"Góðu" fréttirnar frá Svíþjóð

Ég sagði við Markús Þórhallsson á Morgunvaktinni Útvarpi Sögu, að ég væri að gugna á því að segja fréttir frá daglegu vaxandi ofbeldi í Svíþjóð. Þótt ég segði aðeins frá því helsta sem kæmi upp á yfirborðið (sem er langt í frá tæmandi), þá leið mér eins og í sakamálaþætti skotárása, sprengjuárása, nauðgana, hnífabardaga, uppþota, barsmíða og alls kyns ofbeldis. 

Við Markús gerðum þá með okkur samkomulag um að ég tæki smá frí frá sænskum sakamálafrásögnum en samtímis skráði ég slíkt á blað og hér er afraksturinn:svensk_flagga_trasig

3. ágúst

  • Vöruhús IKEA í Kalmar útrýmt eftir slagsmál. Einn mannanna vara með þvílík læti að starfsmenn ákváðu að láta útrýma vöruhúsið. Lögreglan handtók manninn.
  • A.m.k þrír sænskir hryðjuverkamenn hjá ISIS handteknir í Sýrlandi.
  • Maður á tvítugsaldri skotinn með fleiri skotum í vestra Stokkhólmi á Helsingforsgatan i Husby Akalla. Ekki lífshættulega særður. (Daginn áður maður skotinn með fleiri skotum sem geiguðu í Husby. Hann hafði áður orðið fyrir barsmíðum og tennur eyðilagðar). 
  • Sjónvarpið sýnir myndir af marókkönskum ungum strákum sem drífa heimilslausir um götur Stokkhólmsborgar. Þeir ræna og rupla, nota hnífa við rán, eru niður í 9 ára gamlir og sniffa thinner. Þeir eru handteknir og afhendir félagsyfirvöldum sem sleppa þeim lausum jafnóðum aftur. Fara þá inn í miðbæ Stokkhólms og ræna enn fleiri. 
  • Grein i Fria Tider um að notkun handsprengja við glæpi hafi sjöfaldast í Svíþjóð.
  • Kristur sýndur sem kynskiptingur á Gleðivikunni í Stokkhólmi. Elisabeth Ohlson Wallin listakonan á bak við kynskiptan Jesús segist aldrei munu sýna Múhammed á sama hátt. 
  • Gróft rán í S-Stokkhólmi Huddinge matvörubúð rænd af grímuklæddum manni vopnuðum byssu. Tók með sér peninga og hvarf í stolnum bíl.
  • Fyrir helgina hefur lögreglan í Stokkhólmi sent út bréf til starfsmanna í sumarleyfum og sagt að lögreglan geti ekki gegnt skyldum sínu og það bráðvanti menn í þjónustu. Vilja yfirmenn að starfsmenn hætti í sumarfríum og komi til starfa svo lögreglan þurfi ekki að beita þvingandi skylduákvæði sem neyðir menn til að koma á vaktina.
  • Götubörn frá Marókkó hafi farið frá Gautaborg og herja núna í Stokkhólmi.
  • Kveikt í iðnaðarbyggingu í Mölndal sem m.a. inniheldur lager fyrir lögregluna. 
  • Þrír bílar brunnu í Landskrona.
  • Bíll sprengdur í Söderkulla Malmö.
  • 18 ára drengur hnífstunginn í slagsmálum milli tveggja unglingahópa. 
  • Konu nauðgað á götu úti í Malmö. Henni var misþyrmt og rænt og síðan nauðgað.  

4 ágúst

  • Malmö  tveir starfsmenn særðir eftir hádegið er ráðist var á líbanska matvöruverslun í Malmö. Voru mennirnir skotnir við vopnað rán og er annar mannanna alvarlega særður. 
  • Lík tveggja manna fundust í íbúð í Alby s-Stokkhólmi í morgun. Lögreglan verst allra frétta á meðan verið er að rannsaka málið en segir að um morð sé að ræða. 
  • Kona á sextugsaldri rænd í húsi sínu í Norrköping. Tveir grímuklæddir menn á ferð.
  • Lögreglan handtók mann vegna skotárásar á 16 ára pilt á unglingaheimili Tyresjö (suður fyrir Stokkhólm) s.l. laugardag. Var pilturinn skotinn fleiri skotum og gert að sárum hans um nóttina og hann lifði af árásina. Lögreglan telur að hún hafi náð í skotmanninn. 
  • ”Ég hef sprengju í pokanum. Í dag munum við öll deyja”. Þessa hótun hrópaði karlmaður um borð í lestinni milli Borlänge og Gävle. Hótaði að sprengja lestina og farþegana í loft upp. Lenal-Mie Bernkert ein farþeganna tókst að senda sms til dótturinnar sem hringdi á lögregluna sem kom um borð í Sandviken. Lögreglan fann enga sprengju á manninum og sögðu honum að vera rólegur. Síðan fór lögreglan af lestinni á næstu stöð. Núna hefur lögreglan verið kærð fyrir að hafa ekki handtekið manninn. 
  • Skógarbirni tókst að komast út fyrir girðingu á Rándýragarðinum í Orsa. Réðst á 18 ára starfsmann Róbert og beit hann til bana. Fjölskylda með börn urðu vitni að atburðinum og voru í áfalli. Björninn var drepinn samdægurs. Talið er að Róbert hafi komið í veg fyrir að björninn réðst á fjölskylduna en galt fyrir það með lífi sínu. Björninn hafði grafið holu undir sterka girðingu og þannig komist inn á svæði áhorfenda. 

5. ágúst

  • Blóðugur hnífstunginn maður fannst i Hegersten í suður Stokkhólmi
  • Dæmt í grófu nauðgunarmáli tveggja drengja sem hótuðu að rota 16 stúlku með járnröri á meðan þeir nauðguðu henni. Hótuðu að drepa hana ef hún segði lögreglunni frá athæfinu. Voru dæmdir í 8 og 10 mánaða lokaða gæslu á unglingahæli og 165 þúsund sek sekt. 
  • Búist við að 32 þúsund flóttamönnum sem neitað hefur verið um landvistarleyfi í Svíþjóð kæri ákvörðunina.
  • Þegar lögreglan reyndi að stöðva hnífabardaga 4-5 manns í Skarpneck i S-Stokkhólmi mynduðu 20 manns hring í kringum lögregluna. Lögreglan kallaði þá eftir liðsauka og kom deild með sérþjálfaða hunda gegn uppþotum á staðinn. Einhverjir handteknir. 
  • 8 af 10 stúlkum á menntaskólaaldri - 80% - finnst þær vera ótryggar utandyra í Uppsala skv nýrri rannsókn. Uppsala Nya Tidning greinir frá þessu. Daniel Larsson hjá lögreglunni í Uppsala  segist hafa bannað táningadætrum sínum að vera úti á kvöldin og segir að dætur hans hafi lent í hópum innflytjendastráka. ”Þeir eru mjög ágengir í samskiptum við stúlkur, glápa á þær, flauta á þær og dætur mínar hafa hringt og spurt hvað þær geti gert þegar þær hafa verið eltar.” Sten Wikmark á þrjár dætur og hann segir að dætur hans séu eltar af strákahópum og ”í eitt sinn elti einn hópurinn eina dóttir mína og strákarnir reyndu að halda henni fastri en henni tókst að flýja inn á veitingahús á staðnum”. Árið 2013 sögðust 45% stúlkna á menntaskólaaldri í Uppsala að þeim fyndist þær vera tryggar í Uppsala en fimm árum síðar eru aðeins 19% tryggar. 
  • Æskulýðsdeild nazista Nordisk Ungdom réðust á gleðigöngu hinsegins fólks í Stokkhólmi laugardaginn 5. ágúst. Kom til átaka við lögreglu sem beitti ofbeldi til að verja gleðigönguna. Nazistarnir héldu borða með textanum ”björgum börnunum” og hrópuðu ”Verndum börnin frá úrkynjunarhátíðinni”. Lögreglan handtók nokkra þeirra.
  • Maður rændur á strætóstöð í Staffanstorp. Þrír menn réðust á hann og stálu af honum bílasíma og misþyrmdu honum. Lögreglan hefur ekki handtekið neinn. Eina lýsing ræningjanna er að þeir eru svarthærðir.
  • Kona fannst myrt á bóndabýli fyrir utan Enköping. Lögreglan hefur handtekið mann grunaðan um morðið. Morðið hefur vakið óhug og hræðslu á svæðinu.
  • Maður á tvítugsaldri skotinn í Jordbro fyrir sunnan Stokkhólm. Alvarlega særður og er á sjúkrahúsi. Skotárásin utandyra í íbúðarhverfi. Vitni segir manninn hafa verið skotinn mörgum skotum í maga, hendur og fætur. Enginn handtekinn. Lögreglan segist ekkert geta gert.

6. ágúst

  • 83 lögreglustöðvar í Svíþjóð eru lokaðar í sumar. Lögreglan svarar varla lengur köllum vegna búðarþjófnaðis, jafnvel þótt búðareigandinn haldi þjófnum. Magnus Jansson eigandi íþróttavöruverslunar í Seffle hefur gefist upp á því að tilkynna þjófnaði til lögreglunnar. Hann gafst upp þegar að einn þjófurinn skallaði hann í andlitið og braut á honum nefið og enga lögregluvernd var að fá. 
  • Maður fannst myrtur í íbúð í Hudiksvall.
  • Þriðja hver kona sem myrt er í Svíþjóð er heiðursmorð skv. opinberum upplýsingum. En vandamálið er stórt og ekki kemst upp um öll heiðursmorð. Talið er að nokkur hundruð þúsund manns í Svíþjóð lifi í s.k. heiðursmenningu. Yfirvöld eru gagnrýnd fyrir að rannsaka ekki og halda upplýsingum til haga um morð tengd innflytjendum. Í fyrra voru 18 konur myrtar í Svíþjóð og a.m.k. sex morðanna tengjast heiðursmorðum. 
  • Konu nauðgað á opinni götu kl 03.00  í Helsingjaborg. Lögreglan veðjar til vegfarenda að gefa sig fram ef þeir hafa séð eitthvað. 
  • Nokkur hundruð s.k. ”fylgdarlausra barna” fóru í setumótmæli í Stokkhólmi sunnudag og kröfðust að engum yrði vísað úr landi til Afghanistan en mörgum þeirra hefur verið neitað um landvistarleyfi. Mikið grín á félagsmiðlum um aldur ”barnanna” - m.a. birti sænska útvarpið mynd á heimasíðu sinni og segir að hún sýni börn á aldrinum 13-17 ára. Flestum sýnist þó um fullorðið fólk að ræða á bilinu 25-40 ára, margir skeggjaðir karlmenn og hrukkótt andlit á myndinni. Heilbrigðisyfirvöld  Svíþjóðar hafa lýst því yfir að a.m.k. 80 % s.k. fylgdaralausra "barna" eru í reynd fullorðnir eftir að lífrænn aldur þeirra var rannsakaður. 
  • Innanríkisráðherra Svíþjóðar Morgan Johansson segir í viðtali við Sænska dagblaðið að ríkisstjórnin vilji ekki gera menn ríkislausa. Er þetta svar hans við tillögu lögreglustjórans Erik Nord í Gautaborg, um að afturkalla sænskt ríkisfang hryðjuverkamanna sem snúa aftur heim frá Sýrlandi. Sænska leynilögreglan veit um 3000 hryðjuverkamenn í Svíþjóð og telur 2000 þeirra vera sérlega hættulega.

7. ágúst

  • 15 ára drengur rændur af þremur vopnuðum mönnum
  • Auðkennum (nafnnúmer m.fl.) allt að 200 þúsund Svía stolið skv. nýrri SIFO könnun. af 4300 sem spurðir voru sögðu 2,8% að auðkennum þeirra hafi verið stolið sem er aukning frá 2,3% ár 2016.  
  • Jonas Serneholt pólitískur ritari Umhverfisflokksins í Järfälla hættir störfum eftir að hafa kallað Sómali ”krabbamein” eftir hópnauðgun Sómala í Järfälla á konu á fertugsaldri í júlí sl. Hann hafur beðist velvirðingar á ummælunum og hætt öllum stjórnmálastörfum. 

8. ágúst

  • Manni misþyrmt í Partille. Fluttur alvarlega særður á sjúkrahús.
  • Lögreglan handtekur hnífamann í Gautaborg.
  • Maður á níræðisaldri rændur við strætóstöð í Gautaborg um miðjan dag.
  • Kona rænd við Liseberg.
  • Maður hnífstunginn og færður á sjúkrahús ásamt árásarmanni í Bagarmossen, Stokkhólmi.

9. ágúst

  • 50 bílar skemmdir af reyk eftir íkveikju í bílahúsi í Gautaborg. 
  • Réttarhöld hefjast yfir fjórum fjölskyldumeðlimum í Vestur Svíþjóð sem reyndu að ræna og gifta burtu 17 ára dóttir í Söderhamn í byrjun júlí. Stúlkan hélt að hún væri að fara að hitta vin, þegar setið ver fyrir henni og henni rænt. 
  • Kona rænd í Sofielund Malmö. Ráðist var að henni bakífrá og hún tekin hálstaki. 
  • Ráðist á hóp sitjandi fylgdarlausra barna í setuverkfalli í Stokkhólmi í gær. 
  • 18 ára drengur handtekinn fyrir morðtilræði og rán i Malmö fyrir fimm dögum síðan.
  • Tveir menn handteknir Malmö fyrir að bera byssur á veitingastað.
  • Slagsmál unglingahópa við neðanjarðarlestarstöð í S-Stokkhólmi
  • Fimm grímuklæddir menn rændu heimili í Kristinehamn

10. ágúst

  • Ráðist á stúlku á táningaaldri og henni nauðgað eftir að hún fór af strætó í Linköping um hálf tíuleytið um kvöldið.
  • Særður maður fluttur á spítala í Stokkhólmi.
  • Kveikt í bíl í bílahúsi í Malmö. Einn bíll gjörónýtur, 15 bílar reykskemmdir.
  • Ráðist á mann og hann rændur í Luleå
  • Manni misþyrmt í Kristinehamn

11. ágúst

  • Hnífstunginn maður kemur særður í búð í Kalmar og biður um hjálp. Fluttur á sjúkrahús. 
  • Tvö 11 ára börn rænd hjólum, úrum og veski í Haninge S-Stokkhólmi.
  • Manni sem reyndi að stöðva tvo menn sem krotuðu á bíla misþyrmt.
  • Rán á vörum flutningabíls, ræninginn hélt bílstjóranum á meðan þrír aðrir tæmdu bílinn.
  • Fjórar konur ráðast á þá fimmtu, misþyrma með spörkum og barsmíðum, þar sem hún liggur á jörðinni. Konunni tókst að komast sjálf á nærliggjandi veitingastað. 

12. ágúst

  • 15 ára stúlku nauðgað í Norrköping. Er í áfalli.
  • 40 fótboltabullur handteknar vegna uppþots í Norrköping.
  • Hnífaárás i Kiruna og einn særður.
  • Margir menn reyndu að ræna mann á hjóli í Lund. 
  • Mönnum misþyrmt Ystad og Gautaborg.
  • Kona særð í hnífaárás Stokkhólmi. Er á sjúkrahúsi.
  • Maður í eiturlyfjaástandi sveiflaði sverði við neðanjarðarlestarstöð í Fittja (S-Stokkhólmi)

13. ágúst

  • Maður særður í hnífaárás í íbúð í Stokkhólmi.
  • Tveir menn í lífshættu á sjúkrahúsi í Malmö eftir skotárás á samkomusal í Malmö. A.m.k. einn til særður. Vinti segja að öngþveiti hafi brotist út þegar fólk flúði úr salnum og út á götu. 70-100 manns á staðnum.
  • Maður alvarlega særður á sjúkrahúsi í Uppsala eftir hnífaárás.
  • Setumótmæli gegn útvísun flóttamanna til Afghanistan dreifast til annarra borga í Svíþjóð, Malmö.
  • Skotinn maður fluttur særður á sjúkrahúsi í Halland, S-Svíþjóð
  • Manni misþyrmt í Kalmar, er á sjúkrahúsi.
  • Vopnað rán í Stokkhólmi. Sími og veski tekið af manni undir hnífshótun. 

Eftir þennan lestur má gleðjast yfir því, að Svíþjóð er enn Svíþjóð þótt myndin hafi breyst. Og þar sem enn er eftir af helginni, þá er sem sagt enn sá möguleiki að listinn geti jafnvel orðið lengri og þá er hægt að gleðjast yfir því að hann varð nú samt ekki lengri en raun ber vitni.

Þeir sem telja runann ofan vera ímyndaðan skáldskap er bent á heimasíðu sænsku lögreglunnar.

Svakamálavakt lokið að sinni. Over and out.

 

 

 

 


mbl.is Lífshættulega særðir í Malmö
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Framtíð Íslands, sem "góða" fólkinu finnst æskileg.

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 13.8.2017 kl. 20:19

2 Smámynd: Hörður Þórðarson

We’ve taken up the white man’s burden

Of ebony and brown;

Now will you tell us, Rudyard

How we may put it down?

http://historymatters.gmu.edu/d/5478/

Hörður Þórðarson, 13.8.2017 kl. 21:01

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þetta er ljóti lesturinn, Gústaf minn.

Auðvitað eru ekki allir illræðismennirnir innflytjendur, nýbúar eða múslimar, en fróðlegt væri að sjá hlutfallið. Og er það ekki staðreynd, að á einungis hálfum áratug hefur slíkum alvarlegum glæpum fjölgað gríðarlega?

Með góðri kveðju og þökk fyrir upplýsingarnar,

Jón Valur Jensson, 14.8.2017 kl. 06:11

4 Smámynd: Gústaf Adolf Skúlason

Þakkir fyrir innlit og athugasemdir. Glæpum hefur fjölgað síðustu árin, alla vega þessum skotárásum svo og nauðgunum sem gegnumsýra orðið allt samfélagið. Við listann bættist svo skotárás í gærkvöldi í íbúðarhverfi í Vallentuna norð vestur af Stokkhólmi. Lögreglan í Stokkhólmi segist aldrei hafa upplifað þvílíka aukningu skotárása áður en um 70 hafa átt sér stað frá áramótum bara hér í Stokkhólmi. Lögreglan hefur gefist upp. Óleyst morðmál hrannast upp og hún ræður ekki við neitt. Bókin Massutmaningen eftir Tino Sanandaji lýsir sambandi innflytjenda og aukinni tíðni glæpa í Svíþjóð. Sjálfur get ég lýst því með að fyrir u.þ.b. 30 árum voru miðlar fullir í marga vikur ef lík fannst í skóginum. Í dag flýgur það fram hjá á augnabliki að þrjár til fjórar skotárásir eru gerðar og nokkrir drepnir dag hvern. Fjölgun nauðgana kemur í kjölfar innfluttrar menningar sem lítur á konur sem húsdýr. 

Gústaf Adolf Skúlason, 14.8.2017 kl. 07:56

5 Smámynd: Gústaf Adolf Skúlason

Gleymdi að segja frá að lögreglustöðin i Hallstahammar fyrir norðan Stokkhólm varð fyrir sprengjuárás í gær og mikið tjón á anddyri stöðvarinnar. Sem betur fer særðist enginn.

Gústaf Adolf Skúlason, 14.8.2017 kl. 08:06

6 Smámynd: Jón Valur Jensson

Og svo talar "Góða fólkið" hér -- eða herskáustu menn í þeim hópi (eins og Sigurður M. Grétarsson, Sema Erlma og að ég tali nú ekki um Gunnar brenglaða Waage) -- um að það séu eintómar ýkjur og lygi, að allt hafi farið hraðversnandi í þessum ofbeldismálum með fjölgun innflytjenda og að sænska lögreglan vogi sé varla inn í tugi hverfa þeirra -- þeir sem haldi slíku fram séu bara fordómafullir rasistar!

En þú veizt betur, Gústaf, eins og raunar margir aðrir, og gott að þið sofnið ekki á verðinum. :)

Jón Valur Jensson, 14.8.2017 kl. 14:16

7 Smámynd: Gústaf Adolf Skúlason

Kærar þakkir Jón fyrir orð þín, það þýðir ekkert að berja höfðinu í stein og lifa í afneitun. Það hefur líka komið fram í umræðunni hér, að allur þessi botnlausi innflutningur fólks síðustu ár hefur stórlega raskað kynjahlutföllum í Svíþjóð, þannig að í aldurshópum t.d. táninga ganga 123 menn á 100 konur sem er meira ójafnvægi en í Kína. Sjaldan talað um það. 

Gústaf Adolf Skúlason, 14.8.2017 kl. 14:56

8 Smámynd: Jón Valur Jensson

Já, einnig þetta er mjög athyglisvert. 

Og af hverju tekur Góða fólkið ekki eftir þessu? surprised

Jón Valur Jensson, 14.8.2017 kl. 15:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband