Klofningsatlaga að Íslandi. Undirbúningur nýrrar heimskreppu.

mossackDrifið sem í gangi er gagnvart Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra Íslands er þaulundirbúið og skipulagt. Á morgun mánudag verður enn einu sinni reynt að egna einum hluta íslensku þjóðarinnar gegn hinum. Verður ný "búsáhaldarbylting" reynd með járnabanki og hrópum um afsögn forsætisráðherrans og ríkisstjórnarinnar á Austurvelli. Markmið landsölufólks -ESB sinna og Baugsveldissinna - er sem fyrr aðför að þeim landsmönnum sem vilja standa á grundvelli stjórnarskrár lýðveldisins og verja sjálfstæði landsins og frjálsan sjálfsákvörðunarrétt. Bola á burtu einum af helstu leiðtogum þjóðarinnar gegn fjármálaspillingu útrásarvíkinga, einum helsta baráttumanni Íslendinga gegn hrægammasjóðum. 

Sjálf atlagan að forsætisráðherranum er afskaplega pínleg. Honum boðið í viðtal sænska sjónvarpsins sem síðan breytist í dómstól RÚV og forsætisráðherrann hrakinn út úr herberginu með sjónvarpsvélarnar í gangi. Síðan er allt klippt fínt saman til að passa inn í upplýsingar um Panama skjölin og dreift út um allan heim. Einungis tveir Framsóknarmenn og þrír Sjálfstæðismenn nefndir svona rétt eins og þessir einstaklingar væru einir ábyrgir fyrir glæpum útrásarvíkinga og hruni bankanna. Hinir 595 skipta engu máli og verður ekki getið. 

Í sjónvarpsþætti sænska sjónvarpsins AGENDA sunnudagskvöld 3. apríl var Sven Bergman sænskum starfsmanni Uppdrag Granskning sem tók viðtalið við Sigmund Davíð Gunnlaugsson spurður "Vitið þið, hvort Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hafi svikið peninga undan skatti?" Svar Bergmans var: "Nei. En við getum orðað þetta þannig, - hann hefur ekki enn lagt fram nein gögn t.d. frá skattayfirvöldum til sönnunar máli sínu." 

Meira þarf ekki að segja, stóru fjölmiðlarnir dreifa rógburði um forsætisráðherrann okkar sem er af þeim dæmdur sem stórsvindlari sem komið hefur hundruðum miljónum krónum undan í skattaskjóli. Nafn hans er lesið upp í sömu andrá og verið er að tala um eiturlyfjamafíu, peningaþvott, hryðjuverkastarfsemi og ríkt fólk sem deilir reitum í paradís í hliðstæðum heimi við okkur hin. 

Nákvæmlega eins og gert var með Davíð Oddsson og Geir Haarde er búið að dæma forsætisráðherra okkar litlu þjóðar sekan án dóms og laga og honum gefinn kosturinn að "sanna sakleysi sitt" í fjölmiðlum andstæðum sjálfsákvörðunarrétti þjóðríkja og öfundsjúkra vegna árangurs Íslands í baráttunni við alheimsbankasvindlara sem vilja breyta heiminum í eitt ríki með einn gjaldmiðil til að ná fullkomri stjórn á öllu fólki sem dregur andann á jörðinni. Stjórnmálaandstaðan á Íslandi mun leiða enn eina klofningsatlöguna að þjóðinni og reyna að koma á glundroða og óöruggu stjórnmálaástandi til að hrifsa völdin. Sem fyrr verður reynt að koma Íslandi undir alríki meginlandsins, ESB.

Panamauppljóstrunaratlagan að Íslandi er lítið atriði í "upplýsingar"herferð að heimsbyggðinni í formála yfirvofandi heimskreppu. Þegar upplýsingar um hluti sem allir í viðskiptum hafa lengi vitað um er dengt yfir heimsbyggðina á skipulagðan hátt eins og núna, þá býr eitthvað annað að baki en að fullnægja réttlætinu yfir peningasvindlurum. Annars hefði aðferðin ekki verið í stórbrotnum Hollywood stíl eins og við frumsýningu nýjustu stórmyndarinnar.

Aðförin að Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni er fyrst og fremst gerð í tvennum tilgangi:

1. Koma helsta baráttumanninum gegn hrægammasjóðunum burt af vettvangi.

2. Koma góðum baráttumanni lítillar þjóðar sem sannar ágæti þess að vera ekki í Evrópusambandinu út úr kastljósi fréttamiðla.

Forsætisráðherra Íslands hefur verið nýttur af Nei hlið Brexit í Bretlandi og ekkert svíður forystumönnum ESB meir en að einhver getur státað af fjárhagslegum ávinningi þess að vera utan við ESB. ESB er sjálft í upplausn og framundan örlagatími með sundurliðun sambandsins og allsherjar öngþveiti velji Bretar að ganga út úr ESB.

"Góða fólkið" er sem fyrr notað til að vinna skítverkin enda er leiðin til heljar malbikuð fallegum ásetningi þess.

Ég hvet alla landsmenn til að fylkja sér kringum forsætisráðherrann okkar og stöðva niðurrifsöflin sem vilja skapa glundroða í samfélaginu.

 


mbl.is Sigmundur í fjölmiðlum um allan heim
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

Í hvaða heimi lifir þú Gústaf Adolf? Gerir þú þér grein fyrir hvað þú ert að bera á borð? Ég get vel skilið að fólk geti haft mætur á öðru fólki, hvar í þjóðfélagi sem það er, en þú virðis alveg úr öllum tengslum við rauveruleikann. En ef þú aðhillist skúrka, þá aðhillist þú skúrka, svo einfallt er það!?

Jónas Ómar Snorrason, 3.4.2016 kl. 23:10

2 Smámynd: Elle_

Jónas, Gustaf er alveg í tengingu við raunveruleikann. Það verður ekki sagt um alla Pírata og SAMfófólk, já og VG.

Elle_, 3.4.2016 kl. 23:41

3 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

Elle, ekki pólitíka allt sem sagt er. Eins og ég sagði, ef fólk aðhillist skúrka, þá aðhillist fólk skúrka, einfallt! þeirra er valið.

Jónas Ómar Snorrason, 4.4.2016 kl. 00:24

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Þarft þú endilega að tilkynna það,eins þú einn gefir leyfi hver aðhyllist uppnefnur þínar. Gústaf vertu viss við flykkjum okkur um forsætisráðherra okkar,sem hefur gefið okkur svo mikið,er sannur og heiðarlegur Íslendingur. Aldrei mundi hann koma svona fram við nokkurn mann eins og sænski gaurinn og Jóhann. Sigmundur er eðal maður og á ekkert vona til. 

Helga Kristjánsdóttir, 4.4.2016 kl. 05:30

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

leiðrétta ,vont til.

Helga Kristjánsdóttir, 4.4.2016 kl. 05:31

6 Smámynd: Gústaf Adolf Skúlason

Góðan daginn, daginn eftir opinbera "aftöku" forsætisráðherrans sem notuð verður af stjórnarandstöðunni til sundrungar og æsingar til "nýrrar aftöku" hans. Takk Elle og Helga fyrir stuðning. Nú ríður á að við stöðndum öll þétt saman.

Sem fyrr segi ég: 

"Snertið ekki forsætisráðherrann minn!"

Gústaf Adolf Skúlason, 4.4.2016 kl. 06:17

7 Smámynd: Mofi

Á virkilega að fórna samviskunni fyrir foringja hollustu jafnvel þótt það kosti að landið verði athlægi á alþjóðavettvangi...

Mofi, 4.4.2016 kl. 09:18

8 Smámynd: Gústaf Adolf Skúlason

Engin foringjahollusta í merkingunni "hugsunarlaus fylgni". Sigmundur er forsætisráðherra eina landsins sem hefur gert atlögu að alþjóða glæpastarfsemi sem vildi þvinga skattgreiðendur að greiða fyrir skuldir sínar. Sigmundur er forsætisráðherra nær eina landsins sem hefur fangelsað fyrrv. bankastjóra. Forsætisráðherrann lýsir yfir á alþjóðavettvangi að árangur lítillar eyju í efnahagsmálum megi m.a. rekja til þess að landið er ekki með í ESB. Klárt mál að það þjónar vissum öflum sem vilja taka völdin ef Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni er bolað burt úr embætti. Það hlýtur að vera kátt á Kvíabryggju núna.... 

Gústaf Adolf Skúlason, 4.4.2016 kl. 09:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband