Miðflokkurinn – eini starfsgrundvöllur sjálfstæðismanna

997771Ekki nóg með að flokksforysta Sjálfstæðisflokksins reytir fylgi af flokknum vegna svika við þjóðina í útfærslu ESB, heldur er trompið sjálft - fjármálin í einum hrærigraut eins og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson bendir á. Flæking mála og hærri skattar bera merki vinstri stjórnar þar sem formaður Sjálfstæðisflokksins gerir allt til að helminga fylgi flokksins. Allt bendir til að Bjarni Benediktsson fari til sögunnar sem formanninum sem tókst að eyðileggja Sjálfstæðisflokkinn og koma fylginu fyrstum formanna undir 20% í 90 ára sögu flokksins. 

Ísköld nál ættarvitans hefur leitt flokkinn beint í fang ESB og hóp þeirra sem auðgast á alþjóðavæðingunni. Í hinum nýja stjórnmálaskóla ESB er alþjóðahyggja í stjórn hins nýja heimsveldis talin dyggð en fullvalda ríki gamaldags. Í nafni frjálshyggju og viðskipta er sjálfstæði Íslands eytt og stjórnarskráin innihaldi rúin.

Í ónýtum Sjálfstæðisflokki er það sama og kasta perlum fyrir svín að reyna að koma vitinu fyrir þá sem velja alþjóðlegt yfirvald yfir Íslandi eins og ríkti fyrir tilkomu Sjálfstæðisflokksins.

Miðflokkurinn er Bændaflokkur og Sjálfstæðisflokkur í einum nútímaflokki. Þar er starfsgrundvöllur allra Íslendinga sem elska fullvalda og sjálfstæða þjóð.


mbl.is Stærra bákn og meiri skattbyrði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband