Miðflokkur allra landsmanna

SigmundurDaviðRæða Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns Miðflokksins á aukalandsþingi 21. nóvember var bæði einstök og því miður sjaldgæf í þeim ímyndunarheimi stjórnmálanna sem tröllríður öllu í dag. Þegar allt of margir einstaklingar eru í þykjustu stjórnmálum, þá verður rödd skynseminnar sú sem verður öðru vísi. Lýsti Sigmundur ástandinu með orðunum að stjórn landsins hefði nánast verið sett í salt eða lögð í súr."

Þarf að huga að fleiru en faraldrinum

Sagði Sigmundur að kórónuveiran hefði heltekið ríkisstjórnina svo „vart er hægt að tala um eðlilegt og lýðræðislegt stjórnarfar." Varaði Sigmundur við því að óleyst vandamál m.a. hjá þúsundum lítilla og stórra fyrirtækja, landbúnaði, heilbirgðiskerfinu og eldri borgara gætu orðið að varanlegum vanda ef ekki væri gripið í taumana áður en það væri orðið um seinan. Minnti hann á að Miðflokkurinn hafði lagt fram tillögur fyrir faraldurinn og einnig boðið aðstoð í baráttunni gegn sjálfum faraldrinum en ríkisstjórnin hafi haft meiri áhuga á glærukynningum og „oft verið lögð meiri vinna í umbúðirnar en tillögurnar sjálfar og jafnvel hinar stærstu þeirra hafa að engu orðið." Miðflokkurinn hafi hins vegar alltaf stutt þær góðu tillögur sem að gagni hafi orðið. 

Landbúnaðurinn verið settur í nauðvörn

Lýsti formaður Miðflokksins hvernig sótt er að ýmsum grunnstoðum Íslands eins og landbúnaðinum sem hefði orðið fyrir verulegu aðkasti á undanförnum árum: „Það er sótt að greininni úr mörgum áttum samtímis. Búvörusamningar virðast frekar snúast um samdrátt en sókn. Óhagstæðir tollasamningar við Evrópusambandið gerir bændum erfitt fyrir og veikir samkeppnisstöðu greinarinnar." Ofan á það leggst sístækkandi reglugerðarfarganið sem er að miklu leyti innflutt og skapar erfiðari skilyrði fyrir íslenska bændur en víðast hvar annars staðar. Ríkisstjórnin sýndi snemma hug sinn til landbúnaðarstarfa með því að lækka fjárframlög til greinarinnar sem skapað hefur neyðarástand hjá bændum. 

Eldri borgarar ekki enn fengið leiðréttu skerðinga eftir bankahrun

„Gleymum því ekki að aldurshópurinn sem hafði byggt upp samfélagið var ekki of sæll að sínu fyrir skerðingarnar. Á sínum tíma gaf ríkisstjórn mín fyrirheit að þegar sá árangur sem við stefndum að í efnahagsmálum hefði náðst fengu þeir sem byggðu upp samfélagið að njóta þess. Árangurinn náðist og gott betur en það. En biðin stendur enn."

Lýsti Sigmundur hvernig ríkisstjórnin hefði komið með galið verkefni um að stofna hlutafélag og leggja á auknar skattaálögur til að fjármagna Borgarlínuverkefnið. En þótt Miðflokknum hefði tekist að leggja inn nokkra varnagla þá héldi kerfið áfram á sinni braut. 50 milljlarðar og óútfylltur tékki til gæluverkefnis er ekki það sem þjóðina vantar núna á þessum erfiðu tímum.

Benti Sigmundur einnig á hvernig hægt er að moka peningum í heilbrigðisgeirann sem verður botnlaus hít ef kerfið verður ekki lagað. Sagði hann að flestir gerðu sér grein fyrir því að Hringbrautarsjúkrahúsið getur ekki leyst öll verkefni og þarf að byggja nýtt sjúkrahús á öðrum stað. 

Ísland allt

Sigmundur sagði báknið vera orðið það fyrirferðamikið að það ógnaði heilum atvinnugreinum. Miðflokkurinn hefur áður lagt til að þegar nýjar reglur eru settar verði tvær eldri teknar út til að spyrna við ofurbólgu báknsins. Var tekin fram sérstök handbók fyrir starfsfólk ríkisstofnana í forsætisráðherratíð Sigmundar til að spyrna gegn óþarfa útþenslu báknsins en lítið gerst eftir 2016. „Fyrir vikið verður sífellt flóknara að lifa daglegu lífi á Íslandi svo ekki sé minnst á að stofna eða reka lítil fyrirtæki og skapa ný störf og verðmæti." Rakti Sigmundur Davíð baráttu Miðflokksins við báknið og réttlætingu kerfisins á stækkun báknsins með því að framleiðslan ykist meira og báknið því ekki hlutfallslega stærra en áður. Núna erum við hins vegar komin í þá stöðu að við sitjum uppi með gríðarlegt bákn en framleiðslan hefur dregist saman svo brýnt er að hefjast handa með að fá báknið burt.

Losunarkerfið ein stærsta svikamylla síðari tíma – Ef eitt álver flyst frá Íslandi til Kína mun losun gróðurhúsalofttegunda tífaldast

Formaður Miðflokksins benti á að það umhverfisvænasta á Íslandi væri álframleiðslan, því ef eitt álver flyttist til Kína mun losun gróðurhúsalofttegunda tífaldast.

„Samt er nú rætt um að Ísland verði sektað fyrir að hafa ekki dregið nógu mikið úr losun á meðan við byggðum upp umhverfisvænan iðnað á undanförnum 30 árum. Hvert eiga þeir milljarðar að renna? Það virðist enginn vita. Líklega í nýja losunarhagkerfið sem lýst hefur verið sem einni stærstu svikamyllu síðari tíma. Þetta er það sem gerist þegar kerfið ræður á kostnað heilbrigðrar skynsemi."

Stjórnlaus málaflokkur hælisleitenda

Sigmundur vék orðum að vanda Íslands varðandi flóttamenn og hælisleitenda:

„Veltið þessu fyrir ykkur: Hvernig stendur á því að fjöldi hælisleitenda á Íslandi, eyju í Norður Atlantshafi er allt í einu orðinn sá mesti á öllum Norðurlöndunum miðað við fólksfjölda. Það er vegna þeirra skilaboða sem íslensk stjórnvöld hafa sent út. Þau skilaboð nýta m.a. stórhættuleg glæpagengi til að selja fólki vonir um Ísland sem áfangastað." Bendir Miðflokkurinn á að hin Norðurlöndin sendi núna frá sér skilaboð til að draga úr innflutningum. „Ef Ísland ætlar eitt Norðurlandanna að skera sig úr hvað þetta varðar verður ekki við neitt ráðið og það mun draga úr getu okkar til að hjálpa þeim sem mest þurfa á hjálpinni að halda." Minntist Sigmundur á afstöðu danskra jafnaðarmanna um „að öflugt velferðakerfi og opin landamæri fara ekki saman."

Það munar um Miðflokkinn

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson ræddu um kerfi réttrúnaðar og þegar kerfið tæki völdin af fólki væri hætta á ferðum gagnvart lýðræðinu. Stjórnmálamenn sem láta það viðgangast fjarlægjast kjósendur og taka stjórnmálin á þann stað sem kjósendur fái litlu ráðið um hvað er rætt eða hvernig. Sem svar við þessarri þróun hefur Miðflokkurinn eigin starfsstefnu heilbrigðarar skynsemi laus við glórur réttrúnaðarins. Miðflokkurinn er því valkostur þeirra er vilja vinna á lýðræðislegum grundvelli og starfa saman að lausnum vanda með rökhyggjuna að verkfæri. 

 


mbl.is Vill lækka álögur og gjöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Langhæfasti stjórnmálamaður Alþingis.

Helga Kristjánsdóttir, 22.11.2020 kl. 04:51

2 Smámynd: Gústaf Adolf Skúlason

Sæl Helga, sammála. Plús þingmannalið Miðflokksins og ekki má gleyma Vigdísi Hauksdóttir. Þetta eru verðugir fulltrúar kjósenda og svíkja ekki eins og virðist vera almenn og opinber stefna yfirborðsstjórnmálanna í dag.

Gústaf Adolf Skúlason, 22.11.2020 kl. 09:38

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Eijmitt! Ég fylgdist með þeim öllum þegar þau gerðu sitt ítrasta til að tefja fyrir samþykkt orkupakka #3.

Helga Kristjánsdóttir, 22.11.2020 kl. 10:25

4 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Ekki spurning með Sigmund. Eini maðurinn í þessum

fíflasirkus við Austurvöll sem talar mannamál.

Allt sem frá hinum flokkunum kemur er froða og

bull svo maður kúgast að lesa eða hlusta á þá.

Miðflokkurinn er eini flokkurinn á þingi sem

er tilbúin að vinna fyrir þjóð sína á meðan hinir

vilja henni allt illt.

Svo einfallt er það.

Sigurður Kristján Hjaltested, 22.11.2020 kl. 11:03

5 Smámynd: Gústaf Adolf Skúlason

Sæll Sigurður, þú talar hreint og beint og satt. Miðflokkurinn er eini flokkurinn sem virðist halda eiðstaf sínum við stjórnarskrá lýðveldisins í heiðri. Þess vegna á að fela flokknum forystuaflið í næstu kosningum.

Gústaf Adolf Skúlason, 22.11.2020 kl. 11:21

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Svei mér þá ef ég er ekki farnn að sperra eyrun?

Halldór Jónsson, 22.11.2020 kl. 11:22

7 Smámynd: Gústaf Adolf Skúlason

Sæll Halldór, já, spurningin er hvort þjóðin hefur efni lengur að leyfa ábyrgðarlausum stjórnmálamönnum að misnota lýðræðisumboðið sjálfum sér til framdráttar. Miðflokkurinn hefur heilsteypta grundvallarsýn til lausna vandamála sem margir af eldri flokkunum hafa týnt. Þjóðin hefur ekki efni að bíða eftir því að þeir flokkar sem viðra sig upp við erlend ríki snúi frá sleikjuhætti sínum. Við ættum öll að hafa vaknað upp við vondan draum þegar veiran sýndi okkur að Vesturveldin eru háð einræðisríki kommúnista í Kína með lyfjaframleiðslu og læknaútbúnað......sumir virðast samt velja að hafa höfuðið á koddanum áfram...

Gústaf Adolf Skúlason, 22.11.2020 kl. 13:33

8 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Ég held því miður að þegar nær dregur að kostningum og "fjórflokkurinn" gerir sér grein fyrir hvað miðflokkurinn stendur og hinn almenni kjósendi vill styðja hann þá verður bara fjallað um fyllirí á Klausturbar og ekkert annað. 

Sigurður I B Guðmundsson, 22.11.2020 kl. 14:59

9 Smámynd: Gústaf Adolf Skúlason

Sæll Sigurður, þeir sem eru í málefnaþrotum gera eflaust það og svo eru þeir til sem í nafni réttrúnaðar leyfa sér að hata þá sem eru á annarri skoðun. En þjóðin hefur ekki lengur efni á því að vera að eltast við þetta fólk. Landsmenn þurfa að taka lýðræðið og stjórnmálin aftur til sín og endurskipa alþingi eins og ákveðið var við lýðveldisstofnun 1944. Miðflokkurinn leiðir þá braut.

Gústaf Adolf Skúlason, 22.11.2020 kl. 15:27

10 Smámynd: Theódór Norðkvist

Hef oft velt því fyrir mér hvort það væri best að þjóðhollir hægri íhaldsmenn styddu Miðflokkinn.

Í stað þess að dreifa atkvæðum á dvergflokka og míkróflokka, sem munu slást um einhver 2 - 3% pilsnerfylgi og reita atkvæði hver af öðrum.

Eða fara í hár saman og fæla jafnvel í burtu þessi fáeinu prósent eins og á síðustu kosningum. Sameinaðir stöndum vér, sundraðir föllum vér.

Theódór Norðkvist, 22.11.2020 kl. 16:00

11 Smámynd: Gústaf Adolf Skúlason

Sæll Theódór, þú hefur lög að mæla, tilkoma hægriflokks er vegna útilokunar Sjálfstæðisflokksins á íhaldsstefnunni. Þannig voru það tveir flokkar sem stofnuðu Sjálfstæðisflokkinn Íhaldsmenn og frjálslyndir. Með Sigmund Davíð og Miðflokkinn þarf engan hægri flokk. Sigmundur Davíð er meiri leiðtogi sjálfstæðisstefnunnar en finnst í röðum Sjálfstæðismanna sjálfra. Miðflokkurinn hefur öll þau mál sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur svikið. Að allt er í rústum í forystu Sjálfstæðismanna verður Miðflokknum seint kennt um. Þegar menn eru í ríkisstjórn og bara blaðra án þess að gera neitt raunverulegt í málunum þá minnir það á sænska sósíaldemókrata sem fara í kröfugöngu gegn sjálfum sér á fyrsta maí.

Leið Íslands til endurreisnar og varðveislu fullveldisins liggur gegnum Miðflokkinn svo ég er þér fyllilega sammála, byggjum saman stóran og sterkan flokk sem þorir að vinna fyrir þjóðina.

Gústaf Adolf Skúlason, 22.11.2020 kl. 16:25

12 Smámynd: Theódór Norðkvist

Fara í kröfugöngu gegn sjálfum sér.laughing Snilldarlega að orði komist og svo satt.

Theódór Norðkvist, 22.11.2020 kl. 16:56

13 Smámynd: Óskar Kristinsson

Góðar þakkir Gústaf!

Hef engu við þetta að bæta hjá þér og vinum,BARA áfram Sigmundur Davíð og allir okkar menn!!!

Óskar Kristinsson, 22.11.2020 kl. 22:50

14 Smámynd: Gústaf Adolf Skúlason

Þakka þér Óskar góða baráttukveðju - stöndum saman í þessu. Kærar kveðjur

Gústaf Adolf Skúlason, 22.11.2020 kl. 23:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband