Feigðarós Dags B. Eggertssonar dýrt ævintýri fyrir Reykvíkinga
15.2.2018 | 00:32
Skuldir Reykvíkinga slaga hátt í 4-5 milljónir kr á hverja meðal barnafjölskyldu í borginni.
Þetta er engum gleðiefni, - varla börnum í borginni sem hafa þessa skuldbyrði á bakinu eftir hömlulausa eyðslu vinstri manna í eigin gæluverkefni á kostnað bæjarbúa.
T.d. getur eftirsatt gatnaviðhald þýtt að byrja þurfi á götulagningu upp á nýtt. Markmið borgarstjórnar að takmarka eða eyða alveg bílaumferð er steinrunnið sjónarmið sem gengur þvert á þarfir vinnandi fólks sem þarf á farartæki að halda til að komast í vinnuna.
Borgarstjórinn hefur hvað eftir annað sýnt dómgreindarleysi með því að ryðjast inn á starfssvið ráðherra t.d. með stjórnmálaályktunum um utanríkisstefnu Íslands. Fagna ber því yfirlýsingu Vigdísar Hauksdóttur um athugun á valdasviði borgarstjórna/sveitarfélaga og ríkisins.
Í heimi einræðisherrans eru engir stólar til fyrir stjórnarandstæðinga.
Í lýðræðisríki ákveða bæjarbúar hverjir fá að sitja í stólunum. Að banna frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins að taka sæti á almennum fundi sýnir að Dagur B. Eggerts er búinn að tapa öllum áttum.
Hann hagar sér eins og apaguð týndu borgarinnar.
Einn hafði ekki eins gaman að þessu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:58 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.