Evran er svefnpilla, sem svæft hefur Evrópu

11514_373825339398323_572957861_n.jpgAldrei fyrr hefur jafnháttsettur embættismaður ESB, fyrrverandi framkvæmdastjóri innri markaðarins Frits Bolkesten, stutt afnám evrunnar. Í viðtali við hollenska blaðið Algemeen Dagblad sagði Frits Bolkensten að:

"Hollendingar verða að yfirgefa evruna eins fljótt og auðið er....Gjaldmiðlasambandið hefur gjörsamlega mistekist. Evran hefur breyst í svefnpillu sem hefur svæft Evrópu í staðinn fyrir að hugsa um samkeppnisstöðu okkar...Leggjum niður evruna og styrkjum innri markaðinn í staðinn. Við þurfum ekki evruna til þess."

Orð að sönnu, bara að taka undir með manni með reynslu úr innstu herbúðum búrókratanna í Brussel.

Uppreisnin gegn evrunni breiðist út um alla Evrópu t.d. hvetur Mario Soares fyrrum forseti Portúgals til greiðslustöðvunar og úrsagnar úr evrunni, á Kýpur ræða menn svipaða hluti, í Þýzkalandi er nýbúið að stofna flokk, sem krefst úrsagnar landsins úr evrunni o.s.frv.

Evran er dauðvona. Úför auglýst síðar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband