Færsluflokkur: Trúmál og siðferði

Jólahugvekja frá Svíþjóð

web3-crucifixion-of-christ-public-domain1.jpg?w=1200Frásögn af leigubílaferð í Stokkhólmi sem farþeginn setti á netið er mér tilefni til jólahugvekju 2018. Leigubílstjórinn var trúaður múslími en yfirgaf trúna. Hann þorir ekki að gefa upp nafnið af ótta við ofsóknir og jafnvel líflát. Orðin flæða av vörum hans. Hann segir að íslam hafi stolið 40 árum af ævinni. Ekkert snérist um annað en Múhammed, Allah og bænir. Immanen og ættingjarnir sögðu að ekkert annað skipti máli.

Af hverju ætlar þú að læra? Þú munt hvort er deyja bráðum og ferðast til paradísar.

Múslímar eru hvattir til að læra hvorki sænsku né neitt annað. Múslímar eiga að vera heima og stunda hvorki atvinnu eða nám til að geta einbeitt sér að íslam. Rétt að lifa á ríkinu, það eru peningar kristinna manna. Að vinna eða fara í skóla leiðir fólk burtu frá Allah.

Átta mánuðir eru síðan bílstjórinn talaði síðast við foreldra sína. Síðustu orð móðurinnar voru að hann væri "kafír" og myndi enda í helvíti. "Ég hef aldrei getað talað um þetta við nokkurn mann, allt þetta hef ég borið í hjartanu" segir bílstjórinn.

Ég hlusta á áhyggjur hans af sonum sínum. Um einmanaleikann að búa í hverfi sem hann vill flýja frá en getur ekki vegna peningaleysis. Um áhættuna að snúa baki við íslam þar sem lögmál íslams ríkja.

Þið Svíar skiljið ekki um hvað er að ræða. Íslam er eins og krabbamein og breiðist út eins og sjúkdómur. Ef ég gæti, þá myndi ég loka hverri einustu mosku í landinu.

Ég hvet hann til að ræða við fleiri, safna saman múslímum sem vilja skipta um trú svo þeir geti sótt styrk hverjir hjá öðrum. En bílstjórinn segir að hann geti aldrei gert það undir nafni eða með mynd af sér.

Þeir geta kveikt í bílnum mínum, sært mig og jafnvel drepið mig. Þú skilur - það stendur í Kóraninum.

Ég veit það en get ekki melt það. Hann er að tala um Svíþjóð ár 2018. Þeir sem kjósa flokka sem hæst láta um kynjamisrétti og segjast verja minnimáttar en samþykkja íslam á grundvelli trúabragðarfrelsis eru tvenns konar: Þeir sem tilheyra íslam og lifa eftir reglum Allah í stað lýðræðis og svo þeir sem óháðir íslam geta valið hvar þeir búa og hvernig þeir lifa. Það er veruleikablindur barnaskapur að fórna þeim sem skortir möguleika til að velja. Leigubílsstjórinn og ég gerumst fésbókarvinir. Ég fer heim í húsið mitt og hann í íbúðina sína í hverfi, þar sem lýðræðið er smám saman brotið niður með íslam að vopni og samþykki yfirvalda.

Á morgun verður áfram leyfilegt að hylja barnið þitt í sjali miðað við kyn í þeim eina tilgangi að það veki ekki kynferðislegan losta hjá fullorðnu fólki af gagnstæðu kyni.
Á morgun verða áfram bænaköll í Svíþjóð.
Á morgun munu börn mæta í skóla sem skipa Allah ofar lýðræðinu.
Á morgun verða áfram kynjaskiptir baðtímar í sundhöllinni og burkini til sölu í anddyrinu.
Á morgun mun sænska ríkið áfram veita fé til samtaka sem vinna gegn frelsi og jafnrétti.

Ég óska lesendum Gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir hið liðna.


Kristnir rísa upp í Svíþjóð

10553354_684407398280477_8445073183355487871_n

Um tvöleytið söfnuðust kristnir innflytjendur frá Írak og Sýrlandi ásamt mörgum öðrum kristnum til fundar á Meðborgartorginu í Stokkhólmi til að vekja athygli á þeirri helför sem hryðjuverkasveitir IS stunda gegn kristnum í Írak og Sýrlandi. Í Írak hafa IS menn m.a. eyðilagt eina elstu kirkju heims í borginni Mosul. Menntamálaráðherra Svía, Jan Björklund sagði í ávarpi til viðstaddra, að "kirkjuklukkur Mósúlborgar sem hljómað hafa í meira en 1700 ár eru þagnaðar." Sænska sjónvarpið greindi frá því í kvöld, að fjöldi kristinna bæði konur og börn hefðu nýlega verið myrt á þann hátt að vera grafin lifandi í fjöldagröfum við borgina Sincar í norðvesturhluta Íraks nálagt landamærum Sýrlands.

IMG_2922

Skelfilegar sögur um hrottaleg morð á kristnum allt niður í ungabörn berast til vesturlanda frá Írak t.d. ganga sögur um að ungabörn kristinna hafi verið afhöfðuð og höfuðin sett á stangir á torgi eins bæjarins öðrum til viðvörununar. Áður hafa frásagnir og myndir af sérstökum sláturhúsum til að slátra kristnu fólki og aflima það borist gegnum netið. Hryðjuverkamenn IS eða Islamska ríkisins flæma kristna á skipulegan hátt úr ríkinu. Mála þeir arabíska bókstafinn N, sem stendur fyrir Nasaré á dyr kristinna, þar sem Jesús kom frá Nasaret. Er kristnum gefinn sá valkostur að kasta trú sinni og játast Islam og gerast múslimir eða verða slátrað. Mörg myndbönd á netinu sýna þvílíkar viðbjóðslegar hrottaaftökur og kvalafullan dauða fórnarlambanna að minnir á gjörninga djöfulsins þar sem mesta ánægjan virðist fólgin í yfirveguðum, langdregnum hámarkspyndingum. Viðbjóðurinn er slíkur að engin orð ná yfir hann og ef einungis einn þúsundasti af raunveruleikanum kemst til skila dugir það til að jafnvel harðsnúnustu mönnum verður flökurt. 

IMG_2899IMG_2882

Ein kona sagði við okkur hjónin: "Engin trúarbrögð eiga að hafa rétt að ráða yfir lífi og dauða þeirra sem velja að trúa á annað. Múslimir hafa engin völd né rétt til að slátra kristnum, sem ekki vilja gerast múslímskir. Þeir segja um norrænar þjóðir með liggjandi kross í fánum sínum að þeir munu troða krossinn í svaðið og skrifa á fánana í staðinn: Allah er mikill."

IMG_2912

 

 

 

 

 

  

 

 

Margir fundargesta báru krossa, ómálaða trékrossa, svarta krossa eða krossa í liti blóðsins. Fólki er brugðið, að fjölmiðlar segja mest frá Ísrael og Gaza en virðast hafa gleymt öllum þeim fjölda sem hefur verið hrakinn á flótta, myrtir og eru innilokaðir og að deyja í vosbúð fyrir það eitt að trúa á Jesús Krist.

Þeir sem ég ræddi við efuðust um að sprengjuárásir Bandaríkjamanna kæmu raunverulega að notum. Fundurinn beindi þeim tilmælum til sænsku ríkisstjórnarinnar, ESB og Sameinuðu þjóðanna að grípa þegar til aðgerða til að hindra frekari framgang Íslamska ríkisins og veita kristnu flóttafólki skjól og aðhlynningu.

IMG_2908

 

 

 

 

 

 

 

 

Ég hef það á tilfinningunni, að helförin gegn kristnum eigi eftir að breiðast út. IS eru efnameiri samtök í dag en talibanarnir voru eftir herföng og yfirtöku borga í Írak. Öfgaminnihlutahópar geta haft örlög heildarinnar í hendi sér ef fólk rís ekki upp í tæka tíð og stöðvar þessa helför gegn kristnum. 

 


mbl.is 20.000 hafa komist af Sinjar-fjalli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband