Miðflokksmaðurinn og litli guli Sjálfstæðisflokkurinn

badchickenEinu sinni, þegar litli guli Sjálfstæðisflokkurinn naut afraksturs afreka sinna, þá fann hann nokkur orkupakkafræ.

"Hver ætlar að gróðursetja þessi orkupakkafræ?" spurði litli guli Sjálfstæðisflokkurinn.

"Ég" sagði samfylkingarsítrónan.
"Ég" sagði vinstri græna geddan.
"Ég" sagði viðreisnarviðundrið.
"Ég" sagði píratapulsan.
"Ég" sagði framsóknarfressinn.
"Ekki ég" sagði miðflokksmaðurinn.

"Þá gera það allir nema miðflokksmaðurinn" sagði litli guli Sjálfstæðisflokkurinn. Og þau gerðu það.

Orkufræin urðu að orkuverum sem uxu og uxu. Að lokum kom að uppskeru alls rafmagns. Þá sagði litli guli Sjálfstæðisflokkurinn: "Hver vill fá rosalegt gígawatt-stuð?"

"Ég" sagði samfylkingarsítrónan.
"Ég" sagði vinstri græna geddan.
"Ég" sagði viðreisnarviðundrið.
"Ég" sagði píratapulsan.
"Ég" sagði framsóknarfressinn.
"Ekki ég" sagði miðflokksmaðurinn.

"Þá fá allir rosalegt gígawatt-stuð nema miðflokksmaðurinn" sagði litli guli Sjálfstæðisflokkurinn og ýtti á on-takkann.

PÚFF! 

Litli guli Sjálfstæðisflokkurinn, samfylkingarsítrónan, vinstri græna geddan, viðreisnarviðundrið, píratapulsan og framsóknarfressinn hurfu í gulum reyk. Það gerði lýðveldið líka.

Og nú þarf miðflokksmaðurinn að byrja söguna alveg uppá nýtt.


mbl.is Skýrslugerð um fjórða pakkann hafnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Flott "samlíking"........

Jóhann Elíasson, 9.8.2019 kl. 06:55

2 Smámynd: Gústaf Adolf Skúlason

Takk Jóhann fyrir góð orð, það virðist bara vera einn af níu persónum í utanríkisnefnd sem er fullveldissinni og sá maður er Miðflokksmaður. Hinir átta virðast hafa gaddað sig saman í andstöðuna við fullveldið og þar með sjálft lýðveldið.

Gústaf Adolf Skúlason, 9.8.2019 kl. 10:53

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Satt segir þú Gústaf.  Maður er svolítið hugsandi yfir þessum eið að stjórnarskránni, sem þingmenn sverja þegar þeir setjast á þing.  ER ÞESSI EIÐUR BARA TEKINN SEM EITTHVERT "VINNUSTAÐAGRÍN"????

Jóhann Elíasson, 9.8.2019 kl. 11:11

4 Smámynd: Gústaf Adolf Skúlason

Lítur ekki betur út...,

Gústaf Adolf Skúlason, 9.8.2019 kl. 11:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband