Glæsilegur þingflokkur Miðflokksins

mid

dokument2Miðflokkurinn stækkaði óvænt eftir slúðurherferð gulu pressunnar. Jafnvel þótt fundir þingflokksins væru galopnir fyrir upptökum ferðamanna, þá fengi enginn þeirra titilinn kona ársins fyrir vikið. Fjósapúkinn fitnar á Klaustur bar en ekki á Alþingi, -engan veginn nálægt þingmönnum sem þjóna meðborgurum af heilu hjarta. Þótt þröngt sé við borðið er eflaust pláss fyrir löglegan upptökustól merktum Marvin.

Í næstu kosningum þegar landsmenn moka grátkór afmælisstjórnar fullveldisins út af þingi mun Miðflokkurinn marka spor. Ef flokkurinn stækkar ekki mun slúðurpressan senda út Garvin. Og ekki veitir nú af þegar tárakirtlar ráðherra eru skrælnaðir eftir keppni í flóði krókódílatára í fjölmiðlum: "Æ, æ, við höfum smitast af EFTA-dómum, æ, æ, við áttum að gera betur, æ, æ, ódrepandi ESB-sýklar! Ríkisstjórnin hefur snarað inn stjórnarráðið og hent lausa endanum til Brussel og hrópar: Herðið ólina!

Þingflokkur Miðflokksins er The Untouchables. Alla vega gegn ólöglegum upptökutækjum, Gróu á Leiti og greftri Panamaskurðar gegnum þjóðina.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Gústaf held þetta sé satt hjá þér það er fínn kraftur í þessum mönnum fyrir utan að vera samstíga. Kannski koma fleiri í hópinn. 

Valdimar Samúelsson, 27.2.2019 kl. 20:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband