Innflutt hryðjuverkastarfsemi heldur Svíþjóð í stálgreipum

polis


Sjö sprengjuhryðjuverk og fleiri skotárásir á tveimur sólarhringum í Svíþjóð


Myndin að ofan er tekin við bústað Kóranbrennarans Salwan Momika sem var drepinn í gær á meðan hann var að senda út á netinu. Lögreglan slökkti á útsendingunni en morðið sást á samfélagsmiðlum.

Ástandið í Svíþjóð er orðið óbærilegt fyrir almenning. Sérstaklega í höfuðborginni Stokkhólmi, sem þjáist af sprengjuhryðjuverkamartröð með fimm sprengjuódæðum á þriðjudag og svo einu í gær. Samtímis rignir skotárásum yfir og tveir menn drepnir á sama tíma, annar í Lundi og hinn í Husby í Stokkhólmi. Það nýja, óhugnanlega í sambandi við aukningu sprengjuhryðjuverka, er að þar eru glæpamenn að sprengja fyrirtæki eða ógna fyrirtækjaeigendum í fjárkúgunarskyni. Glæpalýðurinn er farinn að stjórna ansi miklu í Svíþjóð, fólk er ekki lengur frjálst og frásagnir fórnarlamba minna á sögur úr stríðum erlendra ríkja.

Það versta og það sem hefur skapað skelfingu íbúa Stokkhólms er að lögreglan hefur tvívegis þurft að loka af stórum svæðum í höfuðborginni og bannað fólki að fara út í lengri tíma vegna þess að virkar handsprengjur hafa fundist á vergangi sem geta drepið fólk. Hefur mátt heyra örvinglaða foreldra sem ekki geta náð í börnin sín úr leikskólum, vegna þess að þau eru læst inni, fólk hefur lokast inni í verslunum og veitingastöðum og ekki getað farið ferða sinna. Þetta eyðileggur hversdagslegt líf og minnir á stríðsástand. Í tvö skipti, á þriðju dag og svo aftur á miðvikudag þurfti lögreglan að grípa til slíkra ráðstafana í höfuðborginni. Í fyrra skiptið fundust handsprengjur á hjólreiðastíg og í það síðara fyrir utan veitingastað.

Sprengjuhryðjuverkum beint gegn fyrirtækjum og fyrirtækjaeigendum í fjárkúgunarskyni


Lögreglan segir að mörg sprengjuhryðjuverk séu ekki vegna innbyrðis árása glæpahópanna sjálfra, heldur vegna fjárkúgunar glæpahópa gegn fyrirtækjaeigendum. Líklegast er að viðkomandi borga ekki „tollinn" fyrir að fá að vera í friði og þá sprengja glæpamennirnir fyrirtækið eða heimili fyrirtækjaeigandans.

Samtímis hafa skotárásirnar leyst hverja aðra og til og með sýndar í beinni á samfélagsmiðlum, þegar glæpahóparnir ráðast gegn hvor öðrum. Í Husby í norður Stokkhólmi kom vopnaður maður skyndilega inn í búð og drap mann sem kom í ljós að var afi kúrdíska refsins, þekkts foringja eins glæpahópanna. Lögreglan kom á staðinn og kom til skotbardaga og þeir náðu að handtaka morðingjann, góðkunningja lögreglunnar á fertugsaldri. Í Lundi var maður drepinn fyrir framan augu margra af 17 ára ungling sem lögreglan handtók. Hinn myrti var góðkunningi lögreglunnar.

Linnulaus sálfræðilegur þrýstingur á Svíum

sprangdad

 Eymdin af öllum þessum hryðjuverkum er farin að fá alvarleg áhrif á Svía. Frelsið er skert og allir verða sífellt að vera á varðbergi. Forsætisráðherrann Ulf Kristersson (t.h á mynd) talar um innlenda hryðjuverkastarfsemi sem er rétt en full seint orðað. En betra seint en aldrei.

Hann fær gagnrýni frá samstarfsflokknum Svíþjóðardemókrötum sem vilja bæta við orðinu innfluttur þannig að ræða eigi um innflutta, innlenda hryðjuverkastarfsemi. Richard Jomshof (t.v. á mynd) einn af leiðandi talsmönnum Svíþjóðardemókrata og formaður dómsmálanefndar sænska þingsins segir að réttara væri að segja „innflutt hryðjuverkastarfsemi." Stór hluti glæpahópanna og forystumenn eru innflytjendur til Svíþjóðar.

Stóra spurningin er af hverju yfirvöld lýsa ekki yfir neyðarástandi og senda herinn til að útrýma þessum hryðjuverkamönnum. Allt samfélagið tekur sálfræðilegt mein, margir örvinglaðir og sögur fórnarlamba fylla fjölmiðla. Bara það eykur angist og kvíða almennings. Verð ég næstur? spyrja margir.


mbl.is Sprengjugerðarmaður gripinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Það er ekkert mál að leysa þetta ef vilji er fyrir hendi.

Það er hinsvegar greinilegat að það er enginn vilji, ríkið vill hafa þetta svona.

Glæponar virka sem afl á fólkið, sem þröngvar því til sívaxandi fasisma.  Sem leiðir til þess að ríkið er stöðugt verðlaunað fyrir að gera ekkert í glæpunum. 

Alltaf þegar fólk afsalar sér völdum til ríkisins gerist þetta.

Fólk sem er hrætt við ryksugur fær alltaf til sín menn með handsprengjur.

Ásgrímur Hartmannsson, 30.1.2025 kl. 16:24

2 Smámynd: Gústaf Adolf Skúlason

Sæll Ásgrímur og takk fyrir athugasemd. Sammála að það sé enginn vilji, því einfaldast er að lýsa yfir neyðarástandi og fara af fullu í það með aðstoð hersins að handtaka þessa hryðjuverkamenn. En það er ekki gert og tónninn aðeins hækkaður vegna aukins þrýstings frá almenningi.

Ef þú meinar ryksugur til að ryksuga hryðjuverkamenn þá stemmir lýsingin.

Gústaf Adolf Skúlason, 30.1.2025 kl. 16:46

3 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Ég meinti bókstaflega ryksugur, til þess að sjúga upp ryk í stofunni.

Það vuirðist gerast öðru hvoru að sérsveitin er kölluð til af einhverjum hræddum einstakling til þess að ógna manni með ryksugu.

Seinast var það bara einhver sem var að ryksuga bílinn sinn.  Sérsveitin kom honum mjög í opna skjöldu.

Ásgrímur Hartmannsson, 30.1.2025 kl. 17:37

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband