Miðflokkurinn eini sanni fullveldisflokkurinn í boði í næstu Alþingiskosningum

Kopia av SigmundurdavidÞað var sérlega ánægjulegt að hlýða á ávarp Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns Miðflokksins við opnun Landsþings Miðflokksins í dag. Sigmundur er sjóaður baráttumaður eftir Icesave, þegar fjármálasvindlarar með tilstuðlan ESB ætluðu að þrælbinda Íslendinga til að greiða fyrir stolið fé útrásarvíkinga. 

Skýrt er á mjög svo greinargóðri skilgreiningu formanns Miðflokksins, að enginn annar stjórnmálaflokkur á Íslandi hefur burði og þor til að vinna á grundvelli stjórnarskrár lýðveldisins sem samþykkt var á Þingvöllum 17. júní 1944. Lýsti Sigmundur því, hvernig Miðflokknum tókst að stöðva afnám fullveldis Íslendinga með lúalegri tillögu að breya stjórnarskrárinni. Á borðinu núna liggur tillaga Sjálfstæðisflokksins skv. EES-skýrslunni um að gera vald ESB æðra ákvörðunum lýðveldisins. Sjálfstæðisflokkurinn er alfarið horfinn frá þjóðlegum grundvelli í stefnu sinni vegna höfðingjasleikjuháttar aðallega við embættismenn ESB og Kínverska Kommúnistaflokksins og hefur þegar vélað orku Íslands inn í net hákanna í ESB.

Ég mun skrifa frekar um ræðu Sigmundar síðar, þegar ég hef kynnt mér innihaldið nánar, en ljóst er að vilji Ísland komast út úr átökum dagsins, þar sem fjöregg þjóðarinnar er enn á ný sett í vogarskálina á móti þúsundfalt sterkari aðila, þá er Sigmundur Davíð eini maðurinn sem getur staðið upp í hárinu á alþjóðlegu valdi og ofbeldi, innra svikulu eiginhagsmunakerfi ókjörinna embættismanna og sífelldum svikum vinstri manna sem neita að vinna að lögum og reglum og svíkja bæði lögreglu og landsmenn. 

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Miðflokkurinn eru vonarstjarna Íslands til að þjóðin geti haldið áfram á þeirri braut sem lagt var upp í með frelsisbaráttu Jóns Sigurðssonar og úrkynjaðir stjórnmálaflokkar hafa enga getu til að leiða.

Það verður gæfuspor fyrir Ísland, að fá Sigmund Davíð Gunnlaugsson aftur í forsætisráðherrastólinn svo hægt verði að fara að nýta okkar sameiginlegu krafta í að leysa þau stóru vandamálin sem fram undan eru.

 


mbl.is Beint: Landsþing Miðflokksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Algjörlega sammála.

Sigurður Kristján Hjaltested, 5.6.2021 kl. 18:26

2 Smámynd: Loncexter

Sammála síðasta ræðumanni og þeim sem á eftir koma.

Loncexter, 5.6.2021 kl. 18:32

3 Smámynd: Benedikt V. Warén

Sigmundur.

Þorir, getur, vill.

Benedikt V. Warén, 5.6.2021 kl. 19:53

4 Smámynd: Gústaf Adolf Skúlason

Þakka innlit góðu menn og góðar undirtektirsmile

 

Gústaf Adolf Skúlason, 5.6.2021 kl. 21:08

5 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Sjálfstæðisflokkurinn er heillum horfinn. Eini flokkurinn sem berst fyrir og stendur með sjálfstæði íslensku þjóðarinnar er Miðflokkurinn með SDG í forystu.

Tómas Ibsen Halldórsson, 5.6.2021 kl. 22:45

6 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Enda einvalalið með honum ég fylgdist vel með þegar þinglið Miðflokksins lagði nótt við dag að koma í veg fyrir að þriðji orku pakkinn yrði samþykktur.Það ætti að róa þá sem enn eru argir út í Gunnar Braga,að hann hefur lagt þingmennsku á hilluna. Kjósum Miðflokkinn! Unnum þjóð okkar þess sem hún á skilið þann hæfasta í forsæti skarpan og umfram allt trúr íslensku fullveldi. Með góðri kveðju Gústaf Adolf og gestir.

Helga Kristjánsdóttir, 6.6.2021 kl. 01:47

7 Smámynd: Gústaf Adolf Skúlason

Sæl Tómas og Helga og þakka góðar undirtektir.

Gústaf Adolf Skúlason, 6.6.2021 kl. 07:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband