Besta stjórnmálapar landsins

bjarnihannabirna

Bjarni Benediktsson nýkjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins og Hanna Birna Kristjánsdóttir nýkjörinn varaformaður Sjálfstæðisflokksins.

Sameinaður styrkur Sjálfstæðismanna að baki leiðtogum sínum gerir Sjálfstæðisflokkinn sterkari í því að takast á við landsmálin. Sá samhugur sem ríkt hefur á Landsfundi Sjálfstæðsimanna mun duga langt fram yfir næstu alþingiskosningar. Sjálfstæðisflokkurinn er að ná fyrri samheldni og stefnufestu, sem einkennt hefur flokkinn alla tíð.

Undir leiðsögn Bjarna Benediktssonar og Hönnu Birnu Kristjánsdóttur mun flokkurinn leiða Ísland farsællega á örlagatímum. Staðfesta flokksins í Evrópumálum, atvinnumálum, peningamálum og hagsmunamálefnum heimilanna er grundvöllur sjálfstæðistefnu nútímans, sem lýsa mun landsmönnum veginn fram á við.

Ég óska myndarlegasta stjórnmálapari landsins til hamingju með kjörið! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband