Pöntun ríkisstjórnarinnar til að liðka fyrir ESB aðild

deb876ee-5303-478b-b5db-9f83011bf133_MEDIA

 

 

 

 

 

 

 

Í frétt Morgunblaðsins er sagt, að yfirmaður hjá heilbrigðis- og neytendavernd framkvæmdastjórnar ESB hafi beðið ESA að kanna, hvort innflutningshömlur Íslands á kjöti og kjötafurðum frá ESB gangi lengra en 13. gr EES-samningsins leyfir.

Lög um Evrópska efnahagssvæðið tóku gildi 1. janúar 1994 og hefur ríkt fullkominn skilningur og sátt um beitingu 13. greinarinnar um innflutningshömlur Íslands á kjöti og kjötafurðum frá ESB til Íslands í tæpan áratug. En ekki lengur.

Framkvæmdastjórn ESB pantar "könnun" hjá ESA (lesist: meint brot Íslands á 13. gr) eftir nær áratuga friðsamlega túlkun á greininni í viðskiptum Íslands og ESB-ríkjanna.

Erfitt er að ímynda sér að þessi pöntun sé gerð einhliða af hálfu framkvæmdastjórnarinnar, þótt látið sé líta svo út. Nær er, að um sameignlega ákvörðunartöku af hálfu ríkisstjórnar Íslands og ESB sé að ræða.

Ríkisstjórnin vill komast inn í ESB og mætir hindrun bænda, sem ekki vilja leyfa innflutning lifandi dýra eða hrás kjöts vegna hættu á smiti milli landa. Slíkt hefur áður kostað landsmenn miklar búsifjar í kjölfar mæðu- og riðuveiki. Hér þarf ríkisstjórnin á aðstoð ESB að halda til að tukta óstýriláta og sjálfstætt hugsandi Íslendinga. 

ESB vantar á hinn bóginn viðskiptavöndul til að nota í makríldeilunni og hann fæst með niðurstöðu ESA um, að Íslendingar brjóti 13. gr. EES-samningsins. Hægt verður þá að skiptast á "lögbroti" Íslands á frjálsum kjötinnflutningi fyrir "eftirgjöf" á kröfum ESB í makríldeilunni.

Það er ömurlegt að sjá viðskiptin á þessu plani. Minnir alfarið á viðskipti kaupmannsins í Feneyjum sem krafðist kjötbita úr skuldara, sem ekki gat greitt með peningum. En skilyrðin eru ólík. ESB á bæði dómstólinn og dómarana.

Ríkisstjórn Íslands sker bita fyrir bita af fullveldi Íslands fyrir ESB, sem hefur allt ferlið í höndum sér og notar ráðherra landsmanna, sem afgreiðslustofnun við niðurrif lýðveldisins. 

Engin Landsdómur mun nokkru sinni komast yfir að dæma öll illverk ríkisstjórnarinnar.

Spurningin er, hvort nokkuð verði eftir af fjallkonunni nema beinagrindin, þegar ríkisstjórnin hefur lokið ætlunarverki sínu.

Guði sé lof, það styttist í stjórnarskipti.

 


mbl.is ESB biður ESA að skoða kjöthömlur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Aukin innflugningur og afnám tolla mun lækka matvöruverð á Íslandi

til hagsbótar fyrir almenning

þeir sem eru á móti hag almennings eru hinir einu sönnu landráðarmenn... þeir sem elska tolla, höft og önnur bönn á kostnað fólkins.

Sleggjan og Hvellurinn, 10.11.2012 kl. 20:18

2 Smámynd: Gústaf Adolf Skúlason

Jafnaðarmennirnir Sleggjan og Hvellurinn - eða er þetta kannsi ein og sama persónan? - ættu að fleygja af sér hulunni og koma fram undir réttu(m) nafni (nöfnum), ef þeir, þau, hann eða hún vilja láta taka mark á sér.

Gústaf Adolf Skúlason, 11.11.2012 kl. 06:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband