Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Margir sænskir stjórnmálamenn hafa blóð á höndum sér

BjörnRanelidMorðið á lögreglunni í Gautaborg hefur rifið djúpt sár í sænsku þjóðarsálina og ljóst að þolinmæðismörk almennings hafa verið brotin. Mörgum Svíum finnst hlutirnir vera á þann hátt, sem Björn Ranelid lýsir hér að neðan:

Föðurlandssvikarar

Margir sænskir stjórnmálamenn hafa blóð á höndum sér og þeir svíkja Svíþjóð og greiða götu morðingja, sníkjudýra og óvina kærleikans, góðvildarinnar og allra þeirra, sem vilja lifa í trausti og virðingu fyrir samferðafólki sínu.

Já, ég meina nákvæmlega það, sem ég skrifa hér og þannig er ég ekki vondur og ég beiti ekki sænsku sögninni að svíkja neinu ofbeldi. Ég hef ekki flutt hana inn, hún fæddist og hefur lengi verið ræktuð í heimalandi mínu, sem ég elska og virði á óteljandi vegu.
Svíþjóð þarf ekki ofurhraðlestir sem kosta tvö hundruð milljarða króna. Svíþjóð þarf skjótustu og bestu leiðina að lögum og reglum, frið og ró fyrir börnin og til allra þeirra, sem sjá um sig sjálfir, eru við nám, vinna, greiða skatta og bera virðingu fyrir náunganum.

Stjórnmálamaður, sem svíkur land, sitt er sekur um vísvitandi lygar, skaðlegt samsæri og ráðabrugg og umfram allt svik við allar þær mannverur, sem vilja lifa í friði og sátt við náungann.

Enginn lögreglumaður á vakt er skotinn vegna mistaka. Einstaklingur sem ber vopn og skýtur lögreglumann við störf með köldum ásetningi, gerir það aldrei vegna mistaka og engar undantekningar finnast í heiminum.

Þunguð eiginkona hins skotna lögreglumanns er einnig lögreglumaður eins og bróðir hans. Ég skammast mín ekki fyrir að skrifa, að ég græt þegar ég heyri föður myrta sonarins segja þetta. Faðir hinnar barnshafandi konu er einnig lögreglumaður. Þannig hefur sú fjölskylda þjónað sænskum almenningi meira en nokkur önnur fjölskylda í Svíþjóð. Ég get varla skrifað þetta.

Í gærkvöldi var tuttugu og fimm ára gamall maður skotinn til bana við hlið skóla í Huddinge. Þannig heldur villimennskan og stríðið áfram í Svíþjóð. Þetta er stríð bæði andlega og bókstaflega séð.

Ég hef verið grýttur með orðum og áreittur af fölskum blaðamannakjánum, vegna þess að ég er fyrsti og eini rithöfundurinn, sem skrifa sannleikann um ástandið í Svíþjóð. Ég þjáist og syrgi það, sem er að gerast í landinu, á meðan þeir þjóna lyginni og falsa raunveruleikann.

Ég er þjóðernissinni og heimsborgari í einni og sömu manneskju og ég virði alla einstaklinga, sem vilja lifa í friði með náunganum. Þú og ég ákváðum ekki, hvar og hvenær við myndum fæðast og hver væri móðir okkar og faðir. Upphaflega höfðum við ekkert gert til að vera Svíar. Það er gjöf, sem við eigum að varðveita á besta hátt og vera þakklát fyrir.

Það dugir, að aðeins einn morðingi og hryðjuverkamaður herji á Drottningargötunni í Stokkhólmi, Biskopsgården í Gautaborg eða Fersens väg í Malmö, til þess að það hafi áhrif á alla íbúa Svíþjóðar. Börnin sjá og heyra, lesa og neyðast til að vita. Þetta er til skammar fyrir landið og ófyrirgefanleg synd.

Öllum glæpamönnum, sem dæmdir eru til brottvísunar, verður að vísa strax úr landi með valdi. Það finnast engin undantekningar. Maður kýs að vera glæpamaður. Enginn þarf að svelta og þjást af hungri í Svíþjóð. Hér geta allir farið í skólann og drukkið hreint vatn og haft þak yfir höfuðið á einhven hátt. Það er alltaf hægt að leita sér aðstoðar og stuðnings á ýmsa vegu.

Fólk, sem fæðist í landinu og hefur starfað og greitt skatta, verður alltaf að fá lífeyri svo það geti framfleytt sér og komist af a.m.k. með lífsnauðsynjarnar. Allt annað er til skammar fyrir Svíþjóð.

Þú ættir að dreifa þessum pistli til allra leskunnugra í Svíþjóð.

Björn Ranelid, í sorg og heilagri reiði, annan júlí árið 2021.


mbl.is Varð líklega fyrir slysaskoti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Miðflokkurinn eini sanni fullveldisflokkurinn í boði í næstu Alþingiskosningum

Kopia av SigmundurdavidÞað var sérlega ánægjulegt að hlýða á ávarp Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns Miðflokksins við opnun Landsþings Miðflokksins í dag. Sigmundur er sjóaður baráttumaður eftir Icesave, þegar fjármálasvindlarar með tilstuðlan ESB ætluðu að þrælbinda Íslendinga til að greiða fyrir stolið fé útrásarvíkinga. 

Skýrt er á mjög svo greinargóðri skilgreiningu formanns Miðflokksins, að enginn annar stjórnmálaflokkur á Íslandi hefur burði og þor til að vinna á grundvelli stjórnarskrár lýðveldisins sem samþykkt var á Þingvöllum 17. júní 1944. Lýsti Sigmundur því, hvernig Miðflokknum tókst að stöðva afnám fullveldis Íslendinga með lúalegri tillögu að breya stjórnarskrárinni. Á borðinu núna liggur tillaga Sjálfstæðisflokksins skv. EES-skýrslunni um að gera vald ESB æðra ákvörðunum lýðveldisins. Sjálfstæðisflokkurinn er alfarið horfinn frá þjóðlegum grundvelli í stefnu sinni vegna höfðingjasleikjuháttar aðallega við embættismenn ESB og Kínverska Kommúnistaflokksins og hefur þegar vélað orku Íslands inn í net hákanna í ESB.

Ég mun skrifa frekar um ræðu Sigmundar síðar, þegar ég hef kynnt mér innihaldið nánar, en ljóst er að vilji Ísland komast út úr átökum dagsins, þar sem fjöregg þjóðarinnar er enn á ný sett í vogarskálina á móti þúsundfalt sterkari aðila, þá er Sigmundur Davíð eini maðurinn sem getur staðið upp í hárinu á alþjóðlegu valdi og ofbeldi, innra svikulu eiginhagsmunakerfi ókjörinna embættismanna og sífelldum svikum vinstri manna sem neita að vinna að lögum og reglum og svíkja bæði lögreglu og landsmenn. 

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Miðflokkurinn eru vonarstjarna Íslands til að þjóðin geti haldið áfram á þeirri braut sem lagt var upp í með frelsisbaráttu Jóns Sigurðssonar og úrkynjaðir stjórnmálaflokkar hafa enga getu til að leiða.

Það verður gæfuspor fyrir Ísland, að fá Sigmund Davíð Gunnlaugsson aftur í forsætisráðherrastólinn svo hægt verði að fara að nýta okkar sameiginlegu krafta í að leysa þau stóru vandamálin sem fram undan eru.

 


mbl.is Beint: Landsþing Miðflokksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvenær fékk Joe Biden nýja hugmynd síðast?

bidenrvikbrefMorgunblaðið á stóru láni að fagna að sá góði maður, Davíð Oddsson, ásamt öðrum ágætis ritstjórum, er ritstjóri blaðsins. Penni hans í leiðurum og Reykjavíkurbréfum er andlegt næringarefni fyrir allt frjálst hugsandi fólk. Laugardagsmorgnar eru tilhlökkunarefni  til að næra andann með morgunkaffinu og fáir ef nokkur nær þeirri ritfimi og þeim húmor sem einkennir bréfin á laugardögum.

Í gær brást ekki bogalistin fremur venju og afar hressilegt að fá jafn góða ádrepu á Joe Biden og svikahrappana í demókrataflokknum sem nú eru uppvísir af því að hafa stöðvað og lagt í skúffu rannsókn þá sem sett var af stað í tíð Trumps um uppruna Kínaveirunnar, vegna þess að verið væri að ofsækja Kína. Það tók minna en 24 tíma eftir að CNN birti þessar upplýsingar þar til að Biden tilkynnti að hann hefði fyrirskipað rannsókn á uppruna veirunnar sem ætti að ljúka með skýrslu á 90 dögum.

Höfundur Reykjavíkurbréfsins skrifar:

„Það er ekki langt síðan netrisarnir bönnuðu umræðu um það hvort hugsanlegt væri að kórónuveiran hefði komið úr rannsóknarstofu í Wuhan. Um hvað er ekki deilt? Það er ekki deilt um það að veiran kom frá Kína. Er það? Af öllum stöðum á hinu mikla landi þá er ekki um það deilt að smitið kom frá Wuhan. Er það? Og það ætti ekki heldur að vera umdeilt að í Wuhan er mesta rannsóknarstöð á kórónuveiru sem til er í heiminum. Er það?

Þar hafa farið fram tilraunir við breytingar á einmitt þessari veiru til að kanna hvort hægt sé að gera hana hættulegri en hún væri ella.

Trump forseti sagði opinberlega við almenning að það yrði að kanna rækilega hvort veiran hefði komið frá rannsóknarstofunni í Wuhan. Það var áður en ríkisbubbarnir á netrisunum ákváðu að loka á samskipti forsetans við almenning. Marxistinn, forstjóri WHO, hefur þóst vera að rannsaka þetta mál, og ekki komið auga á neitt grunsamlegt. Hann er reyndar rétt núna farinn að muldra því út úr sér að honum hafi ekki verið veittar nægjanlega góðar upplýsingar frá Kína og þess vegna fullyrt að veiran hefði borist af markaðstorgi! Joe Biden forseti var áður búinn að hafna því sem versta fáránleika að veiran væri „handgerð“ þótt hann trúi á það að veðrið í veröldinni sé handgert. Hin svonefnda „mainstream media“ hafði lýst því sem argasta rugli og „samsæriskenningum“ að nefna rannsóknarstofuna í Wuhan. Anthony Fauci, sérfræðingur Bandaríkjaforseta til áratuga, hafði reyndar lengst af einnig verið á því rólinu.

Nú hefur hann skyndilega snúið við blaðinu. Hann segir nú að alls ekki sé hægt að útiloka að veiran, sem lagði veröldina undir sig, hafi verið manngerð í tilraunaeldhúsinu í Wuhan. Allt í einu! Og allir í senn! Fauci vill láta rannsaka þetta. Biden felur leyniþjónustunum 17 að rannsaka þetta og þær hafi ekki nema þrjá mánuði til að skila niðurstöðu.

Hvað hefur gerst?

Væri það „samsæriskenning“ bréfritara, ef einn maður getur séð um samsæriskenningu, að telja líklegt að þessi viðsnúningur sé ekki tilviljun? Af hverju snerist Biden í þennan hring? Var hann boðinn í mat til Hunters? Datt hann í fjórða sinn á leið inn í flugvélina? Þetta tvennt hlýtur að vera ólíklegt. Og líka að Biden hefði fengið hugmyndina skyndilega sjálfur eftir að hafa afneitað henni í heilt ár. Hvenær fékk Joe Biden nýja hugmynd síðast? Er ekki líklegra að ein af þessum sautján leyndarstofnunum sem hitta forsetann nokkrum sinnum í viku, og núna að minnsta kosti umsjónarmenn hans, telji betra fyrir forsetann að það sé hann sem feli leyniþjónustum að rannsaka málið, þótt hann hafi verið sannfærður um annað lengi? Við vissum það ekki, en vitum það núna, að Tony (eins og Guðlaugur Þór kallar sjálfsagt Fauci eins og alla aðra sem hann hefur leikið sér með frá því að hann var barn) þekkir betur til þessarar rannsóknarstofu en flestir Bandaríkjamenn."

Kannski er meiningin með þessum skyndilega snúningi að í eitt skipti fyrir öll jarða þá tilgátu að veiran hafi komið frá rannsóknarstofunni í Wuhan. Kínverjar segja innanlands að veiran hafi komið frá Bandaríkjunum, kom hún í pósti? Munurinn er, að HIV genið, sem klínt var á kórónuna og gera hana að hættulegu líffræðivopni, var gert á rannsóknarstofnuninni í Wuhan sem er undir stjórn Alþýðuhersins í Kína. Allt samkvæmt fyrirmælum Xi Jinping og kommúnistaflokksins sem lýstu því yfir fyrir meira en fimm árum síðan, að líffræðilegum vopnum væri bætt í vopnabúr þjóðarinnar.

Útlitið er ekki gott fyrir hinn frjálsa heim, því kommúnistarnir nota gróðann af viðskiptum við Vesturlönd til að byggja upp einn sterkasta her í heimi. Brátt gellur Öreigar allra landa sameinist undir heimsbyltingu „nýja" kommúnismans.


1,3 milljarðar jarðarbúa ætla ekki að láta bólusetja sig gegn Covid-19

covidheimur

 

Gallup hefur gert könnun um afstöðu fólks til bólusetningar með bóluefni gegn Covid-19: 

  • 68% fullorðinna í heiminum vildu láta bólusetja sig í fyrra
  • Viljinn að bólusetja sig var frá 96% í Myanmar niður í 25% í Kazakhstan
  • 32% fullorðinna – eða 1.3 milljarða jarðarbúa – vilja ekki láta bólusetja sig

Vilji fólks til að taka bóluefni fyrir kórónaveiruna var breytilegur um allan heim árið 2020 og var hlutfall þeirra sem sögðust láta bólusetja sig allt frá 96% í Myanmar til 25% í Kasakstan.

Á Íslandi sögðust 85% ætla að bólusetja sig, 12% voru á móti.

Á fyrsta heila ári COVID-19 heimsfaraldursins sagði meirihluti fullorðinna um allan heim (68%) við Gallup, að þeir myndu samþykkja að vera bólusettir ef kórónaveirubóluefni væri ókeypis. Hins vegar er hlutfallið undir þeim 70% til 90% sem sumir sérfræðingar segja að þurfi að bólusetja til að ná hjarðónæmi.

En það sem skiptir máli, ef allir þeir sem segjast jákvæðir til að láta bólusetja sig myndu gera það, þá næðu aðeins 38 lönd af þeim 116 sem Gallup könnunin náði til, þeim 70% bólusetningarþröskuldi sem þarf til að ná hjarðónæmi. Bara Myanmar næði 90% efri mörkum hjarðónæmis.

Í 15 löndum, þar á meðal á Indlandi, sem nú er að glíma við aðra skelfilega bylgju veirunnar og þar sem innan við 10% þjóðarinnar hafa fengið einn skammt, var hlutfallið sem var tilbúið að taka bóluefni gegn kórónaveiru á bilinu 80% til 89%. Og hjá 22 öðrum, þar á meðal Bretlandi, Þýskalandi og Brasilíu sem einnig er að takast á við mikla COVID-19 bylgju voru 70% til 79% á því að verða bólusettir.


Viljinn minnstur í fyrrum Sovétríkjum Austur-Evrópu – þ.á.m. Rússlandi

Rannsóknir Gallup á vegum Wellcome Global Monitor árið 2018 sýndu, að fólk í Austur-Evrópu og fyrrverandi Sovétríkjum voru meðal þeirra, sem minnst töldu bóluefni vera örugg almennt séð. Fólk á þessum svæðum var einnig minnst líklegt til að vilja bólusetja sig gegn covid-19 árið 2020 – að meðaltali sögðust 43% láta bólusetja sig í ríkjum Samveldis sjálfstæðra ríkja og 46% í löndum utan ESB í Evrópu.

Sem dæmi má nefna að innan við helmingur Rússa, sem höfðu heyrt um bóluefni árið 2018 (45%), voru sammála um að það væri öruggt en 24% voru því ósammála (sem er eitt hæsta hlutfall í heimi). Skömmu áður en ríkisstjórn þeirra kom með eigið kórónaveirubóluefni, Spútnik V, sögðust 37% Rússa taka kórónaveirubóluefni ef það yrði boðið en 61% sögðust ekki gera það.


Meirihlutinn í 20 löndum þ.á.m. Rússlandi myndu neita að bólusetja sig

Næstum þrír af hverjum 10 (29%) í öllum heiminum sögðust ekki samþykkja bólusetningu og önnur 3% sögðust ekki vita eða neituðu að svara. Samanlagt þýðir það, að um 1,3 milljarðar fullorðinna voru ekki tilbúin að láta bólusetja sig, þegar könnunin var gerð.

Tilraunir að bólusetja fólk mæta greinilega mun sterkari andstöðu í sumum löndum en öðrum. Meirihluti fullorðinna í næstum tveimur tugum landa og svæða segist ekki vilja láta bólusetja sig. Það kemur ekki á óvart að listinn nær til Rússlands og landa í Austur-Evrópu þar sem fáir sögðust ætla að láta bólusetja sig. Tveir þriðju hlutar íbúanna í Afríkuríkjunum Gabon og Kamerún suður af Sahara myndu ekki láta bólusetja sig, þótt boðið væri upp á það. Meirihluti íbúanna í Senegal, Tógó og Namibíu segjast einnig ekki vilja bólusetningu.


Horft fram á við

Vegna þess að kannanirnar voru gerðar allt árið 2020 voru lönd á ýmsum stigum heimsfaraldursins en í flestum löndum átti enn eftir að koma bóluefnum til almennings. Það er eðlilegt að búast við, að viðhorf geti breyst síðan, þar sem fleiri hafa fengið bóluefni.

Til dæmis hafa skoðanir gagnvart bóluefnum í Bandaríkjunum breyst síðastliðið ár. Tæpur meirihluti Bandaríkjamanna (53%) sagðist ætla að láta bólusetja sig í könnunum í september og október 2020. En nokkrum mánuðum eftir að bólusetningar hófust í mars 2021, – þá sögðust 74% Bandaríkjamanna bólusetja sig ef það væri að kostnaðarlausu og 26% sögðu að þeir myndu ekki gera það.

Jafnvel þó viðhorf fólks annars staðar hafi færst eins og það hefur gert í Bandaríkjunum, veita þessi gögn samt einhverja vísbendingu um það viðnám sem löndin standa frammi fyrir hjá almenningi á meðan bólusetning stendur yfir.

Lista yfir löndin má hlaða niður hér


Nóbelsverðlaunahafinn Luc Montagnier fullyrðir að bóluefnin skapa sjálf ný afbrigði veirunnar

dr-luc-montaginer
Bóluefnin skapa sjálf ný afbrigði veirunnar

Luc Montagnier fékk nóbelsverðlaunin 2008 í eðlisfræði/læknisfræði ásamt félögum sínum Francoise Barré-Sinoussi og Harald zur Hausen vegna uppgötvana í sambandi við HIV-veiruna. Hann sagði eftir skýrslu indverskra og kínverskra vísindamanna sem skilgreindu veiruna frá Kína, að veiran væri gerð af manna völdum og að það góða við málið væri að náttúran myndi hafna henni svo hún myndi smám saman fjara út. En margir myndu því miður deyja. 

Núna rannsakar Montagnier fólk sem veikist í Covid-19 EFTIR að hafa verið bólusett að fullu og tilskilinn tími liðinn. Hann er skýr í niðurstöðum sínum og segist bráðum birta þær opinberlega. Hér að neðan er viðtal við hann og var hluti þess spilaður upp í Útvarpi Sögu. Það hlýtur að teljast meiri háttar fréttaslys ef enginn annar fjölmiðill segir frá rannsóknum Luc Montanier.

Fjöldabólusetningarnar eru gríðarleg vísindaleg og læknisfræðileg mistök

Prófessor Montagnier vísar til bólusetninga vegna kórónaveirunnar og segir þær vera óviðundandi mistök:

„Fjöldabólusetningar eru vísindaleg mistök og læknisfræðileg mistök. Þetta eru óviðunandi mistök. Sögubækurnar munu sýna það, vegna þess að það er bólusetningin sem skapar nýju afbrigðin.“

 

„Það eru mótefni, búin til af bóluefninu, sem neyða veiruna til að finna aðra lausn eða deyja. Þarna skapast ný afbrigði veirunnar. Afbrigðin eru framleiðsla og árangur bólusetningarinnar.“

Prófessor Montagnier segir þróunina gerast í hverju landi þar sem „ferli bólusetningar er fylgt eftir með ferli dauðsfalla.“ Montaigner vinnur núna að rannsóknum á fólki sem smitast hefur av Covid-19 eftir að hafa verið bólusett.

„Ég mun sýna þér, að bólusetningin býr til þau afbrigði, sem verða ónæm fyrir bóluefninu.“

Hlustið á prófessor Luc Montagnier skýra mál sitt í myndbandinu hér að neðan.

Ef myndbandið sést ekki, þá má sjá það hér.

Luc Montagnier staðfesti í fyrra rannsókn indverskra vísindamanna sem uppgötvuðu, að kórónuveiran var hönnuð á tilraunastofu með innsettu alnæmi. Rannsóknin komst að þeirri niðurstöðu, að ólíklegt væri, að veira gæti öðlast svo einstaka tengingu á eðlilegan hátt á svo stuttum tíma.

Þegar GreatGameIndia birti niðurstöður rannsóknarinnar vakti það mikla gagnrýni sérfræðinga á samfélagsmiðlum sem leiddi til að skýrsluhöfundar drógu skýrsluna til baka. Skýrslan er til á heimasíðu Úvarps Sögu sem tókst að hlaða hana niður áður en hún var tekin af netinu.

Önnur Covid-bylgjan í Indlandi kom í kjölfar fjöldabólusetningar og sjá má á grafinu að ofan hvernig smitið fylgir bólusetningunum.

 


mbl.is Einn af hverjum tíu þúsund bólusettum smituðust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EES-skýrslan gengur út frá því að Ísland sé aumingjaland sem ekki er hægt að stjórna með eigin lögum

eu_flagga-732x412-1 kopiaBjörn Bjarnason ræðst gegn öllum þeim sem dirfast að anda á EES-skýrsluna. Telur hann allt annað en sjónarmið skýrslunnar um stjórnskipun Íslands vera ótrúlega blekkingu, lygar og fals. Öll önnur afstaða til málsins er ómálefnaleg, því hann hefur sjálfskipaðan einkarétt að boða og túlka hina einu rétta afstöðu í málinu og er sá einkaréttur hafinn yfir eðlilega gagnrýni og málefnalega umræðu. 

Sjálfur fer Björn með staðlausa stafi og ósannindi, þegar hann reynir að telja fólki trú um að viðhorf skýrsluhöfunda stangist ekki á við grundvöll lýðveldisins Íslands. 

Í EES-skýrslunni segir:

„Stæðu Íslendingar utan lagasamstarfsins á EES-vettvangi og ætluðu að starfa í krafti heimasmíðaðra reglna yrði mikil hætta á einangrun, stöðnun og afturför í þjóðlífinu öllu. Á það einkum við á sviði efnahags- og atvinnulífs og þeim sviðum þar sem tæknivæðing hefur haft hvað mest áhrif." (Pkt. 7, bls 22)

Að Ísland hefur náð þeirri stöðu sem við höfum í dag er fyrst og fremst að þakka heimasmíðuðum reglum eins og stjórnarskránni og alvöru stjórnmálamönnum eins og t.d. þeim Geir Hallgrímssyni, Davíð Oddssyni og Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni sem leiddu landhelgisbaráttu Íslendinga og baráttu gegn fjármálaglæpamönnum sem tóku þjóðina í gíslingu til þess að féflétta landsmenn með stuðningi ESB-sinna. Vegna heimasmíðaðra laga tókst Íslendingum að ná árangri í þessum málum þvert gegn valdi og vilja Evrópusambandssinna.

Ofangreind fullyrðing EES-skýrslunnar sannar, að aðstandendur hennar eru ofurseldir hugmyndafræði ESB um alríki álfunnar og að Ísland hafi ekki upp á neitt að bjóða sem sjálfstæð þjóð. Þetta er boðskapur búrókratanna sem selt hafa sál sína til Brussel og sami hræðsluáróður og Íslendingar mættu í umræðunni um ESB-umsóknina og í átökunum um Icesave sbr. Kúba norðursins.

En slíkar hótanir einar og sér duga ekki að mati Björns Bjarnasonar.

Hann vill taka upp lög ESB inn í stjórnarskrána svo ESB geti endanlega tekið öll völd á Íslandi:

„Binda verður enda á stjórnlagaþrætur vegna EES-aðildarinnar, annaðhvort með því að viðurkenna að hún hafi áunnið sér stjórnlagasess eins og aðrar óskráðar stjórnlagareglur eða með því að skrá ákvæði um aðildina í stjórnarskrána." (Pkt.2, bls 22)

Björn Bjarnason hefur verið iðinn að klína því á Miðflokkinn, að Miðflokksmenn hafi tekið þingið í gíslingu með því að nýta málfrelsisréttindi sín í þingsköpum til að andmæla 3. orkupakkanum. Sjálfur vill Björn Bjarnason að landinu sé stjórnað með þingsályktunum í stað lagasetninga þvert á stjórnskipunarlög Íslands og til að fullkomna þá vegferð vill hann breyta stjórnarskrá Íslands svo EES-löggjöfin verði æðri íslenskum lögum. 

Björn Bjarnason hefur gleymt öllu sem íslenska stjórnarskráin stendur fyrir. Með ályktanastjórnun þeirri sem Samfylkingarmenn innleiddu með ESB-umsókn sinni er framkvæmdavaldið að svína á löggjafarvaldinu og hefur tekið löggjafann í gíslingu þvert á fyrirmæli stjórnarskrárinnar. Þeirri vegferð heldur Sjálfstæðisflokkurinn áfram með núverandi flokksforystu og er stefna flokksins í dag í engu frábrugðin afritunarstefnu ESB-sinna á stefnu ríkisstjórna vinstrimanna á Norðurlöndum eins og í Svíþjóð. 

Sú stefna sem Björn Bjarnason áður stóð fyrir „Með lögum skal land byggja" hefur hann kastað fyrir róða.

Í staðinn er komin stefna Samfylkingarinnar: „Með þingsályktunum skal fullveldi eyða."


Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Miðflokkssmenn bráðum þeir einu á Íslandi sem halda loforð sitt við stjórnarskrána

midflokkurinn_skjagrunnar_nordurl_logo_hdÞað er afskaplega gott að ekki er endanlega búið að rífa stjórnarskrána okkar á hol með útúrsnúningi og kjaftaskahætti eins og virðist aðalmerki stjórnmálanna í dag. Miðflokksmenn með forsætisráðherraefni næstu ríkisstjórnar Íslands við stýrið, Sigmund Davíð Gunnlaugsson, eru eins og síðasti móhíkaninn, einu stjórnmálamennirnir sem enn standa við gefið heit að fylgja stjórnarskrá lýðveldisins. Þeir tveir eftirlifandi flokkar frá stofnun Lýðveldisins, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur eru ekki svipur hjá sjón miðað við upprunalegu stefnu og störf.

Framsóknarflokkurinn er rifinn á hol vegna uppgjafar við að fylgja stjórnarskránni og splundrað af ríkisembættissjúkum einstaklingum sem selja allt fyrir smáfé fái þeir bara sínar 10 mínútur í fjölmiðlum. Restinni af staðföstum bændum hent úr túni og tjöslað bak við hóla í Miðflokki Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Þar hefur þó safnast saman kjarni bændastéttarinnar sem nú verða enn á ný í aldanna skaut að rétta af skútuna sem farin er að mígleka og taka inn á sig sjó svo landsmenn súpa hveljur.

Sjálfstæðisflokkinn er varla lengur hægt að tala um sem neinn alvöru stjórnmálaflokk. Eftir Davíð Oddsson hefur flokkurinn gjörsamlega gírað úr, hent öllum áttavitum og öðrum vitum og ver með klóm og kjafti kjör ríkisstarfsmanna í ráðuneytum og í stjórnmálabákninu. Gömlu vegvísarnir sjálfstæði þjóðar, stétt með stétt og stjórnarskráin rifin niður og hent á hauga fyrir ályktunarstjórnun á strengjum ESB að hætti hirðfífla Samfylkingarinnar í stað laga að hætti stjórnarskrárinnar. Alvöru sjálfstæðismönnum er kastað fyrir borð og látnir dúsa í móum og hólum. Trúði utannríkismála dugir að ropa í samkvæmum ESB og fyrrum kempa gegn ESB fangi nýja tíðarandans með tillögum um að ESB taki yfir stjórnarskrá lýðveldisins. Fullveldið, stjórnarkrána og þjóðina mega hrægammarnir éta, svo lengi sem hagsmunasaveitin fær sitt enda lafir hálfstæðisflokkurinn í 20% sem ekki skarar helming í glæsidaga Davíðs Oddssonar. 

Samt eru til menn innan Sjálfstæðisflokksins á rangli í frumskógi reglugerðafargansins, uppskafningsins, alræði flokkseigendafélagsins, sem vilja af heiðarleika fara eftir stjórnarskránni en fá enga áheyrn lengur hjá flokknum. 

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Miðflokksmenn eru helsta von Íslands til að standa vörð um hagsmuni landsins gegn alþjóðlegum og innlendum samsærum. Miðflokkurinn ber stjórnarskrá lýðveldisins í hjarta sér og stendur við gefin heit. En fleiri þurfa að koma að verkinu svo hægt verði að bjarga stjórnarskránni áður en kerfiskarlar og kerlingar bryðja hana endanlega í spað svo ESB geti tekið okkur í nefið. 

Það er heilshugar hægt að taka undir flest það sem Sigmundur Davíð skrifar í góðri grein sinni í Morgunblaði dagsins og sérstaklega lokaorð Sigmundar:

„Ég hvet því borg­ara­lega sinnað fólk á Íslandi til að staldra við, verja grunn­gildi sam­fé­lags­ins og frjáls­lyndi, þá hug­mynd að skoðana­skipti séu af hinu góða. Ann­ars höld­um við áfram niður braut raun­veru­legra öfga.

Lát­um svo ekki blekkj­ast af því þegar ný­ald­ar­póli­tík­us­ar mæta fyr­ir kosn­ing­ar og segj­ast ætla að gera eitt­hvað allt annað en þeir hafa verið að gera. Af ávöxt­un­um skulið þér þekkja þá."

 


Markmið og leiðir Kommúnistaflokks Kína að yfirráðum heims og nýrri heimsskipan

XiGuterres_Kínverjar ætla að sigra höfðuóvin sinn Bandaríkjamenn með því að sjá til þess, að Bandaríkin hafi ætíð a.m.k. fjóra óvini sem rugla þá svo mikið í ríminu að þeir sjá ekki aðalóvin sinn Kommúnistaflokk Kína sem eflist að styrkleika á meðan, þar til Kína getur sigrað Bandaríkin.

Óvinirnir fjórir sem Kína óskar Bandaríkjamönnum eru:

  • Hryðjuverkastarfsemi
  • Rússar 
  • Braselía (Kínverjum misstókst þar svo þeir leita að nýjum aðila) 
  • Skulda- og efnahagskreppa

Að auki notfæra Kínverjar sér alþjóða deilur sem draga Bandaríkjamenn í stríð líkt og Írak og Afghanistan.

Séð í þessu ljósi þjónar það markmiðum Kommúnistaflokks Kína, að Biden bolast út í Rússa. Kínaveiran, hvort sem hún er hluti af hryðjuverkastarfseminni eða ekki – er notuð til að koma á upplausn og efnahagskreppu. Breyta á Bandaríkjaþingi í annað þing kínverskrar alþýðu og árið 2049 þegar kínverska Alþýðulýðveldið verður 100 ára á Kína að vera óskorað sósíalískt alheimsveldi jarðar eftir að hafa unnið sigur á Bandaríkjamönnum.

Sjá nánar:

Útvarp Saga 

What China really wants - a New World Order

CCP plan to defeat US


Öll erum við Jónas ....nema helst Össur og Dagur að ógleymdum Ólafi.

iuÞetta er aðeins byrjunin á árásum Kommúnistaflokks Kína á Ísland og er einræðisflokkurinn farinn að sýna sitt rétta andlit. Það er Jónasi Haraldssyni til sóma að vera fyrsti Íslendingurinn, sem fær þessa sérstöku heiðursnafnbót frá kínverskum kommúnistum. Óska ég Jónasi til hamingju með titilinn sem honum hlotnaðist m.a. vegna afhjúpun umhverfissóðaskapar embættismanna kínverska alþýðulýðveldisins.

Kínverjarnir ráðast að sjálfsögðu ekki gegn hagsmunaaðilum sínum, hvorki í ríkisstjórn né í borgarstjórn. Þar eru efnhagslegu hagsmunirnir of sterkir. Borgarlínubræðurnir Dagur B. Eggertsson og Össur Skarphéðinsson að ekki sé minnst á Belti og Brautryðjandann Ólaf Ragnar Grímsson fá allir heiðursmedalíu Maó Tsetung fyrir vel unnin störf fyrir kínverska alþýðulýðveldið. Vinir og sérstakir varðmenn útrásarvíkinga, þau Jóhanna og Steingrímur eiga einnig inni hjá Kommúnistaflokki Kína en ekkert hjá alþýðunni á Íslandi, þótt Steingrími leyfist að sýna jakkafötin á Alþingi jafnvel á meðan hann sefur. Bjarni bankamær telur peningana í Asíubankanum og Guðlaugur Þór er með rjóðar kinnar í kvenréttindamálum.

Kommúnistar brjóta prentvélar lýðræðis í Hong Kong og sækja hart að Jónasi Haraldssyni á Íslandi.

Í hans sporum erum við Íslendingar í dag öllsömul Jónas.

 


mbl.is Íslendingur settur á svartan lista Kínverja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Yfirlýsing Donald J. Trump: Biden setur Kína í fyrsta sætið

Ég skrifa reglulega fréttir á heimasíðu Útvarps Sögu svo minni tími hefur farið í skrifin hér, þótt af nógu sé að taka eins og t.d. hrikalegri utanríkisstefnu ríkisstjórnarinnar með utanríkisráðherra með allt niður um sig. Undanlægjuhátturinn nær lengra en til Evrópusambandsins, hið mikla ríki Kína er að gleypa heiminn. Þar eru forystumenn Sjálfstæðisflokksins rauðir í framan með sultudropa á fingrunum vegna þáttöku í einu mesta þöggunarsamsæri nútímans til verndar kínverska kommúnistaflokknum og boðskap kommúnismans út um heiminn. 

Donald Trump 45. forseti Bandaríkjanna sér þetta afar skýrt og lýsir því í nýjustu yfirlýsingu sinni þann 31. mars s.l. Yfirlýsingin birtist hér í lausri þýðingu og enskur texti að neðan. 

trumpsigillstor

Róttæk áætlun Joe Biden um að hrinda í framkvæmd stærstu skattahækkunum í sögu Bandaríkjanna er stórfelld eftirgjöf til Kína og margra annarra landa, sem mun senda þúsundir verksmiðja, milljónir starfa og trilljón dollara til þessara samkeppnisþjóða. Biden-áætlunin er stórt högg gegn vinnandi Bandaríkjamönnum og mun snarminnka framleiðslu Bandaríkjanna og veita útrásaraðilum og erlendum, risastórum fjölþjóðlegum fyrirtækjum sérstök skattaleg forréttindi.

Biden lofaði að „byggja betur aftur“ – en landið, sem hann byggir sérstaklega upp er Kína ásamt öðrum heimshlutum. Undir stjórn Biden eru Bandaríkin enn á ný að tapa efnahagsstríðinu við Kína – og margra billjóna dala skattahækkunarstefna Bidens er stefna algjörrar efnahagslegrar uppgjafar. Að fórna vel launuðum bandarískum störfum er það síðasta, sem landar okkar þurfa á að halda, þegar landið okkar er að jafna sig eftir heimsfaraldurinn. 

Stefna Biden mun klyfja herðar bandaríska verkamannsins með hæstu skattaálögum á fyrirtæki hins þróaða heims. Þú munt borga MEIRA í skatta, ef þú skapar störf í Bandaríkjunum og ræður bandaríska verkamenn til vinnu samkvæmt stefnu Biden – en borgar MINNA, ef þú lokar verksmiðjum þínum í Ohio og Michigan, rekur bandaríska starfsmenn og flytur alla framleiðsluna til Peking og Shanghai. Þetta er nákvæmlega ÞVERÖFUGT við að setja Bandaríkin í fyrsta sætið, þetta er að setja Bandaríkin í AFTASTA SÆTIÐ! Fyrirtæki, sem senda störf Bandaríkjamanna til Kína, ættu ekki að fá umbun með skattafrumvarpi Joe Biden, þeim ætti að refsa, svo þau haldi störfunum í Bandaríkjunum, þar sem þau eiga heima.

Þessi löggjöf er eitt stærsta sjálfskapaða efnahagssár sögunnar. Ef þessu skrímsli verður hleypt í gegn munu fleiri Bandaríkjamenn verða atvinnulausir, fleiri fjölskyldur rúnar að skinni, fleiri verksmiðjur yfirgefnar, fleiri iðngreinar laðar niður og fleiri verslunargötur loka – alveg eins og ástandið var áður en ég tók við forsetaembættinu fyrir 4 árum. Undir minni stjórn var met slegið í lágmarki atvinnuleysis með 160 milljónum nýjum störfum.

Þessar skattahækkanir eru dæmigerð alþjóðasvik Joe Bidens og vina hans: lobbýistarnir eiga að sigra, sérhagsmunirnir eiga að sigra, Kína á að sigra, stjórnmálamenn í Washington og embættismenn ríkisstjórnarinnar eiga að sigra en hart stritandi bandarískar fjölskyldur eiga að tapa.

Grimmdarleg og hjartalaus árás Joe Biden á bandaríska drauminn má aldrei verða að alríkislögum. Rétt eins og suður landamæri okkar breyttust úr því besta yfir í það versta og eru nú í molum, þá verður efnahagur okkar lagður í rúst!"

trumpstatement1

trumpstatement2

trumpstatement3

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband