Bloggfærslur mánaðarins, september 2017

Framsóknarflokkurinn myllusteinn um háls Sigurðar Inga Jóhannssonar

dreamstime_xs_38559868Flutningur Framsóknarmanna yfir í Miðflokk Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar þýðir að Framsóknarflokkurinn verður Miðflokkurinn. 

Eftir situr Sigurður Ingi Jóhannesson með nafn og númer aldagamallar hreyfingar í gíslingu.

Sigurður Ingi hefur mátað sjálfan sig út í horn framhjá lifandi stjórnmálum á Íslandi og á á hættu að komast ekki á þing. Fram að kosningu fær Miðflokkurinn tíma, þótt lítill sé, til að koma stefnumálum sínum á framfæri og heyja kosningabaráttu.

Miðflokkurinn er Framsóknarflokkurinn, þótt undir nýju nafni sé. Miðflokkurinn er sannur arftaki aldagammallar stjórnmálahreyfingar og stoltur fánaberi framsóknarstefnunnar.   

Miðflokkurinn er í sókn með djarfa stefnu í efnahagsmálum, atvinnumálum og uppbyggingu innviða landsins á meðan nafnið í fjötrum verður grafsteinn þeirra sem tóku það í gíslingu.

Framtíðarbein Sigurðar Inga er orðið að myllusteini um háls hans. Honum tókst í augnablik að baða sig í ljóma starfandi forsætisráðherra án þess að hafa unnið nokkuð fyrir embættinu. Og þingstóllinn er ekki lengur innan seilingar.

Kjósendur eiga næsta leik.

 


mbl.is Heil stjórn sagði sig úr Framsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Makleg málagjöld Panamapúkans

IMG_0576Fjósapúki nútímans er sannkallaður Panamapúki sem þandist út í takt við hverja lygi sem sögð var um fyrrverandi formann Framsóknarflokksins og þáv. forsætisráðherra Íslands, Sigmund Davíð Gunnlaugsson. Sterk alþjóðleg öfl vildu forsætisráðherrann feigan fyrir að sýna fjármálafurstum hvar skápurinn átti að standa. 

Þjóðin henti hryðjuverkaskáp Icesave á haugana og kvaddi allar raddir í kútinn sem espuðu gegn stjórnarskrá lýðveldisins. 

Fyrir þetta tvennt var undirbúin alþjóðaárás í nafni Panama á lýðræðislega kjörinn forsætisráðherra okkar litlu þjóðar. Án sannana en í krafti valds yfir ríkisfjölmiðlum var forsætisráðherrann okkar tældur í gildru og settur í gapastokk á Lækjartorgi Vesturlanda og hafður þar opinberlega að háði og spé um allan heim. 

Íslenska þjóðin skal muna þennan ljóta leik gegn rétt kjörnum embættismanni sem vann fyrir sjálfstæði og ákvörðunarrétti þjóðarinnar. Stöðvaði hann yfirtöku fjármálasvindlara sem ætluðu sér að græða á því að hneppa þjóðina í skuldafjötra margar kynslóðir fram í tímann. 

Panamapúki Framsóknarflokksins er búinn að vera. Straumur framsóknarmanna með foringja sínum mun skilja púkann eftir í sárum og óvíst að hann komist á þing. 

Það verða makleg málagjöld Panamapúkans.


mbl.is Formaður Framsóknarkvenna hættir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfstæðismenn skilja stjórnarskrána

Hreint ótrúlegt að horfa upp á brölt vinstri grænna gegn stjórnarskránni okkar sem kveður á um sérkosningar milli tveggja þinga fyrir breytingar á stjórnarskránni. 

Katrín Jakobsdóttir hefur stórskaðlega stefnu fyrir land og þjóð. Hún vill gjaldfella lýðveldið með því að afnema stjórnarskrárbundna kosningu þegar um breytingar á stjórnarskránni er að ræða. Vill hún að einfaldur meirihluti þingmanna og 25% atkvæðisbærra manna breyti stjórnarskránni. Sjálfstæðisflokkurinn skal hafa allan heiður af því að spyrna staðföstum fótum gegn slíkri aðför og árás á lýðræði okkar og lýðveldi. Katrín Jakobsdóttir telur stjórnarskrána nothæfa til hrossakaupa á Alþingi! Kona með slíka afstöðu á ekkert erindi inn á þing.

Lítil er virðing vinstri grænna fyrir lýðveldinu Íslandi. Þeir vilja afnema stjórnarskrárbundin réttindi landsmanna í stjórnskipun landsins.

c25-1Lítil er virðing vinstri grænna fyrir lýðræðinu á Íslandi. Þeir vilja afnema völd landsmanna í stjórnmálum.

Lítil er virðing vinstri grænna fyrir þingræðinu eða yfirlýst hollusta þeirra við stjórnarskrá lýðveldisins. Þeir nota Alþingi til að rífa niður lýðveldið.

Varist vinstri slysin. 

 


mbl.is Sjálfstæðismenn þeir einu sem voru á móti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framsóknarflokkurinn fer úr Framsóknarflokknum - eftir verður nafnið tómt

sigmundur_davidÁkvörðun Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar að leita nýrra slóða hefur ekki farið fram hjá neinum. Ákvörðun hans er eðlileg og skiljanleg, þegar valdhafar flokksins sýna meiri áhuga á því að bola honum burtu en að vinna að stefnu flokksins. 

Nú rignir uppsögnum flokksmanna úr Framsóknarflokknum á eftir Sigmundi í þvílíkum mæli að segja má að sjálfur Framsóknarflokkurinn sé að fara úr Framsóknarflokknum. Eftir verður umgjörðin tóm, nafn og merki annars núlifandi flokks sem stóð að stofnun lýðveldisins.

Ef vel tekst til hjá Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni og stuðningsmönnum hans gæti framtíðin orðið sú að umbúðirnar kæmu á eftir innihaldinu og Framsóknarflokkurinn yrði aftur að sjálfum sér eftir nokkur ár.

Slík þróun væri heillvænleg, því þá verða atburðir dagsins að smá sviga í sögu Framsóknarflokksins og hann yrði til áfram eins og ekkert hefði í skorist.


mbl.is Sigmundur Davíð hættir í Framsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verjum grundvöll lýðræðis - stöndum vörð um lýðveldið

Björn Bjarnason skrifar á bloggi sínu sunnudag 24. september, að "þjóðir verða að standa á verði vilji þær halda í opna, frjálslynda, lýðræðislega stjórnarhætti. Unnt er að grafa undan þeim á margan hátt". 

Rekur hann í stuttu máli stöðu alþjóðamála í skiptingu þjóða í einræðisríki og þeirra sem aðhyllast lýðræði og opna, lýðræðislega stjórnarhætti. Bendir Björn á og tekur sem dæmi um hrörnun lýðræðislegra stjórnarhátta á Íslandi, þegar t.d. fréttastofa RÚV gerir tortryggilegt, að dómsmálaráðherra bendi fréttamönnum á úrskurðarnefnd um upplýsingar um uppreist æru. Í raun sé afstaða RÚV "krafa um að hafa lögmætar stofnanir að engu og hundsa góða stjórnslýsluhætti að geðþótta."

Skärmavbild 2017-09-23 kl. 10.55.21Björn Bjarnason hefur lög að mæla. Vanvirðing við rétt vinnubrögð lýðræðislegra kjörinna embættismanna er forkastanleg og á ekkert skylt við opna, heiðarlega umræðu. RÚV er löngu orðið að reginhneyksli langt út fyrir landsteinana og löngu tímabært að loka á þau sundrungaröfl sem þar hafa hreiðrað um sig og vanvirða vilja þjóðarinnar.

Stjórnmálamenn þurfa starfsfrið til að vinna störf sín. Líta ber á þá sem ekki vilja veita þjóðinni þann sanngjarna möguleika sem andsnúna lýðveldinu. 

Fyrir slík öfl skipta sameiginleg gildi okkar eða saga og fórnir fyrri kynslóða engu máli. Kosningarnar núna snúast fyrst og fremst um þessi gildi.

Viljum við farga lýðræðinu og í kjölfar þess sjálfu lýðveldinu?

Eða munum við verja þann grundvöll sem forfeður okkar og mæður færðu okkur.

Verjum lýðveldið Ísland.


Atkvæði á dreif er tákn sundurlyndis. Ísland þarfnast staðfestu.

c8pby22uÞað er nú komið á daginn að ráðherrar í ríkisstjórn mega ræða trúnaðarmál sín á milli. Hvílíkur skaði að sprengja ríkisstjórn fyrir þá augljósu staðreynd.

Öllum er fyrir bestu að Björt framtíð hverfi til sögunnar fyrir tilraun til að koma í veg fyrir bjarta framtíð Íslands. Sölumennska vinstriflokkanna minnir á lyfsala sem reynir að selja litað vatn sem meðal við flensu og lungnabólgu. Þeir sem láta plata sig og borga fyrir brúsann verða enn veikari. 

Allt frá stórmennskutíð "fyrstu og einu sönnu vinstri stjórnarinnar" - þeirra Jóhönnu og Steingríms, hafa vinstri menn beitt gengdarlausum persónuárásum og níði til að ná sér niðri á stjórnmálaandstæðingum og bola lýðræðislega rétt kjörnum embættismönnum þjóðarinnar úr embætti. Eigin stjórnmálastefna á ekkert pláss en útbreiðsla rógburðar og níðs um menn og þjóð ástunduð. Ímynd vinstri er hrærigrautur eilífra kennitalna og nýrra sölunafna til að halda blekkingarleiknum áfram.

Það er tími til kominn að alvöru stjórnmálamönnum verði gefinn vinnufriður til að stjórna landinu. Hann geta kjósendur skapað.

Einungis tveir flokkar hafa haft kjölfestu þjóðarinnar frá stofnun lýðveldisins: Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn. 

Atkvæði á þessa flokka eru ávísun á alvöru stjórnmál og stöðugleika, þar sem rétt kjörnir embættismenn þjóðarinnar fá frið til að stjórna landinu.

Dreifð atkvæði á vinstri flokka er ávísun á áframhaldandi Sturlungaöld.

Þjóðin þarf að endurnýja leiðina að grundvelli lýðveldisins sem reist var á Þingvöllum 1944.

 


mbl.is VG stærsti flokkurinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leiðir forseti Íslands uppreisn gegn Sjálfstæðisflokknum?

1024px-President_Gudni_Thorlacius_Johannesson_September_2016Í innsetningarræðu Alþingis sagði Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands "að skilgreina þurfi betur í stjórnarskrá völd og ábyrgð forseta Íslands". Vitnaði hann í nýleg mál, þar sem kynferðisafbrotamenn fengu uppreist æru og segir forsetinn lögin úrelt og heyra sögunni til. "Fólk í lýðræðissamfélagi á að láta í sér heyra þegar því er misboðið.....Við óbreytt ástand verður ekki við unað. Eftir óbreyttu verklagi verður ekki unnið."

Öll ræða forsetans fjallaði um nauðsyn þess að breyta stjórnarskrá lýðveldisins Íslands. Forsetinn er í bullandi Samfylkingarpólitík eftir ósigur vinstri manna í atlögu að stjórnarskránni. Gengu hlutirnir svo langt útfyrir lögboðinn ramma og þingræði allt, að samprófessor forsetans kallaði tillögur hins s.k. stjórnarráðs fyrir "frumvarp". 

Forsetinn hefur með tali sínu hvatt til verklags utanþingræðis, þótt hann segi annað. Að sjálfsögðu er allt notað í pólitískum tilgangi, núna að faðir formanns Sjálfstæðisflokksins mælti með uppreist æru fyrir kynferðisafbrotamann.

Veltur stjórnarskráin, þingræðið og landsframleiðslan á uppreist æru eins kynferðisafbrotamanns? Að sjálfsögðu ekki.

En framtíð Íslands veltur á því, hvort þingræði og lög gilda eða lögleysa vinstri æsingmanna sem attir eru óbeint áfram af forseta Íslands. 


mbl.is Bjarni í mjög erfiðri stöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góður boðskapur forsætisráðherra Íslands

OrBjarni-Ben-1ð forsætisráðherra eru öllum þörf. Þau taka saman reynslu Íslendinga af fjármálakreppunni 2008, þegar stærstu bankar landsins lögðust á hliðina. Kjarni málsins er - nákvæmlega eins og Bjarni Benediktsson segir í viðtali við Sky News, að græðgi leiðir til mistaka sem rangt er að skattgreiðendur greiði fyrir. 

Það vekur athygli langt út fyrir landssteinana, að Ísland með sérstakan saksóknara að vopni stakk bankasvindlurum í fangelsi. Ólafur Þór Hauksson lýsti því vel, að lögin gilda fyrir alla, háa sem lága.

Þessi íslenska stefna - að gera bankastjóra ábyrga gerða sinna - er að vinna sér hljóm út um heiminn. Og ekki vanþörf á, þegar litið er til allra þeirra byrða sem skattgreiðendur annars staðar hafa verið látnir taka á sig vegna óreiðuviðskipta fjárglæframanna. 

Ísland er brautryðjandi í mótun heilbrigðrar fjármálastefnu. Sífelldar fjármálakreppur benda til mikilla vankanta á kerfinu. Skýringin er ekki sú sem Sigurður Einarsson segir á hrokafullan hátt "Við brutum engin lög." Sagði Sigurður að lögum hafi verið breytt eftirá til að finna sökudólga til að friðþægja hefndarþrá landsmanna.

Miðað við þessi ummæli finnst manni fimm ár í fangelsi vera fimm sinnum of skammur tími fyrir þennan mann. Það er einmitt hér sem hnífurinn stendur í kúnni. Sigurður skilur eftir fleiri hundruða milljarða króna gat sem - ef hann hefði fengið að ráða - hefði verið velt yfir á herðar skattgreiðenda sem á engan hátt komu nálægt bankabrölti hans. 

Forsætisráðherrann mælir eins og góður víkingur, þegar hann segir að endurtekin mistök muni leiða til nýrrar fjármálakreppu. Vonandi mun landsfundur Sjálfstæðismanna taka einarða afstöðu með íslensku krónunni og móta heilbrigðari peningastefnu á grundvelli þessarar mikilvægu reynslu. 


mbl.is Það verður önnur bankakreppa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fellibylurinn TRUMP – Hvað gerðist?

Hvað gerðist?

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Í bókinni "Það sem gerðist" reynir Hillary Clinton að svara  spurningunni hvað gerðist? Lýsir Hillary Clinton hvernig henni leið á kosninganóttinni og leitar svara við því, hvers vegna hún sé svo fyrirlitin.

Bill Clinton gekk fram og tilbaka á kosninganóttinni og "tuggaði á ókveiktum vindli" skrifar Hillary Clinton.

RödinkominadmerÁ meðan atkvæðin streymdu inn lagði Hillary sig og þegar hún vaknaði var ástandið hryllilegt.

Viðtalið við Trump er "vafalaust eitt af merkilegustu augnablikum í lífi mínu" skrifar Hillary. Hún óskaði honum til hamingju með sigurinn og undraðist hversu eðlilegt samtalið var, þrátt fyrir að hún væri lömuð, "þetta var svo hryllilegt allt saman".

CNN komst yfir eintak bókarinnar fyrir útgáfuna og segir að bókin sé gegnumsýrð af fyrirlitningu á Donald Trump. Hillary kennir því um að margir hati sig fyrir að vera kona og hluta af tapinu kennir hún Bernie Sanders um.


AfsokundagsinsSkv. NBC News nýtur Hillary trausts einungis um 30% kjósenda. "Margir vilja að ég hverfi af braut" skrifar Hillary. "En ég er hér". Það óttast demókratar mest.

Skärmavbild 2017-09-09 kl. 17.56.58

 


Hvað er eiginlega að Þýzkalandi?

Robert Curry spyr hvað sé að Þýzkalandi í nýrri grein um Þjóðverja og þá áráttu þeirra að verða alltaf vandræðabarn Evrópu. Núna - ekki með því að senda unga menn í herbúningi til að leggja Evrópu undir sig, - heldur með því að nota yfirburða efnahagsstöðu sína til að fá unga múslímska menn til að flykkjast í miklum mæli yfir landamærin til Evrópu. Í seinni heimsstyrjöldinni skildu Þjóðverjar álfuna eftir í rúst - fyrst með sigri og síðar með ósigri. Í dag virðast Þjóðverjar ætla að eyðileggja Evrópu með yfirtöku annarra í stað eigin yfirtöku.

NietzscheFyrst Keisarinn, síðan Hitler og núna Angela Merkel. Aftur og enn en á mismunandi hátt hefur þýzki hrokinn fundið leiðir til að setja Evrópu á kné. Hvernig í ósköpunum erum við komin á þennan stað aftur?

Fortíð Þýzkalands sem óvinur Breta, Frakka og Bandaríkjamanna í tveimur mannskæðustu styrjöldum sögunnar varpar ljósi á mismunandi menningarþróun ríkjanna. Stjórnmálabyltingar upplýsinganna í Bretlandi, Bandaríkjunum og Frakklandi höfðu víðtæk áhrif á hugsunarhátt þeirra. Þýzkaland hafnaði upplýsingunni og fór í gagnstæða átt með rómantíkinni sem hafnaði upplýsingum staðreynda. 

Prófessor Isaiah Berlin við Oxford háskóla lýsir einkennum rómantísku stefnunnar:

"..almenn skynsemi og hófsemi voru langt frá hugmyndum þeirra...það var mikið sótt í tilfinningar...hafsjór af óskum eftir eilífðarlausnum...aðdáun á ofursnillingum, útlögum, hetjum, fagurfræði, sjálfseyðingarhvöt." 

Þráin eftir rómantísku hetjunni vakti ímynd Satans sem gerði uppreisn gegn himnum og lýsir vel Hitler. Hitler hrærði upp sært stolt Þjóðverja eftir ósigurinn í fyrstu heimsstyrjöldinni og leiddi Þýzkaland út í sjálfseyðingarferð sem endaði með eyðileggingu Þýzkalands og sjálfsmorði Hitlers. 

Einungis með því að skilja höfnun Þjóðverja á upplýsingunni sem önnur lönd fylgdu og eigin vegferð Þjóðverja í dýrkun ofurmenna og sjálseyðingarhvöt er hægt að skilja þann mikla menningarmun sem aðgreinir Þjóðverja frá öðrum. 

Ef vestræn ríki vilja komast hjá endurtekinni eyðileggingu og hörmungum síðustu aldar, færi vel að byggja áfram á uplýsingunni og ýta burtu hugsunarhætti þýzkra rómantískra einstaklinga eins og Merkel, sem heldur í hugmyndalegar hefðir sem geta ekki sýnt neinn sögulegan jákvæðan árangur.


mbl.is Merkel klettur í hafsjó vitleysinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband