verið gerð fyrir Icesave deiluna, þá væri bæði þú og ég á köldum klaka að greiða skuldirnar.
Gústaf Adolf Skúlason, 12.2.2025 kl. 20:05
Gústaf, málflutningur þinn og annarra um bókun 35 mótast, annars vegar, ef vanþekkingu, og hins vegar af grundvallarmisskilningi sumra. Sem betur fer eru innlimunarsinnar og við sem styðjum EES sammála um þetta mál. Bókun 35 hefur verið í gildi síðan 1994. Bókun 35 verður nú lögfest lögskýringarregla, en var áður samningsbundin lögskýringarregla. "Pacta sunt servandum", ekki satt?
Leiðin úr EES kiggur þráðbeint í ESB. Að gefnum tveimur slæmum kostum virðist ESB illskárri. Þið viljið neyða okkur andstæðinga innlimunar til að taka afstöððu með innlimun! - Hversu galið er það að láta andstöðu við EES leiða til innlimunar ESB á Íslandi?
Einar Sveinn Hálfdánarson, 12.2.2025 kl. 23:23
Samsærikenningin felst í því að þetta sem þú lýsir hafi eitthvað með bókun 35 að gera. Það er líka samsæriskenning að bókun 35 hefði haft áhrif á Icesave, því það tilfelli féll ekki undir hana. Bókunin nær aðeins til þeirra tilvika þegar tiltekin íslensk lög stangast á við einhver önnur lög. Lögin um innstæðutryggingar stönguðust ekki á við nein önnur lög. Sigur vannst í málinu fyrir EFTA dómstólnum einmitt vegna þess að lögin og þær aðgerðir sem var gripið til á grundvelli þeirra voru í samræmi við EES-reglur en stönguðust ekki á við þær því þá hefðum við tapað. Sem einn af forsprökkum andspyrnu gegn Icesave-III samningunum frábið ég mér að rangfærslur um þá sigurbaráttu séu notaðar til að byggja upp samsæriskenningar um annað óskylt mál. Við hefðum aldrei unnið þann sigur nema af því að við héldum alltaf fram réttum staðreyndum. Ég legg til að sama aðferð verði notuð í baráttu gegn ESB aðild því það skemmir fyrir allri slíkri baráttu að byggja hana á rangfærslum.
Guðmundur Ásgeirsson, 12.2.2025 kl. 23:32
Einnar Sveinn, þarna hittirðu naglann aldeilis á höfuðið.
Guðmundur Ásgeirsson, 12.2.2025 kl. 23:35
Sæll Einar og takk fyrir innlit og athugasemd. Einkennilegt að úthýsa öllum þeim sem komu að gerð EES samningsins sem fákunnum lögleysingjum? Þetta eru einnig merkilegasti stuðningur við inngöngu í ESB sem ég hef áður séð: Betra að ganga með í ESB en að viðhalda EES-samningnum. Svona næma framsetningu hef ég ekki séð síðan Össur Skarphéðinsson kom með kíkja í pakkann aðlögunarferlið og var hirtur fyrir vikið af ESB. Að kenna ESB-andstæðingum um nauðsyn þess að Ísland gangi í sambandið er náttúrulega falsfeðrun í hæsta máta sem gæti hugsanlega verið refsiverð sbr. Falsa paternitas crimen est. Afhverju ert þú huldumaður með lokað blogg Einar?
Gústaf Adolf Skúlason, 13.2.2025 kl. 05:18
Sæll Guðmundur, því miður halda rök þín ekki vatni. Þau byggja á sömu skýringu og utanríkisráðherrans að EES-samningurinn sé lagtæknilega gallaður og það þurfi því að leiðrétta samninginn með skýrri klásúlu um að lög ESB gangi framar íslensku stjórnarskránni í ágreiningsmálum. Sannleikurinn er að verið er að taka burtu innbyggðar varnir Íslands í EES-samningnum vegna þess að ESB vill innlima Ísland í sambandið. ESB í dag er ekki það sama og það var þegar samningurinn var gerður. Ísland hefur mest allra EES-ríkja undirkastað sig regluverki ESB gegnum EES-samninginn sem farið er að hamla athafnasemi og sjálfræði Íslands sem fullvalda þjóðar.
Mitt ráð til þín: leggðu samsæriskenningartalið til hliðar og komdu með í síðari hálfleik Icesave baráttunnar. Bestu kveðjur....
Gústaf Adolf Skúlason, 13.2.2025 kl. 05:33
Þakka þér Gústaf Adolf fyrir að halda áfram að leggja landi þínu lið,þótt búsettur sért erlendis í fullu starfi.Gott að sjá þeim fjölga sem eru sannfærðir um villuna; svo mikið sem detta í hug að sækja um aðild..esb..
Sannir Íslendingar þurfa ekki að velja um einhverja kosti AÐRA EN STANDA SAMAN UM LANDIÐ OKKAR ÍSLAND.
Helga Kristjánsdóttir, 13.2.2025 kl. 06:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.