Áskorun um formleg aðlögunarslit við ESB

39 einstaklingar (ég er einn af þeim) haf sent áskorun til væntanlegrar ríkisstjórnar að binda endi á aðlögunarferli Íslands að ESB með formlegum hætti:


Reykjavík, 22. maí 2013

Við undirrituð skorum á ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks að binda enda á frekari aðlögun Íslands að Evrópusambandinu með formlegum hætti og standa þannig við síðustu landsfundarályktanir um stefnu flokkanna í utanríkismálum.


Greinargerð:

Eitt þeirra atriða sem má lesa út úr niðurstöðu nýafstaðinna alþingiskosninga, þar sem 51,1% kjósenda greiddu núverandi ríkisstjórnarflokkum atkvæði sitt, eru skýr skilaboð um aðrar málefnaáherslur en fyrrverandi ríkisstjórnar; m.a. varðandi Evrópusambandsaðild.


Evrópusambandið glímir sjálft við gjaldmiðils- og skuldaskreppu sem ekki er séð fyrir endann á. Í þessu sambandi er vert að draga það fram að fyrrverandi fjármálaráðherrar bæði Bretlands og Þýskalands, sem mæltu með og stuðluðu að aðild landa sinna að Evrópusambandinu á sínum tíma, hafa lýst yfir þungum áhyggjum af stefnu ESB og þeirri áherslu sem sambandið leggur á viðhald evrunnar.


Nigel Lawson, fyrrverandi fjármálaráðherra Breta, staðhæfir að efnahag Bretlands sé betur komið utan ESB auk þess sem útganga úr sambandinu muni hafa jákvæðar afleiðingar innanlands í lýðræðisátt. Oskar Lafontaine, fyrrverandi fjármálaráðhera Þýskalands, gengur sínu lengra þar sem hann hefur hvatt til þess að evrusamstarfið verði leyst upp til að forða frekari efnahags- og samfélagshörmungum ýmissa ríkja Suður Evrópu (sjá hér).


Afstaða fyrrverandi fjármálaráðherra er í fullu samræmi við viðvörun Yves Daccord, framkvæmdastjóra Alþjóðaráðs Rauða krossins,  frá upphafi ársins. Í viðtali við danska blaðiðPolitiken varaði hann við vaxandi fátækt í löndum Suður- og Austur-Evrópu vegna efnahags-kreppunnar (sjá hér). Með orðum sínum staðfestir Oskar Lafontaine ekki aðeins það sem kemur fram hjá framkvæmdastjóra Alþjóðaráðs Rauða krossins heldur dregur hann myntbandalagið fram sem orsakavald.


Aðlögunarferli Íslands að Evrópusambandinu hefur dregið dýrmætan tíma, fjármuni og orku fráfarandi stjórnvalda frá brýnni verkefnum. Nú er tækifæri til að snúa þessu við með því að binda endi á aðlögunina og byggja upp samstöðu um uppbyggingu fullvalda ríkis sem tekur sjálfstæðar ákvarðanir um grundvallarmálefni eins og efnahagsmál og milliríkjaviðskipti.


Undirskriftir:

Anna Ólafsdóttir Björnsson, frambjóðandi Regnbogans í nýliðnum kosningum
Atli Gíslason, frambjóðandi Regnbogans í nýliðnum kosningum
Árdís Magnúsdóttir, tækniteiknari
Ásgeir Geirsson, formaður Herjans, félags stúdenta gegn ESB-aðild
Baldvin H. Sigurðsson, frambjóðandi Regnbogans í nýliðnum kosningum
Bjarni Bergmann, leigubílstjóri
Bjarni Harðarson, bóksali á Selfossi og stjónarmaður í Heimssýn
Björg Sigurðardóttir, frambjóðandi Regnbogans í nýliðnum kosningum
Björgvin Rúnar Leifsson, framhaldsskólakennari
Eiríkur Ingi Garðarsson, í stjórn SAMSTÖÐU
Elinborg K. Kristjánsdóttir, frambjóðandi Regnbogans í nýliðnum kosningum
Friðrik Atlason, oddviti Regnbogans í Reykjavíkurkjördæmi suður í nýliðnum kosningum
Guðjón Halldór Höskuldsson, iðnaðarmaður
Guðni Karl Harðarson, félagi í SAMSTÖÐU
Guðmundur Brynjólfsson, rithöfundur og djákni
Guðrún Skúladóttir, sjúkraliði
Gunnar Skúli Ármannsson, læknir
Gunnar Guttormsson, vélfræðingur
Gunnar Waage, stjórnarmaður í Heimssýn
Gunnlaugur Ingvarsson ráðgjafi og stjórnarmaður í Heimssýn
Gústaf Skúlason, meðlimur í Heimssýn
Halldóra Hjaltadóttir, formaður Ísafoldar, félags ungs fólks gegn ESB
Hallgeir Jónsson, í stjórn SAMSTÖÐU
Haraldur Ólafsson, prófessor í veðurfræði
Helga Garðarsdóttir, félagi í SAMSTÖÐU
Hjörleifur Guttormsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra
Hörður Guðbrandsson, stjórnarmaður í Heimssýn
Jón Reginbald Ívarsson, nemi við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík
Jónas Pétur Hreinsson, iðnrekstrarfræðingur og félagi í SAMSTÖÐU
Karólína Einarsdóttir, frambjóðandi Regnbogans í nýliðnum kosningum
Kristján Jóhann Matthíasson, fyrrverandi sjómaður
Rakel Sigurgeirsdóttir, varaformaður stjórnar SAMSTÖÐU
Rannveig Sigurðardóttir, skrifstofumaður
Sif Cortes, viðskiptafræðingur
Sædís Ósk Harðardóttir, frambjóðandi Regnbogans í nýliðnum kosningum
Valdís Steinarsdóttir, oddviti Regnbogans í Suðvesturkjördæmi í nýliðnum kosningum
Þollý Rósmundsdóttir, stjórnarmaður í Heimssýn
Þórarinn Baldursson, vélamaður
Þórarinn Einarsson, aktívistiReykjavík, 22. maí 2013 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband