Vonandi eru Rússar ekki búnir að koma hlerunartæki undir rúmi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra, sem sá skuggaflota Rússa markvisst kippa úr sambandi sæstrengi í Eystrarsaltinu." Ráðherrann hótar Íslendingum með slíkum aðgerðum Rússa á neðansjávarstrengjum til Íslands. Hún setur sig og Ísland allt í sama klassa heimskunnar og sænska sjóherinn sem hefur í áratugi verið að eltast við rússneska kafbáta í sænska skerjagarðinum án þess að finna neinn nema á hafsbotni frá fyrri stríðum. Það sama á við breska sjóherinn sem undirbjó sig fyrir kjarnorkuárás rússneskra kafbáta" nýlega, þegar hvalur prumpaði of nálægt Skotlandi án þess að tilkynna það fyrir fram.
Sannleikurinn er sá að engar sannanir liggja fyrir um skemmdarverk Rússa á köplum í Eystrasalti. Hins vegar eru stríðsóð sænsk yfirvöld komin á fremsta bekk með að reyna að stækka Úkraínustríðið til vesturs með áreiti sínu og í framhaldinu mögulega beinum árásum á rússnesk skip í Eystrasalti. Sænsk yfirvöld hóta skipum á Eystrasalti með sænska hernum sem núna er hluti Natóhers og sjá Rússa í hverri smágáru á yfirborði Eystrasalts. Kannski er það markmiðið að breyta Úkraínustríðinu í tortímandi kjarnorkustyrjöld með árekstrum og beinum vopnuðum átökum við Rússa á Eystrasalti. Sænsk yfirvöld hafa þegar pantað hálfa milljón grafa sem verið er að grafa til að taka við líkum úr komandi stórstríði við Rússa. Hversu margar grafir ætlar Þorgerður Katrín að panta á Íslandi? 20 þúsund?
Hvar eru mannréttindi barna og foreldra?
Utanríkisráðherrann fer mikinn í Facebookfærslu og boðar trúboð gegn forseta Bandaríkjanna sem sé ein stærsta ógn við mannréttindi heims vegna yfirlýsingar um að kynin séu bara tvö: karl og kona. Það sama gerði Guð almáttugur sem risti á töflur Móses: Heiðra skaltu föður þinn og móðir. Ætlar utanríkisráðherrann að sækja fundalotu mannréttindaráðs SÞ í Genf í næsta mánuði og gera réttindum hinsegin fólks hátt undir höfði í ávarpi sínu. Hún skrifar:
Engin manneskja á að þurfa að búa við óöryggi eða ofsóknir vegna þess hver hún er eða hvernig hún skilgreinir sig."
Benda má ráðherranum á að enginn hryðjuverkamaður skilgreinir sig sem slíkan. Bolsjevíkar, morðhundar Leníns og Stalín skilgreindu sig sem framverði lýðræðis og mannréttinda. Það sama gera kommúnistar í Kína sem halda fólki í þrældóm, fremja þjóðarmorð á Úrígúum og selja líffæri fanga til hæstbjóðanda. Fyrir utanríkisráðherrann skipta mannréttindi barna eða foreldra engu máli. Að verið sé að limlesta ókynþroska börn og eyðileggja með óafturkræfum kynþroskahemlum. Einungis réttindi" kverúlanta og kynsegin frekjudalla sem sem fá greitt úr fjárhirslum ríkisins eins og Samtökin 78 skulu leyfð. Utanríkisráðherrann er á pari við barnasniffandi fyrrum Bandaríkjaforseta og þeirra sem ríkisvætt hafa forráðarétt foreldra yfir börnum sínum. Styður utanríkisráðherrann tæknilega kynlífskennslu til ókynþroska barna eins og núna viðgengst á Íslandi?
Hún getur ekki beðið lengur
Þorgerður Katrín fer einnig mikinn í grein 2021 og skrifar um stefnu komandi ríkisstjórnar:
Loftslagsmálin verða að vera í brennidepli hjá næstu ríkisstjórn enda fékk mannkynið rauða aðvörun í nýrri skýrslu IPCC eins og António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna orðaði það. Viðreisn mun berjast fyrir því að Ísland geri margfalt betur en fráfarandi ríkisstjórn lagði upp með sinni stöðnunarpólitík."
Þorgerður fer með Ísland á hraðbraut Guterres til helvítis. Bjarni Benediktsson lofaði Guterres auknum fjárframlögum úr vasa íslensks almennings sem Þorgerður kallar stöðnunarpólitík." Hamfarahlýnunarógn þeirra Guterress og Þorgerðar Katrínar mun leiða til fátæktar á Íslandi. Græni Gulli verður eins og þægur kórdrengur við hlið hamfarahlýnunardrottningarinnar sem rústa mun velferð Íslands í brjálæðislegum verkefnum grænna umskipta."Aðgerðir strax segir Þorgerður:
Það er kýrskýrt í okkar huga að loftslagsáherslur verða að vera í forgrunni allrar ákvarðanatöku stjórnvalda."
Loftslagsaðgerðir Þorgerðar, Ingu og Kristrúnar ásamt Bessastaða-Höllu mun eyðileggja efnahag Íslands og steypa þjóðinni í efnahagsfjötra sem láta Icesave líta út eins og frelsisvind á túni.
1.900 milljón króna lánið sem hvarf"
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er arfleifð útrásarvíkinga sem tekist hefur að gera innrás í stjórnkerfi landsmanna. Níu dögum fyrir Hrun 2008 seldu hún og maður hennar, Kristján Arason, hlutabréf sín í Kaupþingi. Hann var eini starfsmaður Kaupþings sem fékk að færa hlutbréf og skuldir í einkahlutafélag 7Hægri ehf í mars 2008. Eftir í félaginu voru 500 þúsund krónur til greiðslu fyrir 1.900 milljón króna lán. Svindl Ingu Sælands með 400 milljónir í illa fengnum ríkisstyrk eru smámunir í sambandi við fjármálaafrek stöllu hennar í utanríkisráðuneytinu.
Þetta svindlmál og mörg önnur dæmi útrásarvíkinganna í kjölfar ránsferða þeirra hurfu í skuggann af hatri keyptra stjórnmálamanna á Íslandi aðallega gegn Sjálfstæðisflokknum. Augljóslega þarf þjóðin að gera upp þennan hug að allt í lagi sé að svindla og pretta sem útrásarskúrkarnir innleiddu á Íslandi og Ólafur Ragnar Grímsson verðlaunaði og hélt veislur fyrir á Bessastöðum. Hann sá síðar eftir því, þegar hann gerði sér grein fyrir því, að skúrkarnir sendu reikninginn til almennings og stöðvaði þær fyrirætlanir fyrrum samherja á vinstri vængnum.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er eitur í beinum lýðveldisins Íslands. Hún fylgir glóbaliztum í Brussel og djúpríki Washington blint. Þjóðin þarf að bretta upp ermarnar og sparka henni og allri ríkisstjórninni út af þingi eins fljótt og mögulegt er og ná stjórnmálunum ómenguðum aftur til sín úr höndum fjárglæfrakvenna og innrásarvíkinga."
Ráðherra ekki á fundi varnarmálaráðherra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:53 | Facebook
Athugasemdir
Þarf ekki að auka Litíum skammtinn hjá henni.
Ragnhildur Kolka, 31.1.2025 kl. 11:40
Sæl Ragnhildur Kolka og takk fyrir athugasemd. Dugir það til? Efast um að kúlulánaminnið komi til baka.
Gústaf Adolf Skúlason, 31.1.2025 kl. 12:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning