Hanna Birna Kristjánsdóttir - glæsilegur foringi Sjálfstæðisflokksins

hannabirna2Hanna Birna Kristjánsdóttir hreif ekki bara fundarmenn Landsfundar Sjálfstæðisflokksins með sér í framboðsræðu sinni til varaformanns Sjálfstæðisflokksins í gær. Hún geislaði einnig í beinni netútsendingu til allra þeirra, sem fylgjast með Landsfundinum gegnum netið, heima og að heiman.

Sem fyrr er það skýrleiki í stefnumálum og að ganga hreint til verks sem er ofar öllu hjá Hönnu Birnu. Íslendingar þekkja hana mjög vel vegna góðra starfa hennar hjá Reykjavíkurborg og koma hennar á Alþingi mun svo sannarlega skipta sköpum við hreinsun á því vofuhúsi, sem hin spillta ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur skilur eftir sig.

Hanna Birna Kristjánsdóttir hugsar sjálfstætt, er vel máli farin og þorir að segja það sem mörg okkar hugsa. Hún stappar stáli í fólk og hittir beint í mark með þær tilfinningar, sem bærast í hjörtum manna eins og t.d. þegar hún sagði skorinort, að komandi kosningar væru um það að gefa fólki framtíðarsýn og trú á Íslandi. Á fyrra landsfundi komu tárin fram, þegar hún sagði að Ísland ætti að verða það gott samfélag, að fólk myndi snúa til baka og flytjast aftur heim. Hanna Birna Kristjánsdóttir sameinar og laðar fram það besta í okkur.

Sjálfstæðisflokkurinn nær lengra með Hönnu Birnu Kristjánsdóttur við stýrið. Leiðtogahæfileikar hennar skipa henni á fremsta bekk sem foringja Sjálfstæðisflokksins. Ég óska Hönnu Birnu Kristjánsdóttur alls hins besta í komandi vandasömu starfi og hlakka til að heyra í henni í sölum Alþingis okkar góða.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband