Ungverjar og Framsóknarmenn kjósa í dag
1.10.2016 | 23:45
"Vilt þú að það verði í höndum Evrópusambandsins að ákveða hvort íbúum annarra ríkja verði leyft að setjast að í Ungverjalandi án samþykki þingsins?" (lausl. þýtt) er spurt í þjóðaratkvæðagreiðslu dagsins í Ungverjalandi.
Búist er við yfirburðasigri NEI svarsins, sem verður þungt högg á forráðamenn ESB og endalok þvingandi flóttamannaúrræða Evrópusambandsins. Þar með setja Ungverjar Ungverjaland í vonanna birtu.
"Vilt þú að það verði í höndum hrópandi lýðs á Austurvelli og hrægammastjóra að ákveða hver verður næsti formaður Framsóknarflokksins án samþykki flokksmanna?" gæti spurning dagsins í formannskjöri Framsóknarflokksins verið.
Með yfirburðasigri NEI svarsins verður þungu höggi komið á popúlisma göturæðisins og fjármálasvindlara, sem fela sig á bak við keypta "rannsóknar"blaðamenn og tölvuþrjóta.
Með Sigmund Davíð Gunnlaugsson áfram við stýrið kveikja Framsóknarmenn vonanna birtu næsta kjörtímabil á Íslandi.
Í vonanna birtu 2. október 2016
Menn hafa haldið fram ósannindum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:59 | Facebook
Athugasemdir
Sigmundur D. er EINI FORMAÐUR FRAMSÓKNAR- UTAN LJÚFLINGSINS ÚR FLÓANUM- SEM HEFUR UNNIÐ FYRIR FÓLKIÐ Í LANDINU.
Fyrverandi forystumenn framsóknar hirtu allt sem hægt var að stela af landsmönnum-- og enginn sagði neitt. Fóru stórauðugir af ÞESSUM VINNUSTAÐ SEM Á AÐ VERJA HAGSMUNI ALMENNINGS.
Erla Magna Alexandersdóttir, 2.10.2016 kl. 19:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.