Megi 2021 falla í gleymskunnar skaut á sama augnabliki og 2022 tekur við
31.12.2021 | 17:29
Þessi fallega mynd er tekin á suðurströndinni og víst er að náttúrufegurð Íslands slær öllu við.
Lánaði því myndina hjá útvarpi allra landsmanna eða eins og Arnþrúður útvarpsstjóri segir svo fallega:
Útvarp Saga, frjálst og óháð útvarp Án ríkisstyrkja!"
Þeim fækkar óðum sem þora að opna munninn undir hótunum um brottrekstur, refsingar af ýmsu tagi eða bókstaflega að vera lagðir í einelti út úr túni. Fasisminn veðrar morgunloft í slagtogi við kommúnismann enda tvö höfuð sama drekans.
Lýðræðið er á undanhaldi, allur hinn vestræni heimur er á undanhaldi undan árásum moldríkra ólígarka, sem selt hafa lönd sín og hagsmuni til kínverska kommúnistaflokksins og eru eins og útrásarvíkingarnir voru á sokkabandsárum sínum á Íslandi, með marga ráðherra í vasanum.
Það er alltaf einstök upplifun að sannreyna fólk og sjá þá, sem síst skyldi, hefta tunguna fyrir fáeina silfurpeninga. Kommúnisminn er nakinn og spinnur vef um eigið ágæti með stuðningi aðila eins og Apple, Walt Disney, Biden og Nike. Þetta eru bara fjögur dæmi af þúsundum en nýja Mekka siðblindunnar reisir sér musteri í Peking, hinni nýju miðstöð heimsspillingarinnar með útibúum í SÞ, WHO og ESB.
Norðurlönd og litla Ísland vilja að sjálfsögðu ekki vera neinir eftirbátar, hvorki í covidfasisma eða umhverfisgrænum fasisma eða þá bara hefðbundnum kerfisfasisma sem treður öllum stjórnarskrám undir hælinn. Virðist sem verðbólga í eiðstöfum að stjórnarskrám fylgi jafn mikil eða ekki mun meiri verðbólga í stjórnarskrárbrotum og þá helst hjá þeim eiðsvurnu sjálfum.
Með lögum skal land byggja sögðu forfeðurnir og skildu eftir sig lögsögu sem vert er að fylgja og ber að vernda.
En margir þeirra sem gefa þau loforð eru önnum kafnir við að eyða landi og löndum með ólögum.
En vonin er ekki úti, því svo lengi sem hjartað slær þá lifir vonin.
Það verður vegarnestið inn í 2022.
Farsælt ár og þakkir fyrir það liðna.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 1.1.2022 kl. 11:16 | Facebook
Athugasemdir
Sömuleiðis Gústaf og þakkir fyrir alla þína
þörfu og góðu pistla.
M.b.kv.
Sigurður Kristján Hjaltested, 1.1.2022 kl. 11:44
Sömuleiðis Gústaf og megi nýja árið verð þér og þínum gott....
Jóhann Elíasson, 1.1.2022 kl. 14:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.