Stefnulaus súpa úr ESB-nagla

SinkingEUEkki er það upp á marga fiska að fylgjast með málfærslu eftirlýðveldisflokkanna, sem reyna að finna sér land undir fót í kosningunum. Öllu er hrært saman í hugmyndasnauða naglasúpu og kjósendum aðeins boðið upp á einn ESB-nagla. 

Stjórnarandstöðuflokkarnir keppa við sjálfa sig með nýjum bandalögum í einstökum málaflokkum. Píratar hófu leikinn og eins og hinn góði forseti Alþingis Einar K. Guðfinnsson benti á, þá er það athyglisvert, að Viðreisn telur utanríkisstefnu sinni best borgið í bandalagi með Vinstri grænum og Pírötum.

Undirlægjuhátturinn og sleikjuskapurinn við ESB er svo blindandi að ekkert annað kemst að og þar af leiðandi kemur hið nýja kjörorð: Viðreisn og Vinstri græn - útverðir vestrænnar samvinnu!

Vestræn samvinna stjórnarandstöðunnar hefur ESB og starf þess sem fyrirmynd. Bygging ESB er eins og Titanic í heila hönnuðanna og farþega fyrsta farrýmis: Ósökkvandi.

En eins og Titanic eftir áreksturinn við ísjakann marir ESB vélarlaust hálft í kafi og bíður þess að sökkva.

Gáfuð stjórnarandstaða velur að fara til botns með ESB.

Guð blessi Ísland fyrir að vera án þeirra örlaga.


mbl.is „Útverðir vestrænnar samvinnu!“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ég var núna fyrst að sjá þátt sjónvarpsins með afstöðu 5 af framboðunum í kvöld.- Össur heldur áfram með gamla  Esb böggla uppboðið,svo tregur að viðurkenna að sæki þjóð um aðild,vill hún þangað inn basta. En Esb,flokkarnir eru alltaf að minna á meint loforð Bjarna Ben um áframhald viðræðna,helda að þau fari ekki rétt með það.

Helga Kristjánsdóttir, 19.10.2016 kl. 02:16

2 Smámynd: Gústaf Adolf Skúlason

Sæl Helga, það er hámark ósvífnarinnar hjá þeim sem neituðu tillögu Bjarna Benediktssonar á Alþingi um að þjóðin fengi að kjósa um málið að koma seinna og ásaka hann um að banna atkvæðagreiðslu, af því þeir vilja núna allt í einu kjósa um málið. Þetta er valdabrölt. Stjórnarandstaðan keyrði yfir þjóðina, þegar Össur, Jóhanna og Steingrímur sendu inn umboðslausa umsókn til ESB. Með Guðna Jóhannesson á Bessastöðum ætlar stjórnarandstaðan í ríkisstjórn að taka upp "samninga"viðræðurnar að nýju og tryggja að fullveldið verði endanlega tekið af þjóðinni. Núverandi forseti mun ekki standa með þjóðinni, hann mun dansa með ESB-sleikjunum.

Gústaf Adolf Skúlason, 19.10.2016 kl. 13:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband