Margir sænskir stjórnmálamenn hafa blóð á höndum sér

BjörnRanelidMorðið á lögreglunni í Gautaborg hefur rifið djúpt sár í sænsku þjóðarsálina og ljóst að þolinmæðismörk almennings hafa verið brotin. Mörgum Svíum finnst hlutirnir vera á þann hátt, sem Björn Ranelid lýsir hér að neðan:

Föðurlandssvikarar

Margir sænskir stjórnmálamenn hafa blóð á höndum sér og þeir svíkja Svíþjóð og greiða götu morðingja, sníkjudýra og óvina kærleikans, góðvildarinnar og allra þeirra, sem vilja lifa í trausti og virðingu fyrir samferðafólki sínu.

Já, ég meina nákvæmlega það, sem ég skrifa hér og þannig er ég ekki vondur og ég beiti ekki sænsku sögninni að svíkja neinu ofbeldi. Ég hef ekki flutt hana inn, hún fæddist og hefur lengi verið ræktuð í heimalandi mínu, sem ég elska og virði á óteljandi vegu.
Svíþjóð þarf ekki ofurhraðlestir sem kosta tvö hundruð milljarða króna. Svíþjóð þarf skjótustu og bestu leiðina að lögum og reglum, frið og ró fyrir börnin og til allra þeirra, sem sjá um sig sjálfir, eru við nám, vinna, greiða skatta og bera virðingu fyrir náunganum.

Stjórnmálamaður, sem svíkur land, sitt er sekur um vísvitandi lygar, skaðlegt samsæri og ráðabrugg og umfram allt svik við allar þær mannverur, sem vilja lifa í friði og sátt við náungann.

Enginn lögreglumaður á vakt er skotinn vegna mistaka. Einstaklingur sem ber vopn og skýtur lögreglumann við störf með köldum ásetningi, gerir það aldrei vegna mistaka og engar undantekningar finnast í heiminum.

Þunguð eiginkona hins skotna lögreglumanns er einnig lögreglumaður eins og bróðir hans. Ég skammast mín ekki fyrir að skrifa, að ég græt þegar ég heyri föður myrta sonarins segja þetta. Faðir hinnar barnshafandi konu er einnig lögreglumaður. Þannig hefur sú fjölskylda þjónað sænskum almenningi meira en nokkur önnur fjölskylda í Svíþjóð. Ég get varla skrifað þetta.

Í gærkvöldi var tuttugu og fimm ára gamall maður skotinn til bana við hlið skóla í Huddinge. Þannig heldur villimennskan og stríðið áfram í Svíþjóð. Þetta er stríð bæði andlega og bókstaflega séð.

Ég hef verið grýttur með orðum og áreittur af fölskum blaðamannakjánum, vegna þess að ég er fyrsti og eini rithöfundurinn, sem skrifa sannleikann um ástandið í Svíþjóð. Ég þjáist og syrgi það, sem er að gerast í landinu, á meðan þeir þjóna lyginni og falsa raunveruleikann.

Ég er þjóðernissinni og heimsborgari í einni og sömu manneskju og ég virði alla einstaklinga, sem vilja lifa í friði með náunganum. Þú og ég ákváðum ekki, hvar og hvenær við myndum fæðast og hver væri móðir okkar og faðir. Upphaflega höfðum við ekkert gert til að vera Svíar. Það er gjöf, sem við eigum að varðveita á besta hátt og vera þakklát fyrir.

Það dugir, að aðeins einn morðingi og hryðjuverkamaður herji á Drottningargötunni í Stokkhólmi, Biskopsgården í Gautaborg eða Fersens väg í Malmö, til þess að það hafi áhrif á alla íbúa Svíþjóðar. Börnin sjá og heyra, lesa og neyðast til að vita. Þetta er til skammar fyrir landið og ófyrirgefanleg synd.

Öllum glæpamönnum, sem dæmdir eru til brottvísunar, verður að vísa strax úr landi með valdi. Það finnast engin undantekningar. Maður kýs að vera glæpamaður. Enginn þarf að svelta og þjást af hungri í Svíþjóð. Hér geta allir farið í skólann og drukkið hreint vatn og haft þak yfir höfuðið á einhven hátt. Það er alltaf hægt að leita sér aðstoðar og stuðnings á ýmsa vegu.

Fólk, sem fæðist í landinu og hefur starfað og greitt skatta, verður alltaf að fá lífeyri svo það geti framfleytt sér og komist af a.m.k. með lífsnauðsynjarnar. Allt annað er til skammar fyrir Svíþjóð.

Þú ættir að dreifa þessum pistli til allra leskunnugra í Svíþjóð.

Björn Ranelid, í sorg og heilagri reiði, annan júlí árið 2021.


mbl.is Varð líklega fyrir slysaskoti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Svo sannur pistill. Þetta er draumur vinstra-samfó heimskingja liðsins á Íslandi. Allt gert til þess að þeir sem stunda mest þessi hryðuverk og fyrirlíta okkar menningu og siði geti komið sér upp mosku svo hægt sé að nota það sem afsökun seinna meir til að draga börnin þeirra úr skólum og þangað inn til að heilaþvo þau gegn okkur. Þetta er bara staðreynd og búið að sanna sig víða þó svo blindingjarnr, já og svikararnir við land og þjóð vilji ekki sjá það.

Sigurður Kristján Hjaltested, 3.7.2021 kl. 10:24

2 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Fyrirmyndarríkið á fallandi fæti.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 3.7.2021 kl. 13:53

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Maður verður "klökkur" eftir lesturinn og dapur þegar maður hugsar til þess að Ísland er að sigla hraðbyri í þessa sömu átt....

Jóhann Elíasson, 3.7.2021 kl. 14:31

4 Smámynd: Gústaf Adolf Skúlason

Þakka ykkur heiðursmenn fyrir innlit, lestur og athugasemdir. Sænska þjóðin syrgir og stendur með lögreglunni og margir lögreglumenn segja, að þeir þrauki í starfinu vegna þessa góða stuðnings. Lögreglustjóri Svíþjóðar endurtekur sama boðskap og haldið hefur verið fram fyrir daufum eyrum yfirvalda undanfarin ár: Við þurfum fleiri lögreglumenn og það mætti borga betur fyrir starfið. Sósíaldemókratar bera þunga ábyrgð. Baráttan gegn glæpahópunum og lög og regla verða aðalkosningamálið í næstu kosningum. Vonandi hrynur fylgi sósíaldemókrata sem skapað hafa mikla sundrungu og læsingu í sænskum stjórnmálum.

Gústaf Adolf Skúlason, 3.7.2021 kl. 15:23

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ég óska þess líka að baráttan gegn glæpahópum verði ekki seinna en í næstu kosningum.þetta er hættuástand svo sannarlega.

Helga Kristjánsdóttir, 4.7.2021 kl. 00:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband