Á Inga Sæland yfir höfði sér 9 ára fangelsi?
28.1.2025 | 09:28
Til eru dómslegar forsendur varðandi þá sem svíkja meðvitað út fé úr fjárhirslum ríkisins með dómi Landsréttar 22. mars 2024 í máli saksóknara gegn tveimur bræðrum sem stofnuðu og voru forráðamenn hins svo kallaða trúfélags Zúisma. Með fjársvikum og peningaþvotti á aðeins rúmum þriðjung þeirra 240 milljóna sem Ingu Sæland hefur tekist að svíkja úr ríkinu, fengu bræðurnir fangelsisdóma, annar fékk 18 mánuði, hinn tvö ár. Samtals þrjú og hálft ár í fangelsi fyrir fjársvikin.
Að svíkja fé út úr ríkinu er því alvarlegt mál. Ef Zúistadómurinn er viðmiðun og hlutfall peninga og dómsniðurstöðu svipað má ætla að Inga Sæland eigi yfir höfði sér allt að níu ára fangelsi.
Siðleysið í fyrirrúmi
Ekki eiga stjórnmálamenn sem svindla fé út úr ríkissjóði að fá vægari dóm en aðrir. Hvar væri siðferðið þá og traust til hins opinbera? Hér þurfa starfsmenn kerfisins að taka sig í hnakkadrambið og starfa eftir þeim lögum sem Alþingi setur en allt lyktar þetta af pólitískri og vinabundinni spillingu. Ef Inga fær betri útreið en Zúistabræður, má jarða þetta fyrirkomulag og banna ríkinu að leggja fé til stjórnmálaflokka í náinni framtíð. Samkvæmt Morgunblaði dagsins:
Skráðum stjórnmálasamtökum er gert grein að skila ríkisendurskoðenda ársreikningum árituðum af endurskoðendum. Í kjölfarið skal ríkisendurskoðandi birta ársreikninga með nöfnum allra lögaðila sem styrkja þá.
Ekkert af þessu virðist hafa verið gert varðandi skúffufyrirtæki Ingu Sælands.
Ábyrgð yfirvalda
Mbl. skrifar:
Af hálfu ríkisins er meginreglan sú að á fjárlögum er samþykkt heildarupphæð ætluð stjórnmálaflokkum, sem skiptast eftir atkvæðahlutfalli flokkanna í síðustu kosningum. Þó er eins konar startgjald 12 milljónir króna sem allir flokkar fá óháð kjörfylgi eða þingstyrk.
Hér er beinlínis verið að tæla óvandaða til að stofna stjórnmálaflokk á pappírnum til að svíkja fé úr ríkinu. Var það sú freisting sem varð Ingu Sæland að falli? Alla vega jarðaði hún siðferðið með því að sækja um og taka á móti 240 milljónum án þess að hafa fullnægt lagalegum skilyrðum.
Þess vegna er það hárrétt ákvörðun hjá fjármálaráðherranum að stöðva frekari greiðslur og láta fara fram rannsókn innan dyra á fjármálaráðuneytinu og láta starfsmenn sem ekki fylgja lögum sæta ábyrgð.
Hinu opinbera ber skylda til að ákæra Ingu Sæland fyrir fjársvik og peningaþvott. Verði það ekki gert mun djúpt sár rist í traust þjóðarinnar til hins opinbera.
Þrot vofir yfir Flokki fólksins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:06 | Facebook
Athugasemdir
Þú ættir kannski að kynna þér betur skilyrði fjársvikaákvæðis hegningarlaga, þar á meðal um ásetning.
En ef það ætti að ákæra allt forystufólk stjórnmálaflokka sem hafa fengið fé úr ríkissjóði án þess að uppfylla öll ströngustu formskilyrði þyrfti að fara ansi langt aftur í tímann og ef þau yrðu dæmd (sem er hæpið) þá væru þau svo mörg að það þyrfti sennilega að byggja nýtt fangelsi til að koma þeim öllum fyrir. Efast má um að ríkið myndi koma fjárhagslega vel út úr slíkri vegferð.
Guðmundur Ásgeirsson, 28.1.2025 kl. 16:22
Ég sé lausnir:
Réttast er að ríkið kæri allt þetta lið langt aftur.
Til refsingar skulu þeir svo tína rusl og moka snjó næstu 2-15 árin. Þeir sem eru of aldraðir til þess geta prentað bílnúmer.
Ásgrímur Hartmannsson, 28.1.2025 kl. 17:09
Ásgrímur. Heldurðu að hægt sé að sanna að skilyrði fjársvikaákvæðis hegningarlaga, þar á meðal um ásetning, séu uppfyllt?
Guðmundur Ásgeirsson, 28.1.2025 kl. 17:22
Sælir og takk fyrir innlit og athugasemdir. Ég segi eins og Ásgrímur að farið hefur fé í verra en að byggja fangelsi fyrir fjármálasvindlara. Með slíkt fólk í steininum sparast mikill peningur, þegar þeir geta ekki haldið áfram að stela peningum.
Reykjavíkurborg er nærtækt dæmi. Þá á ekki að leyfa neitt svindl. Með lögum skal land byggja. Það gengur ekki að þeir sem setja lögin fari ekki sjálfir eftir þeim. Fjármunirnir sem sóað er eru skattgreiðenda. Greinilegt að útrásarspillingin er orðin að innrásarspillingu sem rífa verður upp með rótum án vælu- og aumingjaskapar.
Gústaf Adolf Skúlason, 28.1.2025 kl. 19:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.